Læknaneminn - 01.12.1980, Side 11
A B C
Mjnd 5. a) Sex ára gömiil stúlka meS epiglottitis við komu. á sjúkrahúsið. Hún hafði haft háan hita, hálssærindi og vaxandi
andfyyngsli undanfarnar 18 klukkustundir. b) Sólarhring síðar. c) Þremur sólarhringum síðar.
ORSAKIR
Hemofilus influenzae typa B er nær undantekning-
arlaust valdur að Epiglottitis acuta. Ræktanir frá
hálsi og epiglottis hafa í mörgum tilfellum sýnt h.
influenzae typa B. Það er talið að við epiglottitis
verði mjög kröftug bakteriell invasion í epiglottis,
sem síðan leiði til bólgusvars og sekunders ödems.
H. influenzae má einnig mjög oft rækta úr blóði.
Barker (1979) tók saman 11 rannsóknir um þetta og
í öllum tilfellum kom í Ljós að h. influenzae ræktað-
ist oftar úr blóði en frá bálsi eða epiglottis. Af þessu
hefur sú hugmynd komið fram að e. t. v. sé um að
ræða antigen-antibody reaction. Þessu til stuðnings
hefur verið bent á að epiglottitis er algengastur í
börnum eldri en 2-3ja ára. H. influenzae meningitar
eru hins vegar algengir í Ljörnum undir 2—ja ára
aldri, en sjaldgæfir í eldri börnum. Þetta mætti skýra
með því að sensibilisering yrði í æsku en staðbundið
svar við síðari sýkingu.
Þetta er þó langt frá því að vera sannað og er hér
sett fram meira til gamans. Eftir stendur þó að ör-
uggt er að h. influenzae veldur epiglottitis þó svo
mekanisminn sé e. t. v. ekki þekktur að fullu.
EINKENNI
Flest börn með epiglottitis eru á aldrinum 2-6
ára. Sjúkdómurinn er einnig þekktur hjá fullorðn-
um, en þá er sjúkdómsmyndin önnur.
Yenjulega byrja einkenni með særindum í hálsi
og kvefeinkennum. A aðeins nokkrum klst. getur
barnið síðan orðið fárveikt með háan hita og á erf-
itt með að kyngja vegna hálssærinda. Oftast getur
barnið engu kyngt og munnvatn rennur úr Lráðum
munnvikum. Ondunarerfiðleikar eru nær alltaf fyrir
hendi með innöndunarstridor og oftast er einnig út-
öndunarsnörl. Inndrættir suprasternalt, supraclavi-
culert og intercostalt sj ást oft.
Einkenni liypoxiu, eins og þeim var áður lýst, eru
venjulega fyrir hendi, í það minnsta að hluta.
Barnið hefur „toxiskt“ útlit, er með tachycardiu,
tachypnae og hita, venjulega yfir 38,5. Blóðræktan-
ir eru oft positivar fyrir h. influenzae. Blóðmynd
sýnir leucocytosis með vinstri hneigð. (Tafla 6.)
Oft hafa þessi Lrörn dæmigert útlit. Þau eru veik-
indaleg og sitja uppi með opinn munn og munnvatn
rennur úr munnvikum (mynd 5a). Aldrei skyldi
reyna að leggja þessi börn niður því þau hafa sjálf
fundið sér þá stöðu sem leyfir maximal loftflæði.
LÆKNANEMINN
9