Læknaneminn - 01.04.1995, Síða 115
SNÁKURINN
hafa verið tignað sem sjálfstæð guðsbirting, en
einnig er að finna á ýmsum listaverkum þennan staf í
hendi Ishtar eða sólarguðsins Marduks. Um 2000 f.
Kr. ákvarða prestar Hammurabis hið opinbera
goðaveldi og komst Ningishzida ekki þar á meðal,
en táknið var samt notað áfram. Dæmi um það má
finna í yngri goðafræði frá Hierapolis í Sýrlandi. Þar
vardýrkuð guðaþrenningin Baal, Baalad og Simeos,
en sá síðast taldi var táknaður með staf er tveir
snákar hringuðu sig utan um. Athyglisvert er að á
sama tíma er einnig í Babýlon þekkt annað tákn,
stafur með einum snák og táknaði hann móður-
gyðjuna, sem allur lífsmáttur var frá kominn og
tengdist þar með frjósemi, vorkomu, lífi og upp-
risu.
Egyptaland
Faraóarnir voru álitnir synir sólarguðsins Amon-
Ra. Á myndum af þeim má oft sjá hina heilögu
slöngu Uraeus koma út úr enni þeirra og veita þeim
lífsmagn og töframátt. Egypski læknaguðinn Horus
var með slöngu í höfuðbúnaði sínum. Hann er hlið-
stæða Appollos í grískri goðafræði og er oft sýndur
sem maður með fálkahöfuð. Horus glataði öðru auga
sínu í bardaga við Seth og fékk bætt það af Thoth,
sem á sér hliðstæðu í Hermesi í grískri goðafræði.
Auga Horusar hefur þótt boða gæfu og má t.d. oft
finna smækkaða mynd af því milli laga í vafningum
múmíanna.
Um 3400 f. Kr. sameinar Menes faraó Egypta-
land, sem hafði áður verið skipti í tvö ríki. Frá sama
tíma er þekkt tákn mjög svipað því sem síðar var
kennt við guðinn Hermes í Grikklandi; einn stafur
með vængjum efst og tveir snákar sem hlykkja sig
upp eftir stafnum. Snákarnir tveir tákna konungsnkin
tvö, vængirnir tveir voru fegnir frá Horusi sem var
tákn guðdómsins í óshólmahluta Egyptalands og
stafurinn var hinn heilagi uas stafur sem var tignaður
í öðrum hluta landsins.
Víða eru til minni um að snákur hafi unnið gegn
guði sköpunarinnar, líkt og í Gamla testamentinu.
Eitt elsta dæmið er egypski flugsnákurinn Apepi sem
barðist gegn guðinum Ra. Svipað minni er að l'inna í
Jobsbók biblíunnar: „Fyrir andgust hans verður
himininn heiður, hönd hans leggur í gegn hinn
flughraða dreka“.
Grikkland
í Grikklandi finnast merki um staf bæði með
einum og tveimur snákum. Stafur nteð tveimur
snákum var nrerki guðsins Hermesar (Mynd I), en
stafur með einum snák varð tákn lækningaguðsins
Asclepiosar. Táknin eru þó ekki einvörðungu tengd
þeim. Þannig eru tveir samtvinnaðir snákar þekktir
sem tákn varnarmáttar og voru meðal annars í
brjósthlíf Pallas Aþenu, auk þess sem táknið var víða
að finna á hjálmum og skjöldum.
Caduceus
Caduceus er það heiti sem oftast er haft yfir staf
Hermesar sem áður hefur verið lýst. Táknið er samt
líklega eldra því það hefur verið þekkt í Grikklandi
frá því um 6000 f. Kr. og hefur ekki alltaf verið
notað í tengslum við þann guð. Heitið er f raun
latnesk útgáfa af gríska heitinu kerykeion og er sem
fyrr segir látið tákna staf með tveimur vængjum efst
og tveimur snákum sem hlykkjast upp eftir honum
og vita höfuðin að hvort öðru. Merkið var notað sem
friðarmerki og var sem slíkt notað í hernaði svipað
og hvítt flagg, sem tákn vopnahlés í dag. Einnig var
þetta stafur sendiboða og var sem slíkur borinn fyrir
opinberum sendimönnum. Þar eð táknið er þekktast
sem tákn guðsins Hermesar, er rétt að vrkja nokkuð
að ætt og uppruna hans. Hermes var sonur Seifs og
Maiu, en hún var dóttir Atlasar. Hann er samkvæmt
arfsögnum talinn fæddur í helli í Arcadiu í suður
Grikklandi. Hermes var sendiboði guðanna og auk
þess guð undirheima sem leiðbeinir sálum látinna til
Hadesar. Stafinn sjálfan hlaut Hermes að launum frá
Appollo fyrir að hafa fundið upp lýruna. Stafurinn
bjó yfir mætti til að sameina alla sem hatur hafði
sundrað. Einnig sendi hann mönnum svefn og
drauma með stafnum. Hermes fór með stafinn til
heimabyggðar sinnar og kastaði honum milli tveggja
snáka sem börðust og undu þeir sig upp eftir honum
í friðsemd. Vængirnir virðast síðan bætast við stafínn
um 300 f. Kr. Yfirleitt er þetta samsetta tákn talið
fylgja valdi og frið. Það hefur nokkur tengsl við
lækningar því stafurinn er talinn hafa mátt til að bæta
karlmennsku og geðheilbrigði, auk þess sem hann
bægir frá plágurn, auðveldar barnsburð og hjálpar til
við grasalækningar.
LÆKNANEMINN 1. Tbl. 1995 48. Árg.
109