Læknaneminn - 01.04.1995, Blaðsíða 43
BLÓÐHÆGÐIR
BLOÐHÆGÐIR
(HEMATOCHEZIA)
Helgi Birgisson1 og Tómas Guðbjartsson2
Inngangur
Blóðhægðir er ferskt blóð í hægðum og er
algengt vandamál sem læknar þurfa að fást við bæði
innan sem utan veggja sjúkrahúsa. Mikil blæðing
getur verið lífshættuleg og er fljót og örugg grein-
ing, ásamt réttri meðferð mikilvæg fyrir horfur
sjúklinga.
Blæðing í meltingarvegi getur birst sem
blóðhægðir (hematochezia), blóðuppköst (hemop-
tysis) og sortusaur (melena). Auk þess getur verið
um hulda blæðingu (occult bleeding) að ræða (Tafla
I). Magn og staðsetning blæðingar ræður því með
hvaða hætti blæðingin gerir vart við sig, en því
neðar sem blæðir frá meltingarveginum þeim mun
líklegra er að ferskt blóð sjáist í hægðum. Þannig
þarf a.m.k. 300ml blæðingu frá risristli til þess að
Hematochezia er klínískt heiti samsett úr
orðunum hema, sem þýðir blóð og chezein, sem
táknar að hafa hœgðir. Samkvœmt íðorðasafni
lækna (1), eru blóðhœgðir íslenskt samheiti
hemtocheziu en er sjaldan notað. Oftar er talað
um ferska blœðingu frá endaþarmi eða ferskt
blóð í hœgðum. I þessari grein höfum við kosið
að nota orðið blóðhœgðir enda lýsandi og
tungutamt íslenskt orð.
1. Höfundur er unglœknir á Landspítala.
2. Höfundur er í framhaldsnámi í
skurðlækningum í Helsingjaborg, Svíþjóð.
ferskt blóð sjáist í hægðum en innan við einn ml ef
blæðingarstaður er við endaþarmsopið. Blóðhægðir
eru yfirleitt vegna blæðingar í meltingarvegi neðan
við ligamentum of Treitz (Mynd 1). Blæðing í
vélinda, maga og skeifugörn getur þó orsakað
blóðhægðir sé um nógu mikla blæðingu að ræða. I
slíkum tilvikum er blóðmagnið það mikið að maga-
sýran nær ekki að umbreyta öllum blóðrauðanum
(heme) í hematin, en hematin litar hægðirnar svartar
likt og við sortuhægðir (2).
Orsakir
Orsök blóðhægða er oftast að finna í ristli, en
tíundi hver sjúklingur blæðir frá efri hluta
meltingarfæra (Tafla 2) (3,4). Af ristilsjúkdómum
eru fjórir langalgengastir sem orsök blóðhægða;
æðamisvöxtur, ristilpokar, gyllinæð og ristil-
krabbamein (Tafla 3).
BLÆÐING í MELTINGARVEGI
- klínísk mynd
Blóðhæeðir : Ferskt blóð í eða með hægðum
BlóðuDDköst: Blóðug uppköst
Sortusaur: Svartar, illa lyktandi og tjörulegar hægðir
Hulin blæðina Blóð í hægðum hulið berum augum
Tafla 1. Helstu tegundir blœðinga í meltingatyegi.
LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg
41