Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1980, Blaðsíða 12

Læknaneminn - 01.12.1980, Blaðsíða 12
Mynd 6. Lögun epiglottis viS: a) eSlilegar aðstœður, b) epi- glottitls. Rétt greining er algjört skilyrði réttrar meðferðar og hana er aðeins hægt að gera á einn hátt, með því að skoða epiglottis. Sé um epiglottitis að ræða sést í hálsspegli, eða við að þrýsta varlega niður tungu- rótinni með tunguspaða, eldrauður og bólginn epi- glottis. Er líkast því sem eldrautt kirsulter stingi sér upp fyrir tungurótina. Eftir þetta er aldrei neinn vafi á greiningu. (Mynd 6.) Skoðun eins og hér á undan er lýst má þó aldrei framkvæma nema að hægt sé að intubera barnið tafarlaust lokist öndunarvegir. Hætta er nefnilega á að hálsskoðun geti valdið larynxspösmum og acut lokun öndunarvega. Ef grunur er um epiglottitis skyldi því strax kalla til háls-, nef- og eyrnalækni eða barnalækni sem getur framkvæmt skoðunina að svæfingarlækni viðstöddum. MEÐFERÐ A sjúkrahúsi 011 börn með epiglottitis skal leggja á sjúkrahús. Fyrsta stig meðferðar er að tryggja opna öndunar- vegi. Þetta má gera á tvennan hátt, með tracheo- tomiu eða intubation. Áður fyrr var oftast gripið til tracheotomiu, en nú hin síðari ár er langtímaintuba- tion nær alltaf notuð. Tracheotomiu getur þó stund- um þurft að grípa til ef ekki er hægt að intubera eða séu intubationsáhöld ekki fyrir hendi. Skal þá gera coniotomiu. Antibiotika Strax og opnir loftvegir hafa verið tryggðir skal hefja meðhöndlun með antibiotika. Flestir h. influ- enzea stofnar eru næmir fyrir ampicillini. Nú síðari ár hafa þó komið fram í auknum mæli ampicillin resistant stofnar. Á þetta sérstaklega við um Banda- ríkin þar sem tíðni slíkra stofna er um 15%. H. in- fluenzea er hins vegar nær undantekningarlaust næmur fyrir kloramphenikoli, sem getur í einstaka tilfellum haft slæmar aukaverkanir. Á Islandi er til- tölulega lítið um ampicillin resistant stofna. Það virðist því rökrétt að byrja meðhöndlun með ampi- cillini en skipta yfir í kloramphenikol leiði ræktun í Ijós ampicillin ónæmi. Á mörgum stöðum erlendis er kloramphenikol fyrsta lyf og sums staðar í Banda- ríkjunum er jafnvel byrjað með bæði klorampheni- kol og ampicillin. (Tafla 7.) Skammtur ampicillins er 200-4.00 mg/kg á sólar- hring i.v. Skal þá gefa hálfan dagskammtinn við fyrstu gjöf. Skammtur kloramphenikols er 100 mg/ kg á sólarhring. Sterar Ekki eru menn fremur en fyrri daginn sammála um notagildi stera við epiglottitis. Flestar Banda- rískar heimildir telja stera contraindiceraða í öllum tilfellum. Virðist það vera rökrétt því um er að ræða bakteríusýkingu og oft sepsis. Sterar ættu því að auka hættu á frekari dreifingu sýkingarinnar. Sé hins vegar sú lilgáta rétt, sem nefnd var hér að fram- an um að e. t. v. sé að nokkru leyti um lokal antigen- antibody svörun að ræða, ættu sterar að minnka þá svörun og draga þannig úr bólgu. Einnig er spurning hvort bólgueyðandi áhrif ster- anna geti ekki komið að einhverju gagni, en þá veg- ur þyngra hættan á dreifingu sýkingarinnar. Þó má mæla með notkun stera í héraði þar sem ekki eru að- stæður til intubationar og senda þarf barnið á sjúkrahús um langan veg. Má þá gefa 100-200 mg kortison i.m. auk ampicillins og senda barnið af stað. Læknir skyldi þó undir öllum kringumstæðum fylgja barninu á sjúkrahús. 10 LÆKNANEMINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.