Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1996, Side 29

Læknaneminn - 01.10.1996, Side 29
i n : 77 QCCT'ZTTT QCT-TT TTTTTllTCQTTl Meðferð gigtsjúkdóma: Fyrri hluti því að þegar þrýst er á ákveðin mjúkvefjasvæði með um 4 kg þrýstingi upplifir sjúklingurinn þrýstinginn sem verk. Slíkir eymslapunktar geta fundist á ákveðnum líf- fræðilegum stöðum í mjúkvefjum (mynd 2a). Trigger punktar eru einnig sársaukafullir viðkomu en að auki þreifist harður vöðvahnúður sem kemur kippur í ef hann er ertur t.d. með nál. Þrýstingur á trigger punlct framkallar leiðsluverk á einkennandi svæði fyrir þenn- an tiltekna trigger punkt (mynd 2b). Stakir eymsla punktar eru mjög algeng fyrirbæri og geta einnig fund- ist hjá heilbrigðum. Mikilvægi þeirra felst f.o.f. í því að sjúkdómsgreina vefjagigt. Menn greinir á um hvort eymsla punktar og trigger punktar séu tvær útgáfur af sama fyrirbærinu eða hvort eðlismunur sé þar á. Senni- lega skiptir meira máli að átta sig á útbreiðslu myofasci- al verkja (þ.e. hvort einkennin eru svæðisbundin eða dreifð) frekar en að flokka þá í myofascial verki með eymsla punktum versus trigger punktum. Svæðisbundnir eymsla eða trigger punktar eru með- höndlaðir með aðferðum sjúkraþjálfunar (hita, nuddi, teygjuæfingum) eða með sprautumeðferð (tafla IV). Sprautumeðferð í trigger punkta skilar oft góðum ár- angri en sprautumeðferð í eymsla punkta er ekki eins hjálpleg, árangur sagður allt frá því að vera enginn í að 2/3 hlutar einstaklinga með eymsla punkta svari (32). Betri árangur næst þegar trigger punktar eru færri og þegar styttra er frá því að einkenni hófust. Sjúklingur sem hefur kvartað yfir verkjum í hálsi og herðum und- anfarin 2 ár og hefur 20 trigger punkta við skoðun svar- ar mildu síður sprautumeðferð en ef einkenni hefðu staðið í 10 daga og við skoðun fyndust 3 trigger punktar. Skiptar skoðanir eru um hvaða lyf eigi að nota við trigger punkta sprautur. Mælt hefur verið með sykur- sterum, saltvatni, deyfilyfi, 5% glúkósu eða að stinga nálinni í trigger punktinn án þess að sprauta nokkru inn (33, 34). ítöfluV er mælt með blöndu af sykur- stera og lidocain einfaldlega vegna þess að þessi blanda gefur öruggastan árangur. Þegar aðrar aðferðir eru not- aðar er stundum þörf á viðbótar meðferðarskiptum (32, 35). Sprautur í myofascial punkta hafa sýnt sig að vera hættulítið meðferðarform. Mögulegar alvarlegar aulca- verkanir eins og ofnæmisviðbrögð, sýking, blæðing, taugaskemmd, reflex sympathetic dystrophy og loft- brjóst sjást sjaldan ef ýtrustu varúðar er gætt í sprautu- meðferðinni. Mikilvægt er að átta sig á því sprautu- meðferðin er aðeins lítill hluti af heildrænni meðferðar- Tafla IV:___________________________________________________ Sjúkraþjálfun - helstu meðferðarþættir. 1. Fræðsla, leiðbeiningar 2. Æfingar 3. Manual therapy yfirborðsnudd djúpnudd (liðkun) vöðva- og liðteygjur. 4. Yfirborðshitameðferð (verkjastilling, slökun, eykur blóðflæði og teygjanleika) heitir bakstrar paraffin olía innrauðir lampar 5. Djúphitameðferð (verkjastilling, siökun, eykur blóðflæði og teygjanleika) stuttbylgjur hljóðbylgjur 6. Kuldi (aðallega notað í bráðum áverkum) 7. Laser (verkjastilling, græðandi áhrif) áætlun og skilar ein sér skammvinnum árangri. Of margar sprautumeðferðir geta gert sjúklinginn að óvirkum þiggjanda í meðferðaráætluninni. Eins og áður segir gilda svipaðar áherslur í meðferð á festumeinum (tendinitis) og myofascial punktum. Svæðisbundin festumein eru yfirleitt sterklega tengd of miklu líkamsálagi og sprautumeðferð ein sér dugar skammt og getur beinlínis verið varhugaverð því sprautan „læknar” ekki meinið. Ef sjúklingur heldur áfram fyrri iðju eftir verkjalyfja- eða sprautumeðferð getur festumeinið versnað. Nauðsynlegt er að nota verkjahléið sem hlýst af verkjalyfja- eða sprautumeð- ferðinn til hvíldar og endurhæfingar. Alvarlegasta hættan þegar sykursterum er sprautað í sinafestu er að sinin rifni. Sykursterar valda tíma- bundnu katabólísku ástandi (vefjaniðurbrot) sem varir í 1-2 vikur (36). A þessu tímabili er sinin veikari og er hættara við að rifna við skyndilegt álag. Til að forða því ber að fylgja eftirfarandi varúðarráðstöfunum: 1. Aldrei sprauta inn í sinina sjálfa heldur umhverfis hana. 2. Gefa skýr fyrirmæli um að sjúklingurinn eigi að forðast snörp átök í 2 vikur eftir sprautuna. 3. Forð- ast að sprauta í sinar sem í daglegu lífi eru undir miklu álagi, sér í Iagi á þetta við hásinina en einnig fjór- höfðasinina (quadriceps sinina) við hnéskelina. 2.2. Vefjagigt Utbreidd myofascial verkjavandamál fullnægja oft skilmerkjum fyrir vefjagigt. Onnur vandamál sem lýsa sér í svipuðum verkjakvörtunum eru t.d. góðkynja LÆKNANEMINN 25 2. tbl. 1996, 49. árg.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.