Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1980, Side 58

Læknaneminn - 01.12.1980, Side 58
PROSTAGLANDINS . ^ THROMBOXANES Cyclooxygenase COOH ARACHIDONIC ACID Lipoxygenase H 00H COOH H OH H OH LTB, H OH COOH hH 'S_ch2 5h11 I CHCONHCHzCOOH NHCO(CH2>2 CHCOOH nh2 Mynd 10. MyndunarferiU leukotrienes. GST: glutathione S-lransferase. GGTP: y-glutamyl transpeptidase. Stjórnun á PGEo framleiðslu er hægt að fá fram með því að beina prostaglandin efnaskiptum yfir á annað endaefni PGF2a, en það veldur ekki æða- víkkun og aulcnum útskilnaði í nýrum. Framleiðslu- hlutfall þessara tveggja efna stjórnast e. t. v. af kin- in. Annar mögulegur stjórnunarþáttur í þessu sam- bandi, sem nefndur hefur verið er hversu hratt bæði kinin og prostaglandin brotna niður. Galli í kallikrein-kinin-prostaglandin kerfinu er talinn geta valdið háþrýstingi. Komið hefur í ljós um 50% lækkun á kallikrein í þvagi ýmissa sjúklinga með alvarlegan 'háþrýsting. Einnig hafa tilraunir með prostaglandin efnaskipta inhibitora, eins og indomethacin, á hundum orsakað hækkaðan bióð- þrýsting hjá þeim. Margt þykir því benda til þess að prostaglandin hafi töluvert hlutverk við stjórnun blóðþrýstings. Það hve hratt prostaglandin brotnar niður setur hins vegar takmörk á notagildi þeirra sem lyfja. Sem dæmi um hve hratt þau brotna niður má nefna að sé PGE2 gefið í æð brotnar það niður 96% á fyrstu 90 sek. eftir gjöf. Einnig er það galli á gjöf Njarð- ar hve ósérhæfð virknin oftlega er. PGE2 veldur þannig samhliða samdrætti í legvöðva, oft einnig samdrætti í þörmum sem leiðir til niðurgangs. Ensímið 15-hydroxy prostaglandin dehydrogenasi, sem er til staðar í flestum spendýrafrumum, er talið eiga hvað mesta sök á hröðu niðurbroti prosta- glandina. Með því að hefta þetta ensím hefur tekist að tvöfalda til tífalda helmingunartíma prostagland- ina. Framleiddir hafa verið prostaglandin eftirlík- ingar þar sem komið hefur verið fyrir methyl hóp í C15 stöðu. Svo virðist sem þeir komi í veg fyrir virkni 15-hydroxy prostaglandin dehydrogenasa án þess þó að sýn-a nokkuð minni verkun við samdrátt slétts vöðva.3 Prostaylandin oy meinvörp Einnig hér eru prostaglandin með fingurna. At- huganir á PGD2 í illkynja melanoma æxlum benda til þess að það sé einn af þeim þáttum er stjórna vaxtahraða meinvarpa.24 Svo virðist sem að vaxtar- hraði melanoma meinvarpa sé í öfugu hlutfalli við prostaglandin D2 myndun þeirra, þ. e. því minni framleiðsla af PGD2 þeim mun illkynjaðra er mel- anoma æxli. Oruggar skýringar á þessu liggja ekki enn á lausu. Leuhotrienes í mörgum frumum er ekki aðeins cylooxygenasi, heldur einnig lipoxygenasi sem keppir við cyclooxy- genasa um arachidonic sýruna. Frumframleiðsla arachidonic sýru og lipoxygen- asa er hydroperoxy-eicosatetraenoic sýra (HPETE). Þessi hydroperoxið verða annað hvort að samsvar- andi alkóhóli eða þá, ef um 5-HPETE er að ræða, að leukotrienes. Leukotrinenes (LT) er nafn á nýj- um flokki efnasambanda sem fyrst var lýst af Bengt Samuelsson 1979. Til þessa flokks teljast nú 4 efni: leukotriene A4 (LTA4), leukotriene B4 (LTB4), leukotriene C4 (LTC4) og leukotriene D4 (LTD4), en margt þykir benda til þess að verulega eigi eftir að fjölga í þessum flokki efna (sjá mynd 10). Um virkni þessara efna er enn mjög margt á huldu eins og gefur að skilja ef haft er í huga hve stuttan tíma þessi efnasambönd hafa verið þekkt. Sú þekking sem til staðar er í dag er einkum tengd „slow reacting substance of anaphylaxis (SRS-A)“, en það efni nefnist svo vegna einkennandi eiginleika síns að orsaka mjög hægan en kröftugan samdrátt í sléttum vöðva in vitro. SRS-A er losað við hin ýmsu 56 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.