Gátt - 2004, Síða 62
62
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
Rammar hugans sem kom út 1983. Þar hélt hann því fram
að maðurinn búi yfir a.m.k. sjö mismunandi greindum:
málgreind, rök- og stærðfræðigreind, rýmisgreind,
líkams- og hreyfigreind, tónlistargreind, samskiptagreind,
sjálfsþekkingargreind og seinna bætti hann þeirri áttundu
við, umhverfisgreind. Hann setti hæfileikum mannsins
ákveðin skilyrði sem þeir þurftu að uppfylla til að kallast
greind, s.s staðsetningu í heila, þróunarsögu og þroska-
ferli. Gardner skilgreinir greind sem líffræðilega og sál-
fræðilega getu til að ráða fram úr málum, setja fram ný
úrlausnarefni og skapa afurðir sem metnar eru í
samfélaginu (Gardner, 1999). Hann telur að allir búi yfir
þessum greindum og að allir geti þróað þær á viðunandi
getustig ef engir líffræðilegir þættir hamla því.
Greindirnar vinna saman á flókinn hátt og það er hægt að
vera greindur í hverri greind á mismunandi hátt, til dæmis
getur ólæs ur sýnt sterka málgreind þegar hann segir
sögur. Engir tveir ar hafa sama greindaprófíl, engir tveir
heilar eru nákvæmlega eins á sama hátt og engir tveir
einstaklingar eru nákvæmlega eins í útliti. Það gefur því
augaleið að það ber takmarkaðan árangur að kenna
öllum það sama á sama tíma og á sama hátt. Gardner var
þó ekki með skólakerfið sérstaklega í huga þegar hann
setti kenningu sína fram. Hann var að setja fram kenn-
ingu um mannshugann fyrir aðra á hans fræðasviði. Það
kom honum á óvart hve kenningin féll í góðan jarðveg hjá
kennurum og öðrum skólamönnum. En hvers vegna gerði
hún það? Vegna þess að hún kom heim og saman við
reynslu og þekkingu kennara sem hafa verið og eru enn
með allt litróf mannlegra hæfileika í skólastofunni og vita
að samræmd próf mæla einungis lítinn hluta þeirra.
Fjölmargir skólar í Bandaríkjunum og í öðrum löndum
hafa nýtt sér fjölgreindakenninguna til að koma betur til
móts við nemendur sína og vekja áhuga þeirra á námi.
Gardner bendir á að allar greindirnar séu manninum
mikilvægar og því sé ekki rétt að meta sumar þeirra meira
en aðrar. Hann hefur gagnrýnt skólakerfið harkalega fyrir
að meta einungis þá hæfileika eða greindir nemenda sem
hægt er að meta á skriflegum prófum, þ.e. málgreind og
rök- og stærðfræðigreind. Skólakerfi sem á að „búa
nemendur undir líf og starf“ þarf að veita reynslu sem
tendrar og virkjar allar greindirnar en lamar þær ekki.
Fjölmargir fullorðnir deila þeirri reynslu að hafa útskrifast
úr skyldunámi með sterka vanmetakennd og talið sig
heimska þar sem ekki tókst að vekja áhuga þeirra á námi
og árangur á prófum eftir því. Reynsla þeirra af skóla
felur í sér minningar af löngum setum með bækur, blöð og
skriffæri fyrir framan sig. Í fæstum bókanna var að finna
eitthvað sem tengdist lífi þeirra og áhuga. Tímaskortur og
vinnubrögð skólans kröfðust utanbókarlærdóms og
nemendum gafst lítill kostur á að brjóta viðfangsefni til
mergjar eða tileinka sér þekkingu á annan hátt. Sem
betur fer hefur maðurinn meðfædda hæfileika til að læra,
allt frá fæðingu til æviloka. Honum er í blóð borið að leita
þekkingar til að leysa mál og búa sér í haginn. Margir
þeirra sem biðu skipbrot í skóla komu undir sig fótunum í
atvinnulífinu og fengu tækifæri til að láta reyna á
margvíslega hæfileika sína og greindir. Aðrir voru ekki
eins heppnir, fengu ekki tækifæri til að uppgötva getu
sína á öðrum sviðum og vanmetakenndin fylgdi þeim æ
síðan.
Í tækni- og upplýsingasamfélagi eru örar breytingar á
starfsgreinum og vinnubrögðum. Símenntun er því orðin
fastur liður í atvinnulífinu. Í fullorðinsfræðslu og starfs-
mannaþróun er leitað leiða til að ná sem bestum árangri.
Fólk á öllum aldri þarf að læra á tölvur og ná tökum á
öðrum tækninýjungum. Þá reynir nú mun meira á sam-
skiptahæfni og frumkvæði á atvinnumarkaðinum en áður.
Í Bandríkjunum hafa verið gerðar tilraunir þar sem fjöl-
greindakenningin var höfð að leiðarljósi (sjá t.d.
www.accelerated-learning.net/multiple.htm og Viens og
Kallenbach, 2004). Markmiðið er að höfða til mismunandi
greinda, nýta sterkar hliðar einstaklinga í námi og styrkja
þær veikari. Gardner hefur ávallt tengt greindirnar við
mismunandi starfssvið samfélagsins og ólík hlutverk sem
þjóðfélagsþegnar gegna. Hann tekur gjarnan dæmi af
heimsþekktum einstaklingum með afburðahæfileika í
mismunandi greindum.
Hér fylgir stutt lýsing á fjölgreindum Gardners og