Gátt - 2004, Síða 6
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
6
Sá hópur fólks, sem ekki hefur lokið
menntun umfram grunnmenntun, er
mjög stór á íslenskum vinnumarkaði
eða hátt í 40%. Ljóst er að þetta fólk
stendur höllum fæti að því er lýtur að
möguleikum til þróunar og sveigjan-
leika til jafns við framvindu atvinnulífs
og nýsköpunar. Um leið liggur fyrir að
takmörkuð grunnmenntun og starfs-
menntun stendur samkeppnishæfni
og nýsköpun fyrir þrifum. Undanfarin
ár hafa Íslendingar upplifað hagvöxt
án þess að störfum hafi fjölgað að
sama skapi og virðist sem framleiðni hafi aukist til mikilla
muna á skömmum tíma samhliða sívaxandi alþjóðlegri
samkeppni. Mikilvægi menntunar mun án vafa áfram fara
vaxandi á tímum aukinnar samkeppni og framleiðnikröfu.
Frá árinu 2000 hafa stéttarfélög og Samtök atvinnulífsins
starfrækt sérstaka fræðslusjóði á almennum vinnumark-
aði, einkum til að sinna starfsfræðsluþörfum ófaglærðs
starfsfólks. Er það samdóma álit samningsaðila og
annarra sem til þekkja að mjög vel hafi til tekist með
starfsemi sjóðanna og að grettistaki hafi í raun verið lyft
í starfsfræðslumálum ófaglærðra á síðasta samnings-
tímabili. Launafólki hafa opnast ný tækifæri til að auka
færni sína og hreyfanleika á vinnumarkaði í opnari heimi
aukinnar framleiðni og samkeppni. Aukin hæfni íslensks
mannauðs er auðvitað sameiginlegt hagsmunamál ein-
staklinganna sjálfra og atvinnulífsins og þjóðfélagsins í
heild.
Vilji aðila vinnumarkaðarins hefur staðið til að stíga
frekari skref í þessum efnum og reyna að brúa bilið milli
formlega skólakerfisins og þess óformlega
- með því að bjóða upp á námsleiðir sem hlotið hafa
ákveðna gæðavottun og fást metnar til eininga innan
hins formlega skólakerfis.
- með því að stuðla að því að hægt sé að sækja slíkt
nám á sem flestum stöðum á landinu.
- með því að gera fólki kleift að fá samræmt mat á sínu
fyrra námi og starfsreynslu, fá vottun á sinni raunfærni.
Segja má að áherslan á annað tækifæri til náms sé í raun
nútímahugsun í fræðslumálum. Hún snýst um að menntun
verði ekki einungis fengin með því að sitja á skólabekk í
hefðbundnu skólaumhverfi heldur samanstandi hún jafn-
framt af þeirri reynslu og þekkingu sem einstaklingurinn
hefur aflað sér, ekki síst úr atvinnulífinu. Hún snýst hins
vegar jafnframt um að fólk með ýmiss konar reynslu og
þekkingu geti byggt brýr yfir í hið formlega skólakerfi og
fengið raunfærni sína metna til eininga, einkum á fram-
haldsskólastigi.
Það var ekki síst í þessu skyni sem Samtök atvinnulífsins
og Alþýðusamband Íslands stofnuðu Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins í desember 2002 en hún tók síðan formlega
til starfa í nóvember 2003. Fræðslumiðstöðin hefur verið
skilgreind sem samstarfsvettvangur ASÍ og SA um full-
orðins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði í
samstarfi við aðrar sameiginlegar fræðslustofnanir á
vegum aðildarsamtaka ASÍ og SA. Í þjónustusamningi við
menntamálaráðuneytið er samkomulag um að FA sinni
fyrst og fremst þeim hópi fólks sem ekki hefur lokið
framhaldsskóla, innflytjendum og öðru fólki í sambæri-
legri stöðu. Helstu verkefnin eru nefnd hér að framan en
auk þeirra er Fræðslumiðstöðinni meðal annars ætlað að
skilgreina menntunarþarfir fyrirtækja, starfsstétta og ein-
staklinga og að byggja upp þekkingu á fullorðinsfræðslu.
Þótt verkefnin séu metnaðarfull og einungis tæpt ár sé
liðið frá því að Fræðslumiðstöðin tók til starfa er mjög
ánægjulegt að þegar skuli hafa náðst stórir áfangar í
starfinu. Auk þess að hafa meðal annars starfað að fjölda
þarfagreininga og mótun námsbrauta hefur Fræðslu-
miðstöðin nú þegar gert tillögu um mat á fimm námsleiðum
fyrir ófaglærða sem menntamálaráðuneytið hefur
samþykkt að meta megi til eininga á framhaldsskólastigi.
Unnið er að mati á fleiri námsleiðum, í sumum tilfellum
samhliða þróun þeirra. Þá er gerð rammasamnings
Fræðslumiðstöðvarinnar við símenntunarmiðstöðvarnar
um allt land jafnframt á lokastigi þegar þetta er ritað,
honum er ætlað að stuðla að því að hægt verði að stunda
Á V A R P F O R M A N N S
Gústaf Adolf Skúlason