Læknaneminn - 01.10.1996, Side 88
Sérfræðinám ÍSvíþjóð
sig hjá sjúkrasamlaginu sem fyrst eftir að komið er út
því annars er hætt við að bætur tapist eða rýrni. Feður
eiga að auki rétt á tveggja vikna fríi við fæðingu barna
sinna.
Leiti maki að vinnu getur hann leitað til atvinnu-
miðlunar í viðkomandi bæjarfélagi (Arbetsformed-
lingen) og skráð sig þar. Rétt er að kynna sér vel hvaða
vottorð/gögn þarf að taka með sér áður en haldið er
utan og þá sérstaklega m.t.t. gildandi milliríkjasamn-
inga milli Islands og Svíþjóðar. I dag er hægt að fá flutt-
an rétt á atvinnuleysisbótum á milli Svíþjóðar og ís-
lands en eingöngu ef viðkomandi gengur í sænskt fag-
félag innan 4 vikna frá því hann flytur til Svíþjóðar og
yfirfærir síðan réttindi sín. Þannig er skynsamlegt fyrir
maka að verða sér úti um vottorð frá fagfélögum á ís-
landi og staðfestingu á tekjum síðastliðins árs áður en
haldið er út.
Yfirleitt er meira framboð á barnaheimilisplássi en á
Islandi en það er þó mismunandi eftir stöðum. Greiðsl-
ur fyrir barnaheimilispláss eru oftast tekjubundnar og
eru víða 5-7% af heildarlaunum. Best er að sækja um
dagvistarpláss sem fyrst þar sem nokkur bið getur verið
eftir plássum, sérstaklega í háskólabæjum. Valið stend-
ur aðallega á milli tveggja kosta; annars vegar barna-
heimilis og hins vegar dagmæðra. Dagmæður starfa
innan kerfisins þannig að dagmæður eins og á Islandi
þekkjast varla, nema þá þær sem starfa „svart”.
Slcólar eru yfirleitt mjög góðir og uppbygging skóla-
kerfisins svipuð og hér á landi. Börnin byrja þó einu ári
síðar í skóla í Svíþjóð en skólaskylda er frá 7 til 16 ára
aldurs. Nýverið var skólum veitt heimild til að taka
börn inn í 6 ára bekk en ekki er alls staðar boðið upp á
6 ára bekk. Skólaárið er lengra, sumarfrí er 9 vikur og
jólafrí 2 vikur, en síðan bætist við viku frí í febrúar
(sportlov) og nóvember (höstlov). Skóladagurinn er
samfelldur frá klukkan átta á morgnana og fram yfir
hádegi og öll börn fá heita máltíð í skólanum. Aður en
haldið er utan er sltynsamlegt að grennslast fyrir um
skóla í hverfinu og sækja síðan um skóla tímanlega. Yf-
irleitt er auðvelt að að fá skólapláss en ekki er skilyrði
að sótt sé um þann skóla sem næstur er heimilinu því
nú fylgir hverju barni ákveðin upphæð sem rennur til
þess skóla sem barnið sækir.
BIFREIÐAKAUP
Verð á nýjum bifreiðum hefur verið nokkuð lægra í
Svíþjóð en á Islandi og flestir eru þeirrar skoðunar að
ekki borgi sig að taka bílinn með út frá peningalegu
sjónarmiði. Þó má benda á að hafi maður átt bíl á Is-
landi í eitt ár þarf ekki að greiða tolla af bílnum í Sví-
þjóð. Bíllinn verður að vera búinn hvarfakút, annars
þarf að greiða sérstakan mengunarskatt. Eins og gefur
að skilja er verð á sænskum bílum hagstæðara en á ís-
landi en skynsamlegt er að bera saman verð með því að
fá sendar upplýsingar frá bifreiðaumboðum eða bílasöl-
um í Svíþjóð. Líkt og hér á landi hrapa bílar nokkuð
hratt í verði fyrsta árið og því er oft hagstæðara að
kaupa notaða bíla en nýja. Rétt er að benda á að í Sví-
þjóð er oft hægt að „prútta“ niður verð á bílum ef gre-
itt er út í hönd og eldri bíll er ekki tekinn upp í þann
nýja (inbytesbil).
ATVINNUHORFUR AÐ LOKNU NÁMI
Eins og áður kom fram hafa orðið miklar breytingar
á atvinnuhorfum lækna í Svíþjóð. Árið 1993 voru þar
skráðir 600 atvinnulausir læknar, þar af 170 á atvinnu-
leysisbótum en langstærsti hluti þessara lækna voru
unglæknar. I Svíþjóð eru í kringum 26.000 læknar (1/3
konur), þar af rúmlega eitt þúsund Danir og tvö
hundruð Islendingar. Af þessum tvö hundruð Islend-
ingum er talið að 20% hafi sest að í Svíþjóð til fram-
búðar. Verði ekkert að gert er spáð að um aldamót verði
5-6000 læknar atvinnulausir í Svíþjóð. Eins og fyrr
sagði eru ástæður þessara umskipta á atvinnumarkaði
sænskra lækna fyrst og fremst efnahagssamdráttur sem
hefur leitt til minni framlaga til skólaheilsugæslu og
fyrirtækjalækninga.
LOKAORÐ
Leiðbeiningar sem þessar eru engan veginn tæmandi
og alltaf er best að leita ráða hjá þeim sem búa úti eða
eru nýkomnir heim úr sérnámi frá Svíþjóð. Einnig er
rétt að taka fram að ýmsar þeirra upplýsinga fram koma
í þessari grein eru háðar breytingum, s.s. varðandi
launakjör, verðlag og félagsleg réttindi. Að lokum skor-
um við á lækna og læknanema að koma með tillögur
um breytingar ef þeim þykir þurfa að fenginni reynslu.
Hægt er að koma ábendingum á framfæri til skrifstofu
Læknafélaganna.
LÆKNANEMINN
78
2. tbl. 1996, 49. árg.