Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1996, Side 86

Læknaneminn - 01.10.1996, Side 86
Sérfræðinám í Svíþjóð Kviðsjáraðgerð á sjúkrahúsinu í Helsingjaborg. Sænsk sjúkrahús eru mjög vel tækjum búin og aðstaða eins og best verður á kosið. (mynd: Helsingborgs lasarett) um „kall hyra“ en mikilvægt er að hafa þessi hugtök á hreinu þegar samið er um verð á leiguhúsnæði. Fyrir raðhús hækkar leigan í 55-80 þús. á mánuði. Leigusal- ar eru oftast sérstök leigufyrirtæki eða þá einkaaðilar. I flestum tilvikum fylgja íbúðunum raftæki, s.s. ísskápur, eldavél, þvottavél og þurrkari. Ef svo er ekki má benda á að verð á rafmagnstækjum er umtalsvert lægra en hér á landi. Oftast er ekki miklum vandkvæðum bundið að verða sér úti um húsnæði en best er að ganga frá þessum mál- um með nokkurra mánaða fyrirvara. Hægt er að leita til Islendinga í nágrenninu og þeir geta síðan grennslast fyrir um húsnæði eða sent inn auglýsingu í dagblöð. Oft er árangursríkt að hengja upp húsnæðisauglýsingu á þeim spítala þar sem fyrirhugað er að stunda nám. Þegar fólk hefur áttað sig betur á hlutunum kemur til greina að kaupa húsnæði. Verð á húsnæði er mjög breytilegt eftir stöðum en þegar þetta er ritað hefur ver- ið mikið framboð á húsnæði og því hagstætt að kaupa. Aftur á móti er rétt að hafa í huga að erfiðara er að losna við húsnæði hafi fólk t.d. í huga að færa sig um set innan Svíðþjóðar eða til annarra landa. LAUN 0G SKATTAR Á sjúkrahúsum eru byrjunarlaun aðstoðarlækna (underlákare) í kringum 180.000 ísl. á mánuði fyrir dagvinnu (mars 1996). Heildarlaun ráðast afvaktaálagi en flestir eru á 4 til 5 vöktum á mánuði og geta þá bæst við 40 - 50.000 ísl. við dagvinnulaunin. Oft er þó greitt fyrir vaktir í formi fría, a.m.k. að hluta (sjá betur síðar). Greiðslur fyrir vaktir eru því ekki jafn stór hluti af heildarlaununum eins og hér á landi. í þessu sambandi er rétt að árétta að samanburður á launum á milli landa er óviss mælikvarði á afkomu. Sumarfrí er yfirleitt 5 vikur en að auki eru vakta- vinnufrí sem er þá hluti af greiðslu fyrir vaktir. Á flest- um stöðum er þess krafist að læknar taki helming til tvo þriðju út í fríum fyrir vaktir en hitt í launum. A sum- um stöðum er þó hægt að taka allt út í peningum. Vaktavinnufrí eru betri en hér á landi. Sé gert ráð fyrir að u.þ.b. 2/3 hlutar af greiðslu fyrir vaktir séu teknir út í fríi og vaktir séu 4 til 5 á mánuði þýðir þetta einnar viku frí á 5 til 6 vikna fresti. Þetta frí er t.d. hægt að nota til vísindarannsókna en oft er hægt að semja við yfirmenn um að safna upp vaktavinnufríum og vinna annars staðar um tíma, t.d. á íslandi. Vinnuvika sérfræðinga er 43-48 klst á viku en lækn- ar í sérnámi (underlákare) eiga yfirleitt að vinna 40-45 klst. á viku. Yfirleitt er ekki greitt sérstaldega fyrir yfir- vinnu. Unnið er frá mánudegi til föstudags en sums staðar er hætt fyrr á föstudögum til þess að lengja helg- ina. Á flestum stöðum er frí a.m.k. síðari hluta dags eft- ir vakt en vaktir eru yfirleitt mjög annasamar. Vinnu- tími er yfirleitt frá kl. 07.30 til 17 með klukkutíma í mat sem ekki telst til vinnutímans. Laun heilsugæslulækna eru yfirleitt sambærileg laun- um sjúkrahússlækna en ekki er greitt sérstaklega fyrir afköst líkt og heima á íslandi. Sumarfrí eru einnig sam- bærileg en víða er greitt að fullu fyrir vaktir í peningum og vaktavinnufrí því styttri. LÆKNANEMINN 76 2. tbl. 1996, 49. árg.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.