Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1996, Page 81

Læknaneminn - 01.10.1996, Page 81
Tómas Guðbjartsson, Ásbjörn Jónsson, Þorvaldur Ingvarsson, Páll Helgi Möller INNGANGUR Síðustu áratugi hafa hundruðir íslenskra lækna sótt framhaldsmenntun til Svíþjóðar, fleiri en til nokkurs annars lands. Undanfarin ár hefur efnahagsástand þar farið versnandi og vaxandi atvinnuleysis gætt á meðal sænskra lækna. Af þeim sölcum hefur þrengt verulega að möguleikum íslenskra lækna til að sækja þangað framhaldsnám. Engu að síður verður sérnám þar í landi að teljast fysilegur kostur enda búa Svíar við eitt öflugasta heilbrigðis- og tryggingakerfi í heimi og miklu fé er varið til rannsókna. Einnig telst kostur að laun lækna í Svíþjóð eru góð og félagslegur aðbúnaður eins og best verður á kosið. Markmið okkar með þessu greinarkorni er fyrst og fremst að kynna læknanemum og unglæknum fram- haldsnám í Svíþjóð og veita þeim sem eru á leið þang- að í sérnám hagnýtar upplýsingar varðandi umsóknir og flutninga. Þar sem nú eru fleiri um hverja stöðu skiptir mildu að vanda til umsóknarinnar. Það er von okkar að þetta greinarkorn geti orðið einhverjum að liði í þeirri viðleitni. STÆRST NORÐURLANOA Svíþjóð er stærst Norðurlanda eða 450 þús. km2 og þar búa 8,5 milljónir, þar af 1,5 milljónir manna sem eru af erlendu bergi brotnir. Til samanburðar eru íbúar í Danmörku og Finnlandi í kringum 5 milljónir í hvoru landi fyrir sig og rúmar 4 milljónir í Noregi. Þéttbýlustu svæðin eru Skánn í suðri og svæðið um- hverfis höfuðborgina Stokkhólm, en hún er jafnframt Tómas Guðbjartsson, handlœkningadeild, Lasarettet í Helsingja- borg. Asbjörn Jónsson, röntgendeild, Borgarspítalinn. Þorvaldur Ingvarsson, bœklunardeild, FjórSungssjúkrahúsiS á Akureyri. Páll Helgi Möller handhekningadeild, háskólasjúkra- húsið í Lundi. stærsta borg landsins með 663 þús. íbúa. Næst kemur Gautaborg með tæplega 430 þús. íbúa en Málmey (230 þús.) og Uppsalir (158 þús.) þar á eftir. Svíþjóð er háþróað iðnríki og þjóðarframleiðsla á íbúa er með því hæsta sem gerist. Járngrýti og víðáttu- miklir skógar eru mikilvægar náttúruauðlindir en aðal- atvinnuvegir eru málm- og vélaiðnaður auk þjónustu- greina. Svíþjóð er lýðræðisríki með þingbundinni kon- ungsstjórn en 1. janúar 1995 gengu Svíar í Evrópusam- bandið. Þegar þetta er ritað eru jafnaðarmenn við stjórn en þeir hafa setið lengst í stjórn frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Sænskt þjóðfélag er að mörgu Ieyti svipað því ís- lenska en flestum ber saman um að hugsunarháttur Svía sé nokkuð frábrugðinn þeim íslenska. Óvíða er meira gert fyrir börn og fjölskyldufólk og skólakerfið er mjög vel skipulagt. Nú er verðlag heldur lægra en á Is- landi en þó munar ekki miklu. Afkoma er síst lakari og laun yfirleitt hærri en á Islandi fyrir sambærileg störf. A móti kemur að þjónusta og húsnæði er dýrara en heima. „ANATÓMÍA" SÆNSKA HEILBRIGÐISKERFISINS I Svíþjóð er mjög virkt en jafnframt eitt dýrasta heil- brigðiskerfi í heimi. Undanfarin ár hefur verið reynt að LÆKNANEMINN 71 2. tbl. 1996, 49. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.