Gátt


Gátt - 2004, Side 30

Gátt - 2004, Side 30
30 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S komnir einna lengst en fleiri þjóðir fylgja fast í kjölfarið. Stórþingið í Noregi samþykkti að byggt yrði upp kerfi á landsvísu til mats á raunfærni fullorðinna í atvinnulífinu og menntakerfinu. Kerfið á að gefa fullorðnu fólki möguleika á að fá staðfesta færni sína án þess að fara hefðbundnu leiðina í gegnum prófafyrirkomulagið. Greint er annars vegar á milli skjalfestingar á raunfærni fyrir atvinnulífið þar sem markmiðið er að gera raunfærni sýnilega innan vinnustaðar fyrir viðskiptavini og nýja atvinnuveitendur og hins vegar skjalfestingar fyrir menntakerfið þar sem markmiðið er að gera raunfærni sýnilega til grundvallar inntöku og styttingar á námi. Í ályktun Stórþingsins er því slegið föstu að skjalfestingar- kerfi og vottun á raunfærni verði að ganga út frá því að raunfærni sé ekki nákvæmlega eins og sú hæfni sem komi fram í opinberum námsskrám og prófuð sé með opinberum prófum heldur skuli hún meðhöndluð sem hliðstæð hæfni (Sveinung, 2004). . Skráning og viðurkenning á reynslu og námi utan skólakerfis er eitt af lykilatriðum í færnibyltingunni (Kompetansereformen) í Noregi en með þessu átaki eru stjórnvöld að reyna að þróa kerfi sem gilda mun um allt land til staðfestingar og viðurkenningar á námi utan skólakerfis (OECD, 2003). Ályktun Stórþingsins um færnibyltinguna átti sér stað 1998. Áherslan á raun- færni er afleiðing af að aðilar atvinnulífsins höfðu greini- leg áhrif á þær greinargerðir og skýrslur sem lágu til grundvallar ákvörðun Stórþingsins. Nefnd sú, sem skipu- leggur útfærslu á færnibyltingunni, hefur sagt að mikil- vægasta hlutverk skjalfestingarkerfis sé að auka færni og möguleika þeirra starfsmanna sem sjaldan eða aldrei sýna áhuga á formlegri endurmenntun (Sveinung, 2004). Nefndin um hækkun menntastigsins (Kunskapslyfts- kommittén) í Svíþjóð var fyrst til að kynna hugmyndina um mat á raunfærni þar í landi árið 1996 (Andersson o.fl., 2003)). Svíar hafa byrjað þróun á almennu kerfi til að meta færni sem fólk hefur aflað sér utan hins hefðbundna skólakerfis. Þetta gera þeir í samvinnu við aðila atvinnu- lífsins. Þar hafa aðilar atvinnulífsins áhuga á hvernig hægt sé að nýta færnina í þágu atvinnulífsins meðan stjórnvöld hafa meiri áhuga á að auka sveigjanleika skóla- kerfisins m.a. með því að opna kerfið fyrir fólki af erlendum uppruna og fullorðnu fólki með mikla starfsreynslu ásamt því að lækka kostnað. Aðilar atvinnulífsins sækjast líka eftir jafnvægi í viðurkenningu á formlegu og óformlegu námi meðan stjórnvöld hafa meiri áhuga á að miða færni- mat við staðla úr formlega skólakerfinu (OECD, 2003). Í Danmörku er unnið að því í fullorðinsfræðsluátakinu (Adult Education Reform) að búa til samræmt viðurkenn- ingarkerfi vegna þjálfunar sem fer fram á vegum vinnu- markaðsráðuneytisins (OECD, 2003). Stjórnvöld í Danmörku gáfu út aðgerðaráætlun (Bedre uddannelser, handlings- plan) árið 2002 þar sem lögð er áhersla á að opna leiðir til að hægt sé að öðlast færni og inngönguskilyrði á mismunandi hátt þannig að það geti verið mismunur frá einum einstaklingi til annars. Fremur á að leggja áherslu á það sem einstaklingur kann en þau prófskírteini sem hann kann að hafa (Olsen, K. o.fl., 2004). Danska kerfinu er lýst sem hliðstæðu kerfi þar sem mat á raunfærni ásamt námstilboði til að ljúka námi er byggt upp við hliðina á annarri menntun (Andersson o.fl., 2003). Í Finnlandi voru settir upp hæfnirammar árið 1994. Kerfið í Finnlandi byggist á færniprófum þar sem ekki á að skipta máli hvernig færninnar eða þekkingarinnar hefur verið aflað. Þrátt fyrir að eitt af markmiðunum með þessu kerfi hafi verið að viðurkenna færni fullorðinna með langa starfsreynslu hefur reyndin orðið sú að það er einkum ungt fólk sem sækist eftir staðfestingu á hæfni sinni (OECD, 2003). Prófin standa yfir frá þremur dögum til tveggja vikna og fer það eftir því hvaða grein er um að ræða. Prófað er við eins raunverulegar aðstæður og kostur er og sem næst eðlilegum starfsaðstæðum. Prófin fara oft fram við raunverulegar starfsaðstæður. Undirbúningur getur farið fram einstaklingsbundinn hátt (Esnal, 2000). Finnska kerfinu er hvorki hægt að lýsa sem hliðstæðu né samhæfðu meðan þróunin í Noregi, Svíþjóð og Íslandi virðist vera í áttina að samhæfðu kerfi þar sem mat á raunfærni verður hluti af því menntakerfi sem fyrir er (Andersson o.fl., 2003). Enn ein leiðin, sem stjórnvöld í nokkrum löndum hafa farið, er að nálgast nám fullorðinna á heildrænan hátt með því að fella alla menntun formlega sem óformlega

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.