Gátt


Gátt - 2004, Side 92

Gátt - 2004, Side 92
92 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S Grunnmenntun og starfsnámskeið/gagnfræðapróf er skilgreint sem A. barnapróf eða þaðan af minni menntun. B. unglingapróf, grunnskólapróf eða miðskólapróf, þ.m.t. landspróf. C. gagnfræðapróf eða eins árs nám úr framhaldsdeild gagnfræðaskóla. D. starfsmenntun á námskeiðum sem nema 100 kennslustundum hið minnsta en minna en einu skólaári, auk grunnmenntunar. Framhaldsskólamenntun er skilgreind sem E. framhaldsmenntun sem jafngildir tveggja til fimm anna námi eftir grunnmenntun. F. framhaldsmenntun sem jafngildir a.m.k. þriggja ára námi eftir grunnmenntun. G. framhaldsmenntun eftir grunnmenntun, ótiltekin námslengd. Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar hafa 39% starfandi fólks á aldrinum 16-74 ára grunnmenntun eins og hún er skilgreind í liðum A-D. Sé framhaldsskóla- menntun samkvæmt E-lið bætt við verður hópurinn 45% af starfandi fólki. Starfandi eft i r menntun og landssvæði Ef niðurstöðum um menntun starfandi er skipt niður á landssvæði kemur í ljós að 41% starfandi á landinu öllu hafa ekki framhaldsskólamenntun, 35% á höfuðborgar- svæðinu en 62% á Norðurlandi vestra en hlutfall þeirra sem ekki hafa framhaldsskólamenntun er hæst þar. Þetta jafngildir u.þ.b. 3.100 manns á Norðurlandi vestra, 34.300 manns á höfuðborgar-svæðinu en 64.900 manns á land- inu öllu. Hafa ber í huga að tölur vinnu-markaðskönnunar Hagstofunnar, sem eru greindar í jafn smáar einingar eins og nám starfandi fólks á landssvæði, eru sumar hverjar afar óáreiðanlegar vegna þess hve fáir einstakl- ingar eru að baki tölunum. Hæsta Alls Höfuðb- Vestl. Vestf. Norðl Norðl Austl. Suðurl. Suðn. prófgráða svæði vestra eystra Grunnmenntun 41.400 22.100 2.600 1.700 2.200 3.900 1.900 3.800 3.200 Starfsnámskeið/ gagnfræðapróf 23.500 12.200 1.300 1.000 900* 2.400 1.600 2.300 1.700 Hlutfallstölur 41% 35% 49% 57% 62% 44% 56% 50% 54% Heildartölur 157.400 97.700 8.000 4.700 5.000 14.200 6.200 12.200 9.000 Heimild: Hagstofa Íslands * Frávikshlutfall yfir 20% Hæsta prófgráða % Barnapróf eða þaðan af minni menntun. . . . 2% Unglingapróf, grunnskólapróf eða miðskólapróf, þ.m.t. landspróf. . . . . . . . . 22% Gagnfræðapróf eða eins árs nám úr framhaldsdeild gagnfræðaskóla. . . . . . . . 6% Starfsmenntun á námskeiðum sem nema 100 kennslustundum hið minnsta en minna en einu skólaári, auk grunnmenntunar. . . . 9% Framhaldsmenntun sem jafngildir tveggja til fimm anna námi eftir grunnmenntun. . . . 6% Samtals 45% Heimild: Hagstofa Íslands

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.