Gátt


Gátt - 2004, Síða 88

Gátt - 2004, Síða 88
88 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S Markhópar Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins eru nýbúar og fólk á vinnumarkaði sem hefur litla formlega grunnmenntun. Til vinnuaflsins teljast íslenskir og erlendir ríkisborg- arar á aldrinum 16-74 ára, bæði þeir sem eru í starfi og þeir sem eru atvinnulausir. Starfandi fólk er fólk á aldrinum 16-74 ára sem ráðið var til vinnu í eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku vinnu- markaðskönnunar Hagstofu Íslands. Tæp 40% starfandi búa utan höfuðborgar-svæðisins. Fæstir starfandi búa á Vestfjörðum. Sé miðað við meðaltölur áranna 2000-2002 hafa 42% vinnuaflsins, um 67.800 manns, grunnmenntun, starfs- námskeið eða gagnfræðaskólanám en um 63% atvinnu- lausra hafa þá skólagöngu að baki. Sé miðað við starf- andi fólk hefur 41%, um 64.500 manns, grunnmenntun, U M M A R K H Ó P A F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð V A R A T V I N - N U L Í F S I N S á menntun og velta upp möguleikum á einstaklings- miðaðri fræðslu í bland við klassíska bekkjarhópa í kennslustundum. Þá er einnig nauðsynlegt að þróa áfram fjarnámsmöguleika, hvort heldur er með beinu sambandi við kennara og aðra nemendur í tölvupósti eða á spjall- torgi eða með vefbundnu námi. Þetta einkenni íslensks vinnumarkaðar - smáfyrirtækin - kallar einnig á náið samstarf fræðsluaðilanna og fyrir- tækjanna sjálfra. Það er reynsla okkar hjá Eflingu að ef mögulega eigi að ná til þeirra félagsmanna, sem starfa hjá smærri fyrirtækjum, er nauðsynlegt að vera búinn að kynna námið rækilega fyrir viðkomandi fyrirtæki og jafn- vel vera búinn að bjóða þeim að koma að mótun þess frá byrjun. Þá er einnig heppilegt að hafa kynnt fyrir milli- stjórnendum þá fræðslu sem stefnt er að en þeir eru oft ráðandi aðilar um það hvort einstaka almennir starfs- menn eiga kosta á að sækja sér fræðslu eða ekki. Annar þáttur, sem nauðsynlegt er að taka tillit til í greiningu á félagsmönnum Eflingar vegna starfsmennt- unar þeirra, er fjöldi félagsmanna af erlendu bergi brotinn. Í dag eru í Eflingu um 2000 félagsmenn með erlent ríkisfang frá 98 þjóðríkjum. Af fjölmennustu hópunum má nefna að um 270 félagar koma frá Póllandi, rúmlega 250 frá Filipseyjum, tæplega 200 frá Taílandi, um 150 frá fyrrverandi ríkjum Júgóslavíu og litlu færri frá Litháen. Tæplega 100 koma frá Víetnam, Danir eru um 60, Kínverjar rúmlega 50, frá Portúgal og Bandaríkjum koma 40 félagsmenn og Rússlandi milli 35 og 40. Hér er um að ræða u.þ.b. 12% félagsmanna Eflingar sem ekki hafa íslensku sem fyrsta tungumál og hafa þar að auki mjög misjafnan grunn til að byggja menntun sína hér á landi á. Ekki þarf því aðeins að marka stefnu í íslenskukennslu fyrir þennan hóp heldur einnig að taka tillit til mismunandi menningar og hefða við aðlögun að íslenskum vinnu- markaði og þróun námsframboðs fyrir þennan hóp. Ljóst er að verkefnin við greiningu og skipulagningu á námsframboði fyrir félagsmenn Eflingar eru næg. Þetta mun verða sameiginlegt verkefni Eflingar og Starfsafls, fræðslusjóðs Flóabandalagsins og atvinnurekenda á komandi misserum. Í þeirri vinnu munum við óska eftir samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins en á þá samvinnu er þegar komin góð reynsla - og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs. Garðar Vilhjálmsson, sviðsstjóri fræðslumála hjá Eflingu – stéttarfélagi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.