Gátt - 2004, Síða 87
87
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
Í þessu greinarkorni er ætlunin að gera, á nokkuð
snaggaralegan hátt, grein fyrir hvaða hópar launafólks
eru innan Eflingar - stéttarfélags m.t.t. starfssviða eða
skiptingu milli starfsgreina. Þannig vil ég freista þess að
varpa einhverju ljósi á markhóp FA eins og hann birtist í
einu stærsta stéttarfélaginu á íslenskum vinnumarkaði.
Strax skal tekið fram að hér verður ekki lagst í djúpar
skilgreiningar á einstökum hópum né gengið langt í
fræðilegri skilgreiningu á störfum eða. Frekar er
ætlunin að gera gróflega grein fyrir því hvernig félags-
menn greinast í hópa í hinu daglega starfi hjá stéttar-
félaginu enda er það að mínu mati heppilegri leið þegar
líta skal til mögulegs framboðs og þróunar á nám-
skeiðum fyrir hópinn.
Efling - stéttarfélag er samansett úr fimm stéttarfélögum
sem áður störfuðu hvert á sínu sviði. Þar var um að ræða
Dagsbrún þar sem voru almennir verkamenn, hafnar-
verkamenn, starfsmenn hjá Reykjavíkurborg, starfsmenn
við flutninga, í fiskvinnslu, á bensínstöðvum og víðar.
Framsókn var kvennafélag með starfsmenn við fisk-
vinnslu og ræstingar ásamt starfsmönnum í mötuneytum
og á fleiri stöðum. Þá voru í Sókn opinberir starfsmenn á
spítölum, leikskólum og hjá félagsþjónustunni. Í Félagi
starfsfólks í veitingahúsum voru starfsmenn veitinga- og
gistihúsa og Iðja, félag verksmiðjufólks, var með starfs-
menn í iðnaðarframleiðslu og saumaskap í sínum röðum.
Af ofangreindri upptalningu má sjá að félagsmenn innan
Eflingar koma úr mjög mismunandi starfsumhverfi, svo að
segja úr öllum geirum vinnumarkaðarins nema verslun
og þjónustu. Það liggur því ljóst fyrir að vinna við skipu-
lagningu og þróun á starfsmenntun fyrir félagsmenn er
mikil en um leið fjölbreytt og margbreytileg. Það má
þannig fullyrða að Efling - stéttarfélag gæti séð Fræðslu-
miðstöð atvinnulífsins fyrir verkefnum svo að segja um
ókomna framtíð.
En svo litið sé á grófa skiptingu félagsins eins og hún lítur
út nú eru opinberir starfsmenn fjölmennasti hópurinn
innan félagsins. Hjá Reykjavíkurborg starfa um 2.700
félagsmenn. Þar er um að ræða starfsmenn Leikskóla
Reykjavíkur, Félagsþjónustunnar í
Reykjavík, skóla og annarra stofn-
ana. Þá eru félagsmenn hjá ríkinu um
1.000, aðallega starfsmenn Land-
spítala - háskólasjúkrahúss. Starfs-
menn hjúkrunarheimila eru einnig
fjölmennur hópur sem telur um 1.350
félagsmenn. Fjölmennasti hópurinn á
almennum markaði eru starfsmenn
hótela og veitingahúsa, alls um 2.400.
Það skal strax tekið fram að hluti
þessa hóps er í hlutastörfum.
Matvæla- og drykkjariðnaður telur
um 1.000 félagsmenn og önnur sérhæfð þjónusta, s.s. á
bensínstöðvum, hjá öryggisfyrirtækjum og á fleiri stöðum
telur einnig um 1.000 félagsmenn. Þá er byggingariðn-
aður nokkuð fjölmennur, telur rúmlega 900 félagsmenn
og félagsmenn við ræstingar, bæði hjá einstökum
fyrirtækjum en einnig hjá sérhæfðum ræstingar-
fyrirtækjum, eru um 500. Félagsmenn við fiskvinnslu eru
nálægt 300.
Við fámennari greinar, sem telja á milli 100-200 félags-
menn, vinna starfsmenn við hafnarvinnu, pappírs- og
prentiðnað, textíliðnað, efnaiðnað, lyfjaiðnað og
veiðarfæragerð. Þá eru starfsmenn í mötuneytum ýmissa
fyrirtækja og stofnana um 100.
Til enn fámennari hópa, með 50-100 félagsmenn, teljast
starfsmenn við málmvinnslu ýmiss konar, endurvinnslu,
starfsmenn símafyrirtækja og starfsmenn í gler- og
steinefnaiðnaði.
Ofangreind skipting félagsins eftir starfssviðum er alls
ekki tæmandi eða endanleg en gefur samt ákveðna mynd
af hverjir félagsmenn eru. Þegar þessi skipting er skoðuð
og um leið haft í huga að stór hluti félagsmanna er í
fyrirtækjum með 1-10 starfsmenn er ljóst að þó nokkur
vinna er við að greina og setja saman framboð af
viðeigandi starfsmenntun fyrir alla þessa hópa. Þannig er
nauðsynlegt að leggja áherslu á sveigjanleika í framboði
U M M A R K H Ó P I N N
D R Ö G A Ð G R E I N I N G U Á F É L A G S M Ö N N U M Í
E F L I N G U - S T É T T A R F É L A G I
Garðar Vilhjálmsson