Gátt - 2004, Side 61
61
Verksmiðjur þutu upp og mennta þurfti alþýðuna til að
gegna nýjum störfum. Skólinn var skipulagður með verk-
smiðju að fyrirmynd, börnin voru hráefnið á færibandinu
og markmiðið að afgreiða eins marga nemendur og unnt
var á sem skemmstum tíma og með eins litlum tilkostnaði
og hægt var. Nemendum var hópað saman eftir aldri í
kennslustofur þar sem allir áttu að læra það sama á sama
tíma. Lestur, skrift og reikningur voru grunnfögin, síðan
bættust fleiri námsgreinar við. Árangurinn var metinn
eftir útkomu á skriflegum prófum sem allir tóku á sama
tíma. Hvaða hæfileika var verið að leggja rækt við? Fyrst
og fremst lestur og getu til að læra á bókina. Sannarlega
mikilvægan hæfileika en þessi áhersla leiddi fljótt til þess
að nemendur voru flokkaðir í gæðaflokka eftir getu þeirra
til að ná tökum á bóklegu námi. Fyrir rétt hundrað árum
var búið til sérstakt próf til að mæla þessa getu og var
það gert að beiðni franskra menntamálayfirvalda.
Tilgangurinn var að greina sem fyrst þá nemendur sem
þurftu á sérstakri aðstoð að halda til að ná settum náms-
markmiðum. Þetta var fyrsta greindarprófið og frá þeim
tíma hafa hæfileikar barna verið metnir eftir getu til
bóknáms. Greindarprófin urðu fleiri en beindust öll að
sama marki. Sterk tengsl eru á milli greindarvísitölu og
námsárangurs enda verið að mæla sömu eiginleika. Hins
vegar hafa rannsóknir sýnt að lítil tengsl eru á milli
greindarvísitölu og velgengi í lífi og starfi (Goleman, 1995:
34-41). Hugtakið greind hefur löngum verið umdeilt og
margar skilgreiningar settar fram. Margir hafa dregið í
efa að hægt væri að mæla hæfileika mannsins á skriflegu
prófi. Hvernig á að mæla þá a sem eru skapandi, sem allt
leikur í höndunum á, sem leysa vandamál á raunhæfan
hátt?
Það er gömul hefð fyrir því að hafa orðið greind alltaf í
eintölu þótt enginn viti fyrir víst hvers vegna það er.
Hæfileikar mannsins eru þó marghátta og þeir hafa nýst
við að þróa tækni og þekkingu áfram þannig að við búum
nú í tækni- og upplýsingasamfélagi sem gerir aðrar kröfur
en iðnaðarsamfélagið gerði. Skólakerfið hefur samt lítið
sem ekkert breyst. Börnum er enn hópað saman eftir
aldri í kennslustofur þar sem þau
eiga að sitja á stólum meirihluta
dagsins og hafa hljóð. Innra starf
margra skóla hefur þó breyst til hins
betra – þótt kerfið sjálft hafi staðið í
stað. Tveir ágætir fræðimenn, Ted
McCain og Ian Jukes, líkja því við
gamla lest þar sem hver vagn táknar
ákveðna námsgrein. Sífellt er nýjum
vögnum bætt við og nú er kominn
einn fyrir upplýsingatækni. Hann rúll-
ar áfram eins og hinir en hefur lítil
áhrif á innihald hinna vagnanna. Þeir
félagar benda á að á sama tíma sé
uppbyggingu annarra stofnanna og fyrirtækja gjörbreytt
og vinnubrögðum einnig. Þeir bera saman nútímaskrif-
stofu og skólastofu og taka dæmi um fólk sem hætti skrif-
stofuvinnu fyrir fimmtán árum og kemur svo aftur á fyrri
vinnustað sinn sem hefur gjörbreyst. Sama fólk heim-
sækir gamla skólann sinn og við því blasir gamalkunnugt
umhverfi (Ted McCain og Ian Jukes. 2001).
Á síðustu áratugum hefur rannsóknum á starfsemi
mannsheilans fleygt fram og í kjölfarið hafa komið fram
nýjar kenningar um mannlega hæfileika. Ein af þeim
kenningum, sem vakið hefur mikla athygli, er kenning
Howards Gardner um að greind væri ekki einn þáttur í
hugarstarfi heldur margir. Gardner var ekki sá fyrsti né
eini til að setja fram hugmyndir um að greind væri fjöl-
breytt. En hann var fyrstur til að rjúfa hina gömlu málhefð
og setja orðið greind í fleirtölu. Gardner er þroskasál-
fræðingur og taugasálfræðingur að mennt. Rannsóknir
hans hafa einkum verið á tveimur sviðum, annars vegar á
þroska barna, einkum í tengslum við listir, og hins vegar
á heilasködduðu fólki. Árið 1979 hóf hann rannsókn á
möguleikum mannsins, hvers er maðurinn megnugur?
Hann leitaði víða fanga utan sálfræðinnar, s.s. í þróunar-
sögu mannsins, mannfræði, heimspeki, bókmenntum,
sögu, listgreinum og heilarannsóknum. Niðurstöður
rannsóknar sinna birti hann í bókinni Frames of Mind eða
Erla Kristjánsdóttur
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S