Gátt


Gátt - 2004, Side 29

Gátt - 2004, Side 29
29 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S Ástæður þess að hugtakið raunfærni hefur vakið athygli á síðastliðnum árum eru margþættar. Þar má greina sam- félagslegar ástæður, s.s. mikilvægi mannauðsins í sam- félaginu, möguleika á auknum hagvexti með hækkun þekkingarstigsins, möguleika á auknu jafnrétti og jafnari möguleikum til þátttöku í þekkingarsamfélaginu. Í skýrslunni Menntareikningar er eftirfarandi tilvitnun í Þorvald Gylfason og Gylfa Zoëga „Rannsóknir hafa sýnt fram á að það er neikvætt samband milli hagvaxtar og ójafnaðar í menntun. Einnig hefur verið sýnt fram á að aukin útgjöld til menntunar og fjölgun þeirra sem fara í framhaldsnám hefur jákvæð áhrif á hagvöxt. Svo virðist sem menntun auki ekki hagvöxt einungis vegna meiri og betri mannauðs heldur einnig með því að draga úr ójöfnuði svo fremi sem aðgengi að menntun er tiltölulega jafnt (Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, 2003). Loks ber að geta þess fjárhagslega ávinnings fyrir þjóðarbúskapinn að senda ekki einstaklinga í dýrt nám til þess eins að læra eitthvað sem þeir kunna þegar. Í skýrslunni um menntareikninga (Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, 2003) kemur fram að ríkið greiðir að meðaltali 440 þúsund krónur með hverjum framhaldsskólanema og 590 þúsund krónur með hverjum háskólanema. Með aukinni alþjóðavæðingu og tæknivæðingu hafa kröfur til fyrirtækja aukist og þörf þeirra fyrir þekkingu vex að sama skapi. Í skýrslunni „Þörf atvinnulífsins fyrir þekkingu“, sem skrifuð var 1996, kemur fram það sjónar- mið „að hefðbundnar skilgreiningar stétta og starfsgreina muni riðlast. Fólk með breiða þekkingarundirstöðu og aðgang að faglegri endurmenntun, stutt dyggilega af vinnuveitanda, muni eiga kost á mörgum leiðum til sérhæfingar. Ekki muni verða spurt um löggildingu né starfsgrein heldur þarfir þess markaðar sem fyrirtækið þjónar“ (Rannsóknarþjónusta Háskólans, 1996). Í sömu skýrslu er einnig kallað eftir því að þeir sem nýti tíma sinn til símennt- unar eigi þess kost að fá þekkingu sína metna af óháðum aðilum . Í könnun Gallup fyrir Samtök iðnaðarins 2004 kemur fram að 66,8% svarenda er hlynnt því að starfsfólk geti fengið vottað nám á vinnustöðum sem gefur starfs- réttindi en 15,1% er andvígt því og 18,1% tekur ekki afstöðu (Samtök iðnaðarins, 2004). Ávinningur fyrirtækja af mati á raunfærni er m.a. að fá yfirlit yfir færni starfs- manna sinna til að geta þjálfað þá markvisst og komið þannig til móts við auknar gæðakröfur í starfsemi sinni. Með mati á raunfærni gefst fullorðnu fólki á vinnumark- aði betri möguleikar á að sækja sér menntun og þjálfun til að auka færni sína. Helsti ávinningur einstaklinganna er að styrkja sig í námi og starfi, fá aðgang að formlegu námi og stytta námstímann, öðlast framgang, hreyfimöguleika eða ný tækifæri á vinnumarkaði ásamt því að geta mætt auknum kröfum um atvinnufærni, verið virkir varðandi eigið nám og haft aukna vitund um færni sína. Mat á óformlegu námi og starfsreynslu hefur þannig víðtækt gildi m.a. bæði efnahagslegt og félagslegt (European Commission, 2004). Sum lönd eru í því ferli að þróa og setja upp aðferðafræði og kerfi til að bera kennsl á, meta og skjalfesta nám sem fram fer utan skólakerfis. Námsmenn fá einingar fyrir þekkingu og færni sem þeir hafa aflað sér utan skólakerfisins og um leið er þetta framlag til að starfsferlar geti orðið einstaklingsmiðaðir. Þetta er einnig álitin mikilvæg leið til að hvetja og örva fullorðið fólk á vinnumarkaði til náms. Markmiðið er að forðast það að fólk endurtaki nám og stytti þar með námsferilinn. Fullorðnir hefja nám þar sem þeir eru staddir í þekkingu og færni en ekki þar sem formlegu námi lauk (OECD, 2003). Saga hugtaksins á uppruna sinn í Bandaríkjunum fyrir u.þ.b. 35 árum. Áherslan var þá á að kanna hvort hægt væri að nota reynslubundna þekkingu til að veita aðgang að háskólum. Þaðan bárust þessar hugmyndir til Bretlands fyrir u.þ.b. 25 árum. Á þessum tíma eru ástæður raun- færnimats einkum krafa um félagslegt réttlæti. Smám saman verður áherslan vinnumarkaðstengdari. Í Ástralíu hefst fyrirtækjatengt mat á raunfærni um 1987. Fyrir utan enskumælandi þjóðir voru Frakkar snemma á ferðinni með þróun mats á raunfærni í sambandi við starfsfærni eða um 1985. Eftir það hefur mat á raunfærni í tengslum við atvinnulífið notið sívaxandi athygli í Evrópu (Andersson o.fl., 2003). Á allra síðustu árum hafa okkar næstu nágrann- ar sýnt þessum málaflokki mikla athygli. Norðmenn eru

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.