Læknaneminn - 01.10.1996, Qupperneq 61
Helicobacter pylori - yfirlitsgrein
Ekki er hægt að segja að vel hafi gengið að finna þessa
fullkomnu lyfjasamsetningu. In vitro er bakterían næm
fyrir mörgum sýklalyfjum. Vegna verndar frá
magaslímhúð og sýrunnar í maganum eru þó fá sýkla-
lyf virk gegn bakteríunni in vivo. Best hefur reynst að
nota sýruþolin lyf sem frásogast vel og eru seytt í maga-
safa. Ekkert eitt lyf hefur fundist með nægilega góða
verkun og því hefur hingað til þurft að nota samsetn-
ingar 2ja til 4ra lyfja sem gefin hafa verið í langan tíma.
Aukaverkanir hafa einnig verið algengar af meðferð-
inni, en þær hafa sem betur fer yfirleitt verið vægar;
niðurgangur, kviðverkir eða ógleði.
Undanfarin ár hefur 14 daga meðferð með kollóid
bismúth súbcítrati, tetracýklíni, metrónídazóli (DMT-
meðferð) verið ein mest notaða meðferðin til uppræt-
ingar á Helicobacter pylori. Upprætingarhlutfall 14
daga DMT-meðferðarinnar hefur reynst í öllum rann-
sóknum vera gott og í nýlegri íslenskri rannsókn reynd-
ist upprætingarhlutfallið 88% (79). Helsti galli með-
ferðarinnar hefur verið aukaverkanir, en einnig þarf
sjúklingur að taka mikinn fjölda af töflum í nokkuð
langan tíma. Því hefur verið þrýstingur á að reyna að
einfalda meðferðina og stytta.
Virkni sýklalyfja er háð sýrustigi og á síðustu árum
hefur orðið algengara að gefin séu sýruhamlandi lyf
með sýklalyfjakúr til upprætingar á H. pylori. Hefur
það bætt árangur nokkuð, sérstaklega hvað varðar með-
ferð í styttri tíma en 14 daga (80). I rannsókn de Boer
et al. frá 1994 þar sem gefin var 7 og 14 daga DMT-
meðferð með H2-viðtaka antagonista reyndist uppræt-
ingarhlutfallið vera um 95% í báðum meðferðarhóp-
unum (81). Prótónudæluhemlar (PPI) hafa reynst hafa
bein hamlandi áhrif á H. pylori og eru jafnvel taldir
geta upprætt sýkingu án aðstoðar sýklalyfja (82).
Ástæða er því talin til að nota prótónudæluhemla frek-
ar en önnur sýruhamlandi lyf samhliða meðferð, til
upprætingar á H. pylori. I rannsókn þar sem gefin var
7 daga DMT-meðferð í upphafi fjögurra vikna ómepra-
zól meðferðar var upprætingarhlutfallið 95% (83).
Nýlega var farið að nota claríthrómýcín til uppræt-
ingar á H. pylori. Það hefur það fram yfir önnur mak-
rolíð að vera sýruþolið og leysast vel við lágt sýrustig, en
þessir eiginleikar koma sér vel til bakteríumeðferðar í
magaslímhúðinni. Það hefur þó hamlað notkun clarít-
hrómýcíns nokkuð að það er talsvert dýrara en önnur
lyf sem nota má til að uppræta H. pylori sýkingu.
Sjö daga meðferð með claríthrómýcíni, ómeprazóli
og tínidazóli hefur reynst uppræta H. pylori sýkingu í
yfir 93% tilvika (84,85,86). í MACH 1 rannsókninni
sem birt var 1995 var gefin 7 daga meðferð með
ómeprazóli 20 mg 1x2, claríthrómýcíni 500 mg 1x2 og
amoxicillini 1 g 1x2 sem reyndist hafa 96% uppræting-
arhlutfall. Öðrum sjúklingahópi var gefin 7 daga með-
ferð með sömu skömmtum af ómeprazóli og claít-
hómýcíni en fengu metrónídazól í stað amoxicillins.
Upprætingarhlutfallið í þeim hópi reyndist 95% (87).
Reynd hefur verið fjögurra daga meðferð með
ómeprazólí, kollóíd bismúth súbcítrati, tetracýklíni og
metrónídazóli sem hefur skilað yfir 90% upprætingar-
hlutfalli auk þess sem enginn sjúklinganna hætti með-
ferð vegna aukaverkana.
Nýlega hefur verið reynt að stytta meðferðina enn
frekar og hefur verið reynt allt að eins dags meðferð.
Niðurstöður þessara tilrauna hafa yfirleitt verið heldur
daprar. Þó hefur náðst yfir 70% upprætingarhlutfall
með eins dags meðferð með ómeprazóli, þríkalíum
dícítrat-bismúthi og metrónídazóli með augmentíni
eða amoxicillíni (88). Því er ekki útilokað að mögulegt
sé að einfalda meðferðina enn frekar.
Reynt hefur verið að gefa klukkustundar langa stað-
bundna sýklalyfjameðferð í maga til upprætingar á H.
pylori og skilaði það 96% upprætingarhlutfalli. Var þá
blásinn upp belgur í skeifugörn og lausn sem innihélt
bismúth súbnítrat, amoxicillín og metrónídazól þannig
haldið í maga (89).
Ónæmi H. pylori hefur reynst vera vaxandi vanda-
mál. Einkum er þar um að ræða metrónídazólónæmi.
I stórri evrópskri rannsókn reyndust 28% allra H.
pylori stofna vera ónæmir fyrir metrónídazóli (90).
Einnig hefur komið fram claríthrómýcinónæmi en það
er ekki eins algengt og metrónídazólónæmi.
BÓLUEFNI
Þróun bóluefnis er talin vera æskilegasta meðferðin
til að uppræta svo algenga sýkingu meðal mannkyns.
Því hafa miklar rannsóknir verið gerðar undanfarin ár
með það fyrir augum að þróa gott bóluefni gegn H.
pylori.
Helicobacter felis, ættingi Helicobacter pylori sem
lifir í köttum og músum, hefur reynst ágætt tilraunadýr
til bóluefnisrannsókna. Eftir p.o. gjöf músa með
veikluðum H. felis og kóleru-toxíni hefur fengist fram
góð mótefnamyndun sem viðhélst í 18 vikur (91).
Einnig hefur verið reynt að bólusetja p.o. með recomb-
LÆKNANEMINN
51
2. tbl. 1996, 49. árg.