Gátt


Gátt - 2004, Side 37

Gátt - 2004, Side 37
37 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S ingar færnimöppum sínum í maí og júní 2004. Fram að þessu hafa 220 manns lokið við færnimöppur sínar með stuðningi Raunfærnimiðstöðvarinnar. Mat á námskeiðum í framhaldsskólanum Matið er unnið af skipuleggjendum náms sem eru ráðnir af Raunfærnimiðstöðinni. Eitt mikilvægasta skref mats- ferlisins er að setja upp skilyrði fyrir alhliða mati á færni einstaklingsins. Aðferð okkar byggist á þeirri þekkingarsýn að nám sé sífellt ferli, tengt kringumstæðum og umhverfi fólks. Þetta hefur í för með sér að það nám, sem fer fram utan hins formlega menntakerfis, er tekið gilt. Samkvæmt því á matið að fara fram undir eins líkum kringumstæðum og námið, þ.e.a.s. fyrst og fremst á vinnustöðunum. Á vinnustöðunum eru meðdómarar, sérstaklega valdir úr hópi starfsfólks viðkomandi vinnustaðar, sem hafa fengið tveggja daga þjálfun fyrir þetta verkefni. Mat á fræðilegum hluta þess sem meta á fer fram hjá þeim sem bjóða upp á menntun á viðkomandi sviði. Oftast er ekki þörf á frekari menntun. Komi það í ljós er mikilvægt að sú menntun sé virkilega aðlöguð þörfum einstaklingsins og taki aðeins til þeirra þátta sem ekki fengust metnir. Sú aðlögun gerir miklar kröfur til þess sem skipuleggur menntunina. Þar sem hrein fjarkennsla hentar í flestum tilfellum ekki markhópnum verður kennslan að fara fram með fjölbreyttu úrvali hefðbundinna kennslustunda, einstaklingsleiðsögn, stýrðri hópvinnu, sjálfstæðri vinnu, námsheimsóknum o.s.frv. Mat á vinnustöðum miðað við starfs lýs ingar Eins og áður hefur verið bent á höfum við komist að því að nauðsynlegt er að þróa núverandi aðferðir og bæta við fleiri matsskilyrðum sem hæfa betur breiðari markhópi. Þetta er sérstaklega áberandi við mat á nýaðfluttum innflytjendum, þar kemur í ljós að þeir hafa starfsreynslu sem ekki er hægt að bera saman við neina starfsmenntun í framhaldsskólanum. Meira að segja skráninguna þarf að bæta með fleiri tegundum af staðfestingum á raunfærni eða vottorðum. Í Málmey er þess vegna hafin þróunarvinna á aðferðum sem eiga rætur í atvinnulífinu og í störfum sem unnin eru á mismunandi vinnustöðum. Matið er gert út frá sérstökum vinnustaðagreiningum sem hafa verið framkvæmdar á vinnustöðunum. Til þess að hægt sé að framkvæma slíkt mat eftir aðferð- um, sem uppfylla allar gæðakröfur, er nauðsynlegt að fá fulltrúa atvinnuveganna bæði á sveitar- og landstjórnar- stigi til þess að skilgreina skilyrði samkvæmt kröfum greinanna og til þess að móta vottorð sem verða viðurkennd víða, ekki aðeins stað- og svæðisbundið. Með styrk frá ESF-ráðinu til þessa verkefnis mun vinnan beinast að því að uppfylla gæðakröfurnar. Semja verður verkferla til þess að einnig verði hægt að nota þetta mat til grundvallar á mati á námskeiðum og skírteinum framhaldsskólans. Færnimappan Kortlagning á þekkingu og færni einstaklinga er gerð aftur og aftur og við mismunandi aðstæður, á Vinnu- miðluninni, Upplýsinga-/ráðgjafamiðstöðinni, í fullorðins- fræðslunni og við kynningarstarf fyrir nýaðflutta nýbúa o.s.frv. Þar sem slík kortlagning er oft fremur umfangs- mikil gæti í þessu samhengi verið mikilvægt að gera nákvæmari lýsingu á þekkingu og færni í færnimöppu. Sú lýsing verður að vera svo nákvæm að hún gefi greinilega mynd af þekkingu og færni einstaklingsins með það að markmiði að geta byggt viðeigandi áætlanir á og komast hjá því að einstaklingurinn þurfi að endurtaka sögu sína við margar mismunandi aðstæður. Eftir þörfum ætti fagmaður að geta staðfest starfsfærni með t.d. viðtölum sem fylgt væri eftir með verklegum þáttum og gefið út vottorð. Færnimappa, sem gerð er á þennan hátt, myndar

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.