Læknaneminn - 01.10.1996, Page 121
Skýrsla Stjórnar
Félags Læknanema
1995-1996
SKÝRSLA STJÓRNAR
Aðalfundur FL var haldinn þann 14. okt. 1995 og var þá
kjörin stjórn eins og lög gera ráð fyrir:
Formaður: Tryggvi Helgason
Ritari: Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Gjaldkeri: Maríanna Garðarsdóttir
Meðstjórnandi (2. árs): Jón Magnús Kristjánsson
Meðstj. (1. árs): Anna Björg Jónsdóttir
var kosin e. áramót
Formaður Kennslumála-
og fræðslunefndar: Pétur Vignir Reynisson
Almennt og yfirleitt var starf félagsins með hefðbundnum,
blómlegum hætti. Eftir stjórnkerfisbreytingu síðasta árs,
gengur starfið snurðulítið fyrir sig og viðbragðshraði félagsins
og kannski ekki síst stjórnarinnar hefur vaxið stórum.
Þessi stjórn hefur verið svo gæfusöm að starfa með góðum
embættismönnum í langflestum tilvikum og því getað ein-
beitt sér að mestu að eigin hugðarefnum og áhugaverðum
baráttumálum. Má þar nefna baráttu gegn eiturlyfjum og
aukin samskipti við Félag unglækna (FUL) og Læknafélag ís-
lands (LÍ).
Það er að mati undirritaðs mjög mikilvægt fyrir FUL og
læknasamtölcin í heild sinni að við tökum virkari þátt í starfi
á þeirra vegum. Þannig myndast mikilvæg tengsl við oklcar
framtíðar-stéttafélag og verðandi kollega.
Ennfremur tel ég það siðferðilega skyldu okkar að koma
kunnáttu okkar og þekkingu á framfæri þar sem hún nýtist.
Það er sennilega beittasta vopn Háskólans í baráttunni fyrir
bættum háskóla - að koma upplýsingum á mæltu máli úr yf-
irfullum fílabeinsturni.
Hér á eftir fylgir skýrsla með stikkorðum um það helsta
sem á daga stjórnar dreif, starfsárið 1995-96.
Talað við stóru strákana
Það er flestum læknanemum ljóst að fyrr eða síðar verða
þeir læknar. því þótti okkur í stjórninni rétt að auka samskipti
FLvið Læknafélag Islands og kannski ekki síður við FÚL, Fé-
lag unglækna.
því var í upphafi stafsársins skundað á fund hjá FOL og
fenginn áheyrnarfulltrúi á stjórnarfundum FOL ef ræða átti
mál er oldcur varða. Ennfremur var fenginn áheyrnarfulltrúi í
samninganefnd um lcaup og kjör, sem ákveðið var að tengja
embætti ráðningarstjóra.
Gott samstarf var svo milli FOL og FL í vetur og fóru fé-
iögin saman í fylu yfir samningi Lælcnafélags Reykjavíkur og
Tryggingastofnunar Ríkisins, sem takmarlcar aðgang nýrra
sérfræðinga að samningi við TR. Ennfremur var mikið og
gott samráð milli okkar í heilsugæsludeilunni, sem enn er
óleyst.
Heilsugasludeilan
Uppsagnir heilsugæslulækna hafa tröllriðið heilbrigðiskerf-
inu og fjölmiðlunum undanfarið. Uppsagnirnar tóku gildi
þann 1. ágúst eftir sex mánaða uppsagnarfrest. Tveimur vik-
um fyrir þann dag, um miðjan júlí, vöknuðu nokkrir heilsu-
gæslulæknar upp við þann vonda draum, að lælcnanemar sem
þeir réðu til afleysinga, voru með samninga fram yfir 1. ágúst.
Hlupu þeir þá upp til handa og fóta til að fá nema til að
hætta, en framkvæmdastjórnir stóðu fastar á sínu. Ráðninga-
samningar skyldu standa. Flestir læknanemar vildu sýna sam-
stöðu og hætta, aulc þess sem ýmsa óaði við því að bera
ábyrgð á heilum landshluta. FL fékk því lögfræðing í lið með
sér og fékk álit. í því fólst að forsendur samninganna væru
það mikið breyttar nú þegar enginn fullgildur læknir væri á
stöðinni, að samningi mætti rifta. Hvatti stjórnin læknanema
til að taka þann kost og tókst noldcrum nemum að losa sig á
þeim forsendum.
Þegar til kastanna kom í byrjun ágúst voru aðeins 3 lækna-
nemar starfandi og viku síðar aðeins tveir. 14 læknanemar
voru við störf, eða við það að hefja störf 1. ágúst. Ljóst má
vera að þessir læknanemar hafa misst stóran hluta sumartekna
sinna, en um leið fórnað skammtímahagsmunum fyrir lang-
tíma.
Undirritaður lýsir yfir ánægju sinni með að læknanemar
hafi þannig sýnt í verlci vilja sinn til að bæta kjör lælcna í
framtíðinni. Tekur það einnig til þeirra sem reyndu, en gátu
ekki losað sig undan samningum.
LÆKNANEMINN
111
2. tbl. 1996, 49. árg.