Læknaneminn - 01.12.1980, Síða 40
óyggjandi dóm: Frumurnar eru sléttar vöðvafrumur,
um margt frábrugðnar þeim frumum, sem eru uppi-
staða í miðhluta æðanna, ríkari af kyndikornum
(mitochondria), og frymisneti (endoplasmic reti-
culum), fátækari af aktin og myosin þráðum, en
sléttar vöðvafrumur samt.18 Því er um þetta fjölyrt,
að sléttar vöðvafrumur gegna aðalhlutverkum í flest-
um nýrri kenningum um æðakölkun.9’12’13 Verður
nánar vikið að því síðar, þegar fjallað verður um
einstakar kenningar. I þessu samhengi skal þess get-
ið, að sýnt hefur verið fram á, bæði in vivo og in
vitro, að sléttar vöðvafrumur hafa hæfni til þess að
mynda allar þær bandvefssameindir, sem í æðakölk-
un eru, kollagen, elastín og glýkósamínóglýkön (gly-
cosoaminoglycans-GAG).19,20’21 Er því mótsögn sú
úr sögunni, sem þótti mæla gegn þeirri skoðun, að
vöðvafrumur ættu hlut að máli í æðakölkun.
Bandvefur
Bandvefssameindir gegna mikilvægu hlutverki í
framvindu sjúkdómsins sjálfs svo og fylgikvillum
hans. Kollagenaukning í æðaveggnum er ein af or-
sökum þess, að æðaveggurinn verður stífur,22 sem
augljóslega hefur áhrif á lífeðlisfræði blóðrásarinn-
ar í heild, blóðþrýsting, viðnám o. s. frv., og er und-
irstrikað í hinni alþjóðlegu nafngift atheroicZerosw.
Vegna þess að kollagen hefur hvetjandi áhrif á blóð-
flögur (aggregation) og storkusameindir blóðsins,23
ber það a. m. k. nokkra ábyrgð á einum af skaðvæn-
legustu fylgikvillum æðakölkunar, blóðsegamyndun
(thrombosis). Einnig er líklegt, eins og síðar mun
frekar rætt, að hvetjandi áhrif á blóðflögur leiði til
frekari framvindu æðakölkunarinnar sjálfrar, þann-
ig að vítahringur myndast.13
Mikilvægi glýkósamínóglýkans (GAG) sameind-
anna varð enn frekar ljóst, þegar sýnt var fram á, að
þær binda kólesterólrík lipóprótein (LDL) 24’25,2C
og hafa því hugsanlega áhrif á magn þess kólesteróls
og kólesterólestra, sem safnast í æðavegginn við æða-
kölkun. I nýlegum kanínutilraunum var náin fylgni
milli magns GAG og upphleðslu fitu, þegar æðakölk-
un var hrundið af stað með áverka á æðaþel.27 GAG
sameindirnar virðast því líklegur tengiliður milli
fjölgunar sléttra vöðvafrumna í upphafi æðakölkun-
ar og þeirrar útfellingar fitu, sem síðar setur svo
mjög svip á meinsemdina.
Fita
Um langt skeið hefur athygli manna beinst að
þessum þriðja meginþætti æðakölkunar. Snemma á
árum var sýnt fram á, að kólesteról og kólesterólestr-
ar voru mest að magni.28 Á fyrstu stigum sjúkdóms-
ins verður mest fitusöfnun innan sléttra vöðva-
frumna í innlagi (intima) slagæðarinnar. Á síðari
stigum hleðst einnig upp kólesteról utan frumna
jafnframt því, sem magn kollagens og annarra band-
vefssameinda eykst.28 Skoskir vísindamenn hafa leitt
sterk rök að þeirri skoðun, að mestur hluti þeirra
fitusameinda, sem hleðst upp í æðakölkun eigi rót
sína að rekja til blóðsins, en myndist ekki innan æða-
veggjarins.28’30’31 Er talið, að fitusameindirnar
komist með einhverjum hætti í gegnum æðaþelið
inn í æðavegginn þar sem hluti þeirra ílendist. Verð-
ur síðar fjallað nánar um þá þætti, sem áhrif hafa á
feril fitusameinda, bæði inn í æðavegginn og út úr
honum aftur, en endanlegt fitumagn er augljóslega
lokaniðurstaðan úr þeirri jöfnu.
Æifaþelsávcrki
Allt frá dögum Virchows hefur áverki eða skemmd
í æðaþeli verið á dagskrá, sem hugsanlegt upphaf
æðakölkunar. Margar útgáfur af áverkakenningunni
hafa séð dagsins ljós og þjónað tilgangi sínum, sem
leiðarljós í tilraunastarfsemi.7’32 Vegur kenningar-
innar nú á dögum byggist á því, að slagæðaveggur,
sem hefur orðið fyrir æðaþelsáverka, einkum ef
hann er endurtekinn eða langvinnur, líkist mjög æða-
vegg á fyrstu stigum æðakölkunar, bæði þegar skoð-
að er með rafeindasmásjá og venjulegri Ijóssmá-
sjá.33 Ef sár myndast í æðaþelið með einhverjum
hætti, setjast blóðflögur í sárið, sem síðan grær
smám saman. En samtímis verður þykknun, nánast
örmyndun í innlagi slagæðarinnar vegna fjölgunar
sléttra vöðvafrumna, bandvefsmyndunar og fitu-
söfnunar, rétt eins og í æðakölkun. Ef æðin er látin
afski|italaus ganga þessar breytingar að mestu til
baka. Endurtekinn áverki leiðir hins vegar til enn
frekari innlagsþykknunar og svo koll af kolli. 34,35
Margs konar tilraunaaðstæður og fjölmargar teg-
undir tilraunadýra hafa leitt til svipaðrar niðurstöðu.
Skröpun æðaþels með kaþeter eða belg,11’34’30’37
þurrkun (desiccation), ónæmisárás,39 áhrif efna
38
LÆKNANEMINN