Gátt - 2004, Page 19
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
19
Arnardóttir, 1999, og umfjöllun í Jón Torfi Jónasson og
Jóhanna Rósa Arnardóttir, 2001c). Það hefur verið sýnt
fram á að slíkur mismunur er hvað minnstur á Íslandi
miðað við þau lönd sem við berum okkur helst saman við,
óháð því hver þessara bakgrunnsbreytna er notuð (sjá
Jón Torfi Jónasson og Albert Tuijnman, 2001b). En þetta
er samt atriði sem þarf stöðugt að gaumgæfa. Til viðbótar
kemur í ljós að starfsfólk mjög lítilla fyrirtækja virðast
standa höllum fæti og því þarf engu síður að gefa gaum,
ekki síst í umræðu um samkeppnishæfni lítilla fyrirtækja
(sjá m.a. gögn í töflu 3 í Jón Torfi Jónasson og Jóhanna
Rósa Arnardóttir, 2001b og Mynd 3.11 í Beatriz Pont o.fl.,
2003).
Nánasta framtíð
Ég tel mikilvægt að fólk hyggi að þeim hugtökum sem
notuð eru í umræðu um símenntunarþjóðfélagið vegna
þess að þau skipta miklu máli ef upp kemur ágreiningur
um fjármögnun og lagasetningu og þess vegna einnig í
umræðu um réttindi fólks og skyldur samfélagsins. Það
reynist samt ekki hægt að hengja sig alfarið í tiltekna
skilgreiningu vegna þess að þessi orð eru í daglegri
umræðu notuð í ólíkri merkingu. Ég tel einnig mikilvægt
að fólk íhugi vel samspil hins formlega skólakerfis og
margvíslegrar óformlegrar menntunar og átti sig á því
hvernig stór og mikil kerfi eins og skólakerfið þróast og
það er langt frá því að þeirri þróun sé lokið. Þar skiptir
tvennt mestu máli. Í fyrsta lagi hve hratt óformlega kerfið
lagar sig að hinu formlega enda eru margvísleg rök fyrir
því að það gerist þótt stundum væri skynsamlegt að leyfa
hinu óformlega kerfi að blómstra ótruflað og jafnvel að
liðka fyrir fleiru en einu slíku kerfi. Í öðru lagi skiptir máli
að ekki sé uppi óþarfa togstreita á milli þeirra sem móta
þessi kerfi en hún var oft talsverð hér á árum áður og ég
held það hafi spillt fyrir á báðum vígstöðvum. Ég tel einnig
mikilsvert að fólk geri sér skýra grein fyrir því að rök fyrir
símenntunarþjóðfélaginu eru margslungin. Vegna þess
að bæði rökin og hugtökin eru flókin verður ekki einfalt að
útdeila ábyrgð á menntun eins og stundum er látið í veðri
vaka.
Það er ljóst að við stöndum frekar höllum fæti hvað
varðar hina formlegu grunnmenntun og sú staða virðist
breytast hægt. Á hinn bóginn er þátttaka í endurmenntun
þrátt fyrir allt frekar mikil og mynstur hennar líkt og sést
hjá öðrum þjóðum, til dæmis hvað snertir þátttöku ólíkra
aldurshópa. Það ójafnvægi sem sést í þátttökumynstrinu,
bæði í ljósi fyrri menntunar nemenda og stærðar
fyrirtækja, er svipað og annars staðar og ætti að vera
áhyggju- eða að minnsta kosti umhugsunarefni.
Jafnframt þarf að huga að því hverjum beri að tryggja
það jafnræði sem samfélagið gengur út frá.
Mikilvægi endurmenntunar er almennt viðurkennt í sam-
félaginu en alls ekki í eitt skipti fyrir öll. Rökin verða
stöðugt að vera í endurskoðun og eins leiðirnar og
staðan hverju sinni.
Jón Torfi Jónasson,
prófessor við Háskóla Íslands.
Heimildir
Beatriz Pont, Anne Sonnet og Patrick Werquin. (2003). Beyond rhetoric:
adult learning policies and practices. Paris, France: OECD.
Bertrand Schwartz. (1971). Ævimenntun og menntakerfi framtíðarinnar.
Menntamál, 44, 35-49.
Ingi Sigurðsson. (1996). Hugmyndaheimur Magnúsar Stephensens.
Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag.
Jóhann S. Hannesson. (1971). Hugleiðingar um menntun fullorðinna.
Menntamál, 44(49-57).
Jón Torfi Jónasson og Albert Tuijnman. (2001a). The Nordic model of adult
education: Issues for discussion. Í Albert Tuijnman og Zenia Hellström
(Ritstj.), Curious Minds. Nordic adult education compared (bls. 116-128).
Copenhagen: TemaNord & Nordic Council of Ministers.
Jón Torfi Jónasson og Albert Tuijnman. (2001b). Nordic Adult Education
Compared: Findings and Interpretation. Golden Riches. Nordic Adult
Learning, 2001 (2), 6-11.
Jón Torfi Jónasson og Jóhanna Rósa Arnardóttir. (1999). Símenntun á
Íslandi. Reykjavík: Félagsvísindastofnun.
Jón Torfi Jónasson og Jóhanna Rósa Arnardóttir. (2001a). Fræðsla full-
orðinna á Íslandi. Reykjavík: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.
Jón Torfi Jónasson og Jóhanna Rósa Arnardóttir. (2001b). Símenntun í
atvinnulífinu. Símenntun á Íslandi. Skýrsla III. Reykjavík:
Félagsvísindastofnun.
Jón Torfi Jónasson og Jóhanna Rósa Arnardóttir. (2001c). Símenntun í
ljósi fyrri skólagöngu. Símenntun á Íslandi. Skýrsla II. Reykjavík:
Félagsvísindastofnun.