Bændablaðið - 02.11.2023, Blaðsíða 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 2. nóvember 2023
CLT – EININGAR
�r�ssl� �ar ��bur�iningar
Grænar byggingalausnir
TIMBURGRINDARHÚS
WWW.EININGAR.IS
SÍMI: 565 1560 einingar@einingar.is
EININGAR EHF
Haukur og Kiddi
eru ekki róbótar
Hringdu í vini og fáðu tilboð hjá fyrirtækjaþjónustu Olís,
í síma 515 1100, eða á olis.is.
Fyrirtækjaþjónusta Olís
Alvöru fólk með alvöru þekkingu og reynslu
Þeir eru alvöru sérfræðingar með áratuga reynslu og
vita allt um smurolíur á landbúnaðartæki jafnt sem
skipaflotann.
Í stjórn Íslenska bútasaums-
félagsins sitja nokkrar mætar
konur, en ein þeirra, Sigrún
Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir, er
farin að huga að jólunum.
„Þegar líður á árið er alltaf gaman
að föndra eitthvað hátíðlegt til
skreytinga heima við eða mögulega
nota sem pakkaskraut,“ segir
Sigrún. Hún bætir við að upplagt
sé að spreyta sig á meðfylgjandi
uppskrift enda saumaskapurinn þar
bæði skemmtilegur og auðveldur,
enda sé bæði hægt að sauma í vél og
í höndunum.
Áhugasamir lesendur geta nú
sest við sauma, og muna að hafa
eftirfarandi við höndina: Fallegt
efni, td. úr bómull eða filti, troð,
tvinna/útsaumsgarn, skæri, nál
eða saumavél, nú og svo perlur/
pallíettur eða annað sem má sauma
á til skreytinga.
En gefum Sigrúnu orðið:
„Byrjið á að klippa út efnið
sem á að nota í verkið. Næst
að sauma jólatréð saman.
Ef það er gert í saumavél
er best að klippa sniðið
aðeins stærra en áætlað
er, því það er saumað
saman á röngunni
og svo snúið við.
Þeir sem sauma í
höndunum gera það
hins vegar á réttunni
með tvinna eða
útsaumsgarni.
Fyllið tréð léttilega með smá
troði og fyrir þá sem vilja er gaman
að skreyta það með perlum eða
pallíettum. Skiljið eftir op neðst á
trénu fyrir trjástofninn.
Stofninn má í stað efnis, vera úr
einhverju öðru, hvort sem það er
tréstubbur eða kanilstöng. Saumið
fótinn á tréð og/eða festið með lími.
Eins er farið að með trukkinn,
saumað er með vél eða í höndunum.
Ef saumavél er notuð í verkið er
gott að hafa opið (fyrir troðið) ofan
á pallinum til þess að hægt sé að festa
tréð þar við. Setjið smá troð í bílinn.
Ekki gleyma að setja band í þakið á
bílnum til að geta hengt hann upp.
Þegar bíllinn er kominn saman eru
dekkin fest báðum megin með þræði-
spori, eða hvernig sem hentar best.
Næst eru gluggastykkið og ljósið
fest á sama hátt og síðast eru útlínur
saumaðar á bílinn, með aftursting
eins og sýnt er á myndinni
Einnig getur verið gaman að gera
sína eigin útfærslu af bílnum og þá
má t.d. kíkja í töluboxin, hvort
leynist þar gamlar tölur sem
hægt er að nota sem dekk eða
ljós. /SP
Bútasaumur:
Saumum nú jólaskraut
Kristín Erlendsdóttir, ein kvennanna í stjórn Íslenska bútasaumsfélagsins
saumaði pallbílinn hér á myndinni af kostgæfni. Mynd / Aðsend
Klippa skal út tvö stykki af tré, trjábút, bíl og framljósi en fjögur stykki af
hjólum og hjólkoppum. Gott er að teikna munstrið upp á bökunarpappír
í því stærðarhlutfalli sem hentar og klippa efnið eftir því.
Volkswagen Caddy
Verð frá: 4.890.000 kr.
Eigum bíla til afhendingar