Læknaneminn - 01.12.1980, Síða 35
Miðgeisli
fókus. ÞaS getur verið nauðsynlegt að sjá bæði
lungnafeltin eins og þau leggja sig, t. d. við óljóst
sj úkdómsástand eða metastasaleit í lungum. Við tök-
um þá frontalsneiðar á stórar filmur 35,6X35,6 cm
og fyrst prufumynd sem næst miðplani (miðgeisli 3"
fyrir neðan hóst) og keyrum síðan í gegn með l j/2~
2 cm bili eftir atvikum, sem lágmark tökum við
4 sneiðar: eina í aftara rifjaplani, eina í aftara
hilusplani, eina í miðhilusplani með aðalberkjum og
æðum og eina í framplani. Það fer síðan eftir því,
hvað fram hefur komið við sneiðarnar, hvort við
látum hér staðar numið eða sneiðum frekar og tök-
um e. t. v. vel afblennaðar sérsneiðar í gegnum til-
tekið mein eða vafasaman blett eða skugga, sem
fram hefur komið. Yfirlitsmyndir af lungum verða
að sjálfsögðu alltaf að liggja fyrir áður en byrjað
er á sneiðmyndatöku. Það fer síðan eftir eðli, stærð
og staðsetningu meinsins hvað þétt þarf að sneiða
og hvort nauðsynlegt sé t. d. að sneiða í gegnum
aðalbronchusana, ef meinið vex inn í þá eða tekur
til hilusanna eða liggur aftur undir bak eða fram-
undir bringu. LateralsneiÖar getur þurft í slíkum til-
vikum eða jafnvel að sneiða rif eða bringubein,
þannig að margs er að gæta. Við tökum þá líka yfir-
leitt sneiðar á 24X30 cm filmustærð, jafnvel 18x 24
cm. Ef um frekar stórt mein er að ræða, 4-5 cm eða
stærra, duga )/2~l cnt bil á milli sneiða í gegnum
það, sé það minna eða allt ofan í 2 cm, getur þurft
5-3 mm bil og við enn minni mein eða undir 2 cm,
2 mm bil, jafnvel 1 mm bil í gegnum miðbik þess
til að sjá kölkun.
Þegar við erum að byrja að áætla sneiðmyndatök-
una getum við haft þetta okkur til leiðbeiningar og
set ég til skýringar myndir 5 og 6.
Frontalsneiðar: Við mælum fjarlægðina frá húð
baksins inn að miðju meinsins á yfirlitsmyndinni
(prófílnum) í cm og bætum við dýnuþykklinni;
prufumyndina tökum við í þeirri dýpt (14 cm).
Lateralsneiðar: Við mælum fjarlægðina frá
brjóstvegg á yfirlitsmyndinni (frontalnum) inn að
miðju meinsins í cm og bætum við dýnuþykktinni;
prufumyndina tökum við í þeirri dýpt (7 cm).
Sjúklingurinn snýr veiku hliðinni niður og verið get-
ur að við þurfum að taka fleiri prufumyndir, t. d.
með 2,4 eða 6 cm fjarlægð frá upphaflegu sneiðinni
ofan að borði, því að hliðarsneiðarnar eru oft erf-
iðar.
Þegar um það er að ræða að sneiða þurfi bronc-
husuna sérstaklega, annað hvort af því að lungna-
myndin gefur tilefni til þess eða gangur sjúkdóms-
ins, t. d. ef um blóðspýting er að ræða eða grunur
um æxlisvöxt í berkjustofni, þá nægja okkur oftast
frontalsneiðar á 24x30 cm filmustærð (miðgeisli 3"
f. neðan hóst). Yfirleitt höfum við 1 cm bil milli
sneiða, en getum byrjað með 2 cm bili, ef um mjög
þykkan sjúkling er að ræða (25-30 cm). Þegar um
leit í mediastinum er að ræða notum við einnig 24
X30 kassettu (langsum, miðgeisli 2" fyrir neðan
hóst) og tökum gjarnan 3 prufumyndir 2,4 og 6 cm
framan við miðplanið. Siðan fer það eins og endra-
nær eftir atvikum hvað við keyrum þétt í gegn. í
mediastinum getum við reiknað með 6-8 cm þykkt
og keyrt með %-l cm bili, í bronchus með 3 cm
þykkt og keyrt með 3-5 cm bili. (Lítill maður er tal-
' Miðgeisli
LÆKNANEMINN
33