Læknaneminn - 01.10.1996, Page 126
Skýrsla Stjórnar félags Læknaneraa 1995-1996
árið 35 vikur, viljum við því fá kennsluárið metið til 35 ein-
inga. Búið er að samþykkja tillögurnar í deildarráði, en þær
eru strand í Háskólaráði þegar þetta er ritað.
Prófnefnd fyrir numerus clausus
Búið er að samþykkja tillögu Kennslunefndar um próf-
nefnd í numerus clausus í deildarráði. Er ætlunin að þrír eigi
sæti í nefndinni, sem hefur það markmið að velja spurningar,
sem þeir fá sendar frá kennurunum, í prófið, sjá um fram-
kvæmd prófsins og sjá til að búið sé að fara yfir prófin og skila
niðurstöðum fyrir jól. Nokkur vinna er eftir varðandi loka
útfærslu, en reikna má með að þetta taki gildi haustið 1997.
Mjög viðamikil kennslukönnun var framkvæmd fyrir ann-
að árið. Þátttaka nemenda var nokkuð minni en vonast hafði
verið til eða um 2/3 svöruðu. Niðurstöður verða samt að telj-
ast marktækar. Reynsla er fyrir því að kennarar taki svona
kannanir mjög alvarlega og má því vænta breytinga til batn-
aðar.
I ár var haldið áfram með tilraun sem fór af stað í fyrra.
Það að halda nemendafundi um einstaka málefni eða fag og
skrifa svo viðkomandi kennara ýtarlegt bréf þar sem kvartan-
ir okkar og óskir um úrlausn voru tíundaðar. Var þetta fyrst
gert síðasta sumar og var þá bréf skrifað til nýs kennara í
biochemiu, Boga Andersen, sem gaf mjög góða raun. I ár
voru skrifuð bréf til: Eiríks Arnar og kvartað undan of miklu
álagi í sálarfræði í clausus. Þetta leiddi til þess að einum hluta
kennslubókarinnar var sleppt. Rannsóknarnámsnefndar með
Björgu Þorsteins. Hannesar Blöndal vegna kennslu í
anatomiu höfuðs og háls. Ekkert svar hefur fengist. Kennslu-
stjóra með tillögu um ACLS kennslu á fjórða ári. Deildarfor-
seta þar sem kvartað var yfir prófinu í Iyfjafræði á þriðja ári.
Endaði með skipun prófdómara. Kennslustjóra þar sem úr-
vinnsla samkeppnisprófanna var rædd. Eftir það komst
nokkur kraftur í umræðuna um prófnefnd.
Fræðslumál
Skyndihjálparnámskeiðið - flutningur slasaðra og undirbún-
ingur fyrir flutning er stærsta málið í þessum málaflokki.
Námskeiðið var haldið á laugardegi í Læknagarði. Sex verk-
legar stöðvar voru þar sem stúdentar fengu að æfa mismun-
andi þætti skyndihjálpar. Ymsir aðilar aðstoðuðu okkur við
þetta verkefni og kunnum vi'ð þeim bestu þakkir fyrir. Þátt-
taka var mjög góð eins og við var að búast. Boðið var upp á
smá næringu og endaði dagurinn með heimsókn til Land-
helgisgæslunnar, þar sem flugflotinn var skoðaður.
Frœðslufundir
Óhætt er að segja að óvenju margir fræðslufundir hafi ver-
ið haldnir í vetur. Við stóðum ein að fjórum fræðslufundum
„Lieknir á austurströnd Grœnlands" sem Þengill Oddsson
flutti í máli og myndum.
„Þróunarverkefni í Súdan" sem Guðbjörg Ludvigsdóttir
flutti, einnig í máli og myndum.
„ Óhefðbundin blóðflokkamótefhi og hvers má vœnta afþeim
flutt af Soili Hellman-Erlingsson.
,J\fallahjálp “ þar sem Borghildur Einarsdóttir og Rúdolf
Adolfsson sögðu frá.
Einnig voru nokkrir fræðslufundir haldnir með öðrum
nemendafélögum
„Bótakröfúr á hendur Uknum“ - með Orator, félagi Iaga-
nema.
„Kynskiptiaðgerðir" - með Orator.
„Forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu"- með Félagi hjúkrun-
arnema.
„Óhefðbundnar Ukningar"- með hjúkrunar-, lyfjafræði- og
sjúkraþjálfunarnemum.
„Réttur mannsins til að meðhöndla erfðaefnið“ - með guð-
fræði- og heimspekinemum.
Nemendaráðgjöf
Þetta er annað árið sem nemendaráðgjafar eru við Lækna-
deild. Er þetta hugsað sem stuðningur við stúdenta ef þeir
Ienda í einhverju veseni og aðstoð við hvert þeir eigi að leita
með sín vandamál ef við getum ekki hjálpað þeim. Þar sem
þetta er annað árið, þá er hlutverk nemendaráðgjafa enn í
mikilli mótun. Þjónustan var ekki mikið nýtt, en þó áber-
andi meira en í fyrra. Það helsta sem var gert á sviði nem-
endaráðgjafar var:
Kynning fyrir claususnema. Þar kynntum við nemenda-
ráðgjöfina og þá síma þar sem hægt var að ná í okkur. Áform-
að er að víkka út þennan þátt.
„Velkomin í deildina" í samvinnu við Kristján Erlendsson.
Fyrsti tíminn hjá fyrsta árs nemum eftir niðurstöðu sam-
keppnisprófanna. Þar reyndum við að segja hvernig deildin
virkar og helstu reglum deildarinnar.
Utsýnisferð um Læknagarð undir handleiðslu Ellu Kol-
brúnar og Stefáns B. Sigurðssonar
Námskynning Háskóla Islands 1996.
Lítil námskynning í Menntaskólanum við Hamrahlíð að
ósk námsráðgjafa þar.
F.h. Kennslumála- og fyœðslunefridar
Pétur Vignir Reynisson
Skýrsla Ráðningastjóra
Framboð á stöðum dróst nokkuð saman ef miðað er við
fyrri ár. Síðastliðið ár voru 4958 vinnudagar í boði. Þetta er
um 11% fækkun frá fyrra ári. Af þessu voru í boði 3637
vinnudagar á spítala og 1321 vinnudagar í heilsugæslu.
Heildarmönnun í þessar stöður var 4582 vinnudagar eða um
92%.
Þennan samdrátt er að hluta til hægt að skýra með því að
þetta starfsár er aðeins 11 mánuðir. Uppsagnir heilsugæslu-
læltna frá 1. ágúst hafði einnig töluverð áhrif þar sem stöður
upp á 298 vinnudaga féllu niður. Einnig voru nýútskrifaðir
og unglæknar óvenjuduglegir við að næla sér í feitar heilsu-
LÆKNANEMINN ^ g 2. tbl. 1996, 49. árg.