Læknaneminn - 01.10.1996, Síða 50
Læknisfræði
á Veraldarvefnum
Fyrir rúmu ári síðan skrifaði ég litla grein um Inter-
netið sem birtist í Læknanemanum þá um haustið.
Þessi grein var í raun orðin úrelt þegar hún birtist. Vor-
ið 1995 var ekki mikið af bitastæðu, ókeypis efni um
Iæknisfræði að finna á Vefnum en þróunin síðan þá
hefur verið hraðari en séð varð fyrir. Nú er svo komið
að á Vefnum er að finna ógrynni alls kyns upplýsinga,
m.a. bækur, tímarit og myndefni. Eg hef verið að safna,
fyrir sjálfan mig, ýmsum áhugaverðum stöðum á Vefn-
um en marga þeirra skoða ég reglulega. Ég hef fundið
inn á það hjá nokkrum læknum og læknanemum, sem
hafa áhuga á að notfæra sér möguleika Vefsins, að þeir
vita ekki hvernig þeir eiga að byrja eða þeir eiga erfitt
með að fóta sig þegar út á Vefinn er komið. Þetta gild-
ir einnig um sérfræðinga og stúdenta á ýmsum öðrum
fræðasviðum eins og líffræði, lyfjafræði, hjúkrunarfræði
og sjúkraþjálfun. Fyrir þetta fólk hef ég opnað heima-
síðu:
http://www.rhi.hi.is/-magjoh/
þar sem m.a. er að finna þá staði sem ég hef safnað
fyrir sjálfan mig og allir geta nú notfært sér. Ég geri
þetta í þeirri von að það geti hjálpað einhverjum að
komast af stað og geti líka verið gagnlegt fyrir suma
aðra sem eru lengra komnir í flakki um Vefinn.
Ég mun reyna að halda þessu við eftir föngum og
bæta inn áhugaverðum stöðum sem ég rekst á en það
verður sennilega erfiðara eftir því sem tíminn líður og
þróunin verður hraðari. Abendingar eru vel þegnar.
Stöðunum er skipt niður í eftirfarandi flokka:
Leitarvélar - Hér er að finna tengingar í þær leitar-
vélar sem mér fmnast bestar og fengið hafa besta dóma.
Nauðsynlegt er að nota þessi tæki ef verið er að leita
upplýsinga um eitthvað tiltekið efni, t.d. hvaða lyf
komi til greina að nota við ALS eða það nýjasta um út-
breiðslu malaríu í heiminum. Leitarvélar eru mjög
eftir Magnús Jóhannsson prófessor Rannsóknastofú i lyfiafrœði,
Háskóla Islands. (http://www.rhi.hi.isl-magjohl),
Magnús Jóhannsson
gagnlegar, þær eru einfaldar í notlcun og yfirleitt er að
finna tilvísun í ieiðbeiningar. Ég nota leitarvélarnar í
vaxandi mæli og þær eru stöðugt að verða betri.
Læknavefir - Safn staða á Vefnum sem geta nýst
læknum og læknanemum til að afla sér upplýsinga eða
til að halda sér við og kynna sér nýjungar. Sumir af
þessum stöðum geta einnig verið gagnlegir fyrir sjúk-
linga og aðstandendur þeirra.
Kennsluvefir - Staðir sem eru sérstaklega ætlaðir til
kennslu og fróðleiks fyrir stúdenta.
Vefitímarit - Hér er þróunin mjög hröð en enginn
veit hvert hún stefnir. Annars vegar er um að ræða
hrein veftímarit sem einungis er að finna á Vefnum og
hins vegar hin hefðbundnu tímarit sem gefin eru út
prentuð. Prentuð tímarit sem einnig er að finna á Vefn-
um eru birt þar á mismunandi formi, allt frá því að vera
einungis efnisyfirlit eða efnisyfirlit með útdráttum og
yfir í að vera nokkurn veginn allt efni viðkomandi rits.
I sumum tilvikum er ekki hægt að sjá allt efni tímarits-
ins nema vera með áskrift.
Utgefendur tímarita og bóka og upplýsingatækni
- Utgefendur eru margir með heimasíður þar sem gefn-
ar eru ýmis konar upplýsingar og sumir þeirra stefna að
því að vera með tímaritin, a.m.k. efnisyfirlit og út-
drætti, á þessum síðum. Fjöldi tímarita og bóka er þeg-
ar kominn á þessar síður.
Ýmis sérsvið læknisfræði (í stafrófsröð) - Hér eru
talin upp ýmis sérsvið læknisfræðinnar með tilvísunum
í staði þar sem þessi svið fá sérstaka umfjöllun.
Annað áhugavert - Hér eru tengingar í ýmsa staði
eins og opinberar stofnanir og alþjóðleg samtök.
Ég vona að þetta nýtist einhverjum og allar ábend-
ingar eru vel þegnar. Að lokum vil ég benda á tvær nýj-
ar bækur sem ég hef haft talsvert gagn af:
1) Lee Hancock, Physician’s guide to the Internet,
Lippincott-Raven, 1996 og
2) Your Guide to Health and Medical Advice on the
Internet and Online Services, a Michael Wolff Book,
Wolff New Media, 1996.
LÆKNANEMINN
44
2. tbl. 1996, 49. árg.