Læknaneminn - 01.10.1996, Page 46
Glasafrjóvgun (In vitro fertilization, IVF)
takist. Til að SF takist þarf hins vegar einungis örfáar
sæðisfrumur og jafnvel hefur tekist að ná í sæðisfrumur
með ástungu frá eista eða eistajyppu og frjóvga egg
konunnar með þeim. Arangur SF hefur verið góður,
tekist hefur að frjóvga um 62% eggja og í um 26% til-
fella hefur klínísk þungun átt sér stað. Nú þegar hafa
fæðst rúmlega 600 börn með hjálp SF í Belgíu. Þessi
tækni hefur nú rutt sér rúms um allan heim og mun
slík starfssemi hefjast hérlendis innan skamms.
L0KA0RÐ
Með glasafrjóvgun og skyldri tækni hefur meðferð
ófrjósemi tekið miklum framförum. Þó er ekki hægt
að hjálpa öllum til þess að eignast barn en þróunin á
þessu sviði er mjög hröð og nýjungar líta dagsins Ijós
með ógnarhraða. Þessi þróun hefur verið það hröð að
löggjafarvaldið og almenningur hafa þurft að hafa sig
alla við til að geta fylgst með og brugðist við þessum
nýjungum. Ymsar áleitnar og áður óþekktar siðferðis-
spurningar hafa vaknað og munu halda áfram að koma
fram. Hvað á t.d. að gera við frysta fósturvísa pars sem
ferst af slysförum? A að leyfa konum að gefa egg og
jafnvel ganga með annarra manna börn eins og tíðkast
víða erlendis? Hvaða hömlur á að setja við val erfðaefn-
is til komandi kynslóða (framleiðsla ofurmenna
o.s.frv.)? Þetta þarf allt að ákveða og setja í fastar skorð-
ur áður en til framkvæmda kemur, en vegna hraðans í
þróun þessarar tækni hefur orðið nokkur misbrestur á
því og nokkur vandamál hlotist af.
HEIMILDASKRÁ:
1. Brown S: RidingThe fertility frontier. Orgyn 1995;3:10-13
2. Damewood MD: The Johns Hopkins handbook of In Vitro Fertil-
ization and assisted reproductive technologies 1990
3. Paulson RJ: In Vitro Fertilization and other assisted reproductive
techniques. J Reprod Med 1993;38:261-267
4. Perone N: In Vitro Fertilization and embryo transfer, a historical
perspective. J Reprod Med 1994;39:695-700
5. Steptoe PC, Edwards RG: Reimplantation of a human embryo with
subsequent tubal pregnancy. Lancet 1976; 1:880
6. Steptoe PC, Edwards RG: Birth after the reimplantation of a hum-
an embryo. Lancet 1978;2:336
LÆKNANEMINN
40
2. tbl. 1996, 49. árg.