Læknaneminn - 01.10.1996, Side 124
Skýrsla Stjórnar félags Læknanema 1995-1996
eru flestir sammála að of stórt skref hafi verið stigið í einu til
að bæta blaðið. Hafa verður í huga að styrkur blaðsins er
ferskleiki greina og að auðvelt ætti að vera að fá lækna til að
skrifa stuttar, praktískar greinar, í bland við þær lengri. Fyrra
blað ritstjórnarinnar lofar þó góðu og er Ijóst að Læknanem-
inn er í stöðugri sókn, innan deildar sem utan.
Undirritaður lýsir yfir nokkrum áhyggjum af þeirri þróun
að ekki takist að manna ritstjórn blaðsins á aðalfundi. Aðeins
hefur fengist ritstjóri eða ritstjórar og þeir svo valið sér rit-
nefnd. Hvet því alla sem áhuga hafa á fræðunum og blaðaút-
gáfu að gefa sig fram á næsta aðalfundi.
Meinvörp
Nokkuð var tekist á um útgáfu meinvarpa í vetur og þótti
ýmsum nethúmor á ensku lítt til þess fallinn að prýða síður
fréttabréfs FL. þó stóð blaðið íyrir sínu sem miðill smárra sem
stórra frétta úr deildinni, sannra og loginna. Sú breyting að
láta 2. árs meðstjórnandann í stjórn hafa yfirumsjón með út-
gáfu snepilsins, er enn til reynslu, og sennilega væri gott fyrir
bæði blaðið og meðstjómandann að starfið fæli aðeins í sér
yfirumsjón, en kosin væri sér ritnefnd, sem hefði allnokkuð
lausan tauminn í efnisvali.
Símphysis
Símaskráin kom heldur seint út þetta árið, eða rétt fyrir jól-
in, enda var óvenju seint skipt um stjórn. Vonir og vænting-
ar standa til að breytingar á kosningafyrirkomulagi auðveldi
verðandi ritara að koma skránni út á skikkanlegum tíma og
að leggja tíma og metnað í innihaldið, bæði læknisfræðilegt
og annað.
Kosn ingafyrirkomulag
Róttækar breytingar voru gerðar á kosningafyrirkomulagi
FL á aðalfundi 1995. Var þá ákveðið að kosið skyldi að vori
en ný stjórn tæki ekki við fyrr en um haustið á eftir. Var von-
ast til að þannig gæfist nýrri stjórn kostur á að stilla saman
strengi og undirbúa haustið í rólegheitum.
Eftir þessu fyrirkomulagi var kosið í vor. Óvenju litlar
breytingar urðu á mannaskipan og kannski elcki furða, um
hálfu ári frá síðasta aðalfundi. Ný stjórn hittist lítið sem ekk-
ert í sumar vegna landfræðilegra ástæðna, en hefur tekið til
starfa af fullum krafti nú á þessu hausti. Reynslan mun sýna
hvort þetta fyrirkomulag er betra eða verra, en það hefur þó
augljósa kosti fyrir þá sem koma nýir inn í embættaflóru fé-
lagsins. Spurningin er hvort þetta fyrirkomulag ýtir undir
sjálfkrafa framgang úr einu embætti í annað.
Skemmtanir
Skemmtanir læknanema hafa löngum verið blómlegar og
nýliðið starfsár varð ekki undantekning á því, eins og skýrsla
fulltrúaráðs ber með sér. Bar þar hæst árshátíðina í Perlunni,
sem þótti hin glæsilegasta, vísindaferðina á Sauðárkrók, sem
og styttri vísindaferðir til fyrirtækja í borginni.
þátttaka stjórnar í skipulagningu og undirbúningi slíkra
skemmtana var mismikil eftir atburðum. Helst lágu skemmt-
anir og _fræðslu“-fundir í samvinnu við önnur deildarfélög á
herðum stjórnarmanna, sem eðlilegt er.
þykir undirrituðum það jákvætt að fræðslu- og
skemmtifundir með öðrum félögum séu á uppleið. Er von-
andi að það auki félagslegan þroska og víðsýni læknanema
sem oft og tíðum er ábótavant. Er þar títtræddur Undirritað-
ur ekki undanskilinn.
MARGT SMÁTT...
Kennsluverðlaun
Sú skemtilega nýjung, sem kennsluverðlaunin voru í fyrra,
var endurtekin að þessu sinni og er því samkvæmt íslenskum
venjum orðin að hefð. Á árshátíðinni í Perlunni voru þau
veitt Sigurði Guðmundssyni, fyrir óeigingjarnt starf og auð-
sýndan áhuga á kennslu læknanema. Á það jafnt við um
rannsóknir og kennslu á sjúkrahúsum. Sigurður fékk áritað-
an penna, sem Delta gaf og kunnum við þeim bestu þakkir
fyrir.
I þakkarbréfi sem skrifað var með verðlaununum sagði Sig-
urður að verðlaunin bæði _kitluðu og hvettu“ og er vonandi
að framhald verði á og fleiri verði kitlaðir með þessum hætti.
Heimasíða
þrátt fyrir tölvuleysi í Læknagarði hafa nokkrir framsæknir
læknanemar kynnt sér undur veraldarvefsins á tölvum á há-
skólasvæðinu sem og á eigin kostnað. Einn þeirra, þorvaldur
Jón Löve, var fenginn til að útbúa heimasíðu fyrir félagið. Var
hún ein af fyrstu síðum deildarfélags við HI og er það við
hæfi í svo framsæknu félagi sem FL er. þorvarður á hrós skil-
ið fyrir síðuna og þaklcar stjórn FL honum unnin störf. þess
má geta að Landsbankinn styrkti eldd gerð síðunnar.
Heimasíðan er nú lítið breytt frá upphaflegri útgáfu, en
endurskoðun stendur yfir. Áhugasamir netbúar eða HTML-
arar geta komið ábendingum um efni til thorvard@rhi.hi.is.
þeir sem ekld hafa séð gripinn ættu að fletta upp á
http://www.rhi.hi.is/-fl
MS-nemar
Opnað var á MS-nema sem vildu verða aukafélagar í FL
með lagabreytingu í upphafi starfsársins. það verður að viður-
kennast að kynning meðal þeirra á þessum möguleika hefur
farist fyrir og er það von mín að þeir sem á eftir koma bæti
þar um betur.
Skyndihjálparnámskeið
þann 23. mars var haldið viðamikið skyndihjálparnám-
skeið í Læknagarði og höfðu þeir sem mættu mikið gagn og
gaman af. Og ekki spilltu kók og pizza um miðjan dag fyrir
ánægjunni. Það er nú orðin föst hefð að halda skyndihjálpa-
ræfingu annað hvert ár, en námskeið hitt árið og er það vel.
LÆKNANEMINN
'j,J4 2. tbl. 1996, 49. árg.