Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1995, Blaðsíða 123

Læknaneminn - 01.04.1995, Blaðsíða 123
AÐALFUNDUR aftur og aftur án árangurs. Auk þess sýnir tölfræðin að sárafáir ná í fjórða sinn og sumir þeirra sem þá ná eiga í verulegum erfiðleikum með námið eftir að þeir komast inn. Auk þess hafa sumir bent á að það sé ekki sanngjarnt gagnvart þeim sem koma í fyrsta sinn að þeir þurfi að keppa við fólk sem eytt hefur mörgum árum í að læra nokkurra vikna námsefni. 3. Samnorrænn menntamarkaður. Menntamálaráð- herrar norðurlandanna hafa gert með sér samning um samnorrænan menntainarkað. Samningurinn kveður á um að norrænir námsmenn skuli eiga rétt til inngöngu í há- skólanám alls staðar á norðurlöndum með sömu skilyrðum og heimamenn. Þessi samningur hefur ekki tekið form- lega gildi og óvíst er hvort hann tekur nokkurn tíma gildi. Læknadeild brást fljótt við og samdi nýjar reglur um inntökuskilyrði fyrir útlendinga sem heimila öllum norðurlandabúum með stúdentspróf að keppa í numerus clausus í samkeppni við íslendingana. I kjölfar þessa máls hófst umræða um hvort leyfa ætti útlendingum að taka clausus prófin áfram á ensku og var það samþykkt í deildaráði. Stjórn F.L. fundaði um þetta mál þann 19.1.1994 og lýsti sig andvíga þessu því að þá eru nemendur ekki að keppa á jafnréttisgrundvelli eins kveðið er á um í samningnum. Nú í haustbyrjun varð úr þessu nokkuð fjölmiðlafár. Ef útlendingar eiga að keppa við íslendinga um sætin 30 þá er verið að fækka þeim tæki- færum sem íslensk ungmenni hafa til þess að læra til læknis. Aftur á móti má ekki gleyma þeirri staðreynd að frá því að numerus clausus var tekinn upp í þeirri mynd sem hann er í dag þá hefur enginn útlendingur náð þeirri einkunn sem síðasti maður inn hafði. Nauðsynlegt er að um þetta verði haldinn fundur fljótlega í F.L. og í Stúdentaráði þar sem afstaða félaganna verði mótuð um þessa fækkun og samnorrænan menntamarkað. Margir eru sannfærðir um það að þrátt fyrir yfirlýsingar mennta- málaráðherranna sé háskólum sem velja nemendur eftir umsóknum í lófa Iagið að hafa hlutina eins og þeim sýnist. Þess eru dæmi að dúxar úr íslenskum menntaskólum hafi ekki komist inn í háskóla erlendis á þeim forsendum að þeir hafi ekki nógu háar einkunnir. Þetta endurspeglar þann vanda sem mönnum er á höndum þegar þeir eiga að fara að bera saman t.d. nemanda með stúdentspróf frá Menntaskólanum á Isafirði, Samvinnuskólanum á Bifröst, menntaskóla í Helsinki, og menntaskóla í Osló. Það sér hver maður að slíkt er nánast ómögulegt. Nú nýlega kom upp á yfirborðið annað mál þar sem nokkrir útlendingar fóru þess á leit við læknadeild að þeir fengju að halda áfram námi ef þeir næðu einkunninni fimm í clausus því þeir hefðu hafið hér nám á þeim forsendum. Svo virðist sem hluti útlendinganna hafi ekki fengið gögn þess efnis að nýjar reglur hefðu tekið gildi og var því ákveðið að verða við ósk þeirra. 4. Tutorakerfi. Á deildarráðsfundi þann 15.12.1993 var samþykkt að í vetur skyldi taka upp tutorakerfi sem verið hefur í undirbúningi í mörg ár. Ekki höfum við heyrt neitt né séð af þessu kerfi enn og er þó Iiðinn rúmlega mánuður af skólaárinu og auglýsir stjórn F.L. hér með eftir þessu kerfi. 5. Læknakennsla á útsölu. Mikil umræða varð um fjárveitingar til læknadeildar sem eru hlægilega litlar (um 120 millj.). Nú er svo komið að stór hluti læknakennslu er Háskólanum að kostnaðarlausu, m.a. 4. árs rannsókanar- verkefnið (10 vikur), valtímabil á 5. ári (2 vikur) og valmánuður á 6. ári (4 vikur). Samtals gerir þetta meira en eitt misseri (16 vikur). Þetta er náttúrulega óviðunandi ástand því að svona kerfi hlýtur að draga úr áhuga manna til þess að taka að sér nemendur. Auk þess innritar læknadeild nú nemendur í MS- og doktorsnám sem má ekki kosta neitt. Stjórn F.L. lýsir áhyggjum sínum yfir þessari þróun og telur að ef ekki verði bætt úr fljótlega leiði hún til þess að læknanám á íslandi verði annars flokks nám. IV. Læknanám á Læknasetrinu. Fyrir nokkrum árum buðust læknar Lækna- setursins, þar sem starfa sérfræðingar á mörgum sviðum, til þess að kenna læknanemum endurgjaldslaust. Þetta buðu þeir m.a til þess að bæta úr þeirri brýnu þörf sem er á „ambúlant“ kennslu í læknadeild. Margir sem veikjast þurfa aldrei að leggjast inn á spítala en þar mestur hluti læknakennslu fer fram ef undan er skilin ein vika á heilsugæslustöð og finnst því mörgum þeir ekki fá heildaryfirsýn yfir læknisstarfið. Því er nauðsynlegt að nemendur fái að kynnast því hvernig sérfræðingar starfa á þessum vettvangi auk þess sem þeir ættu að geta dýpkað þekkingu sína í þeim sérgreinum sem þeir hafa áhuga á. þetta mál var kæft í kerfinu. Nú hefur F.L. í samráði við 6. árs nema og Læknasetrið ákveðið að 6. árs nemar fái að fylgjast með og taka þátt í störfum sérfræðinga á Lækna- setrinu nokkra eftirmiðdaga á þessu haustmisseri. Nauðsynlegt er að ný stjórn F.L. gangi í skipulagningu þessa máls sem allra fyrst í samráði við Kristján Erlendsson kennslustjóra læknadeildar. Ef þetta tekst vel væri hugsanlega hægt að ná samningum við fleiri læknastofur. V. Ljósritunarvélin. Gífurlegur kostnaður hefur verið af Ijósritunar- vélinni sem rekinn er af F.L. í Læknagarði en mörg nemendafélög reka svipaða starfsemi með hagnaði. Við leggjum til að mjög óhagstæðum samningi um rekstur vélarinnar verði sagt upp og allra leiða leitað til þess að ná þessum kostnaði niður. LÆKNANEMINN 1. tbl. 1995 48. árg 117
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.