Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1996, Síða 40

Læknaneminn - 01.10.1996, Síða 40
Glasafrjóvgun (In vitro fertilization, IVF) Jón ívar Einarsson INNGANGUR I náttúrunni gengur lífið að langmestu leyti út á það eitt að eignast afkvæmi. Til eru lífverur er lifa einung- is í nokkrar mínútur en deyja saddar lífdaga eftir að hafa gegnt sínu eina hlutverki, þ.e. að viðhalda stofnin- um. Hjá okkur mönnunum er lífið örlítið flóknara, en samt sem áður líta flestir á það sem sjáifsagðan hlut að þeir muni einhvern tíma eignast sín börn. Það er hins vegar því miður svo að fjöldamörgum pörum reynist erfitt og stundum ómögulegt að eignast börn en talið er að 10-15% para séu ófrjó. Hverju sem um er að kenna virðist ófrjósemi fara vaxandi, a.m.k. í hinum vestræna heimi. Sem betur fer hafa átt sér stað stórstígar fram- farir í átt til bættrar meðhöndlunar ófrjósemi á síðustu árum og er þessari grein ætlað að lýsa í stuttu máli for- sögu þessara framfara og lýsa vinnuaðferðum og ábend- ingum fyrir notkun glasafrjóvgunar. Einnig verður fjallað sérstaklega um tvær nýjungar, þ.e. frystingu fóst- urvísa og smásjárfrjóvgun (ICSI, intracytoplasmic sperm injection). SÖGULEGT YFIRLIT Fæðing Louise Brown 25. júlí 1978 markaði tíma- mót í sögu læknisfræðinnar. I fýrsta sinn hafði mönn- um tekist að frjóvga egg utan líkamans og koma því fyrir þannig að úr yrði heilbrigður einstaklingur. Þessi árangur var afrakstur margra ára rannsókna hinna ýmsu vísindamanna og mun sú þróun verða rakin stuttlega hér. Glasafrjóvgun (in vitro fertilization,IVF) var fýrst reynd 1878 af Schenk í Þýskalandi en fyrsta viðurkennda greinin um þetta efni birtist 1954 fráThi- bault sem gerði tilraunir með kanínuegg. Það var hins Jón Ivar er deildarlœknir á Kvennadeild Landspítalans. Mynd 1. Smásjárfrjófgun (ICSI). vegar mun fýrr eða 1890 sem tókst að framkalla þung- un hjá kanínum með eggjum sem höfðu frjóvgast á eðlilegan hátt í kynsystrum þeirra. 1944 tókst Rock og Menkin í fýrsta sinn að frjóvga mannaegg í til- raunaglasi. 1963 hóf Edwards rannsóknir sínar á mannaeggjum og glasafrjóvgun sem áttu eftir að verða afdrifaríkar. A sjöunda áratugnum urðu miklar fram- farir í hormónameðferð, t.d. tókst að einangra hMG (human menopausal gonadotropin) og einnig urðu umtalsverðar framfarir í tækni við kviðarholsspeglun en hvort tveggja auðveldaði til mikilla muna eggheimtuna. 1968 birti Steptoe grein um kviðarholsspeglun og egg- heimtu. I framhaldi af því hófst samstarf þeirra Ed- wards og Steptoe. Þeir félagar beittu hormónameðferð og kviðarholsspeglun við tilraunir sínar og 1976 tókst í fýrsta skipti að koma eggi frjóvguðu utan líkamans fýr- ir í konu þannig að þungun hlytist af en því miður reyndist það vera utanlegsfóstur. 2 árum seinna fædd- ist svo fýrsta glasabarnið, Louise Brown. Síðan þá hafa orðið stórstígar framfarir á þessu sviði og má þar m.a. nefna GnRH analoga, bætta ómtækni og ómstýrða ás- LÆKNANEMINN 34 2. tbl. 1996, 49. árg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.