Úrval - 01.03.1964, Blaðsíða 32
22
ÚRVAL
ón staði, og á öðrum stað á
hver erfingi réttindi i 12 sek-
úhdur aðra hvora viku.
Landinu hefur næstum í bók-
staflegum skilningi verið skipt
niður í „lófastóra bletti“. Rann-
sóknir, sem nýlega fóru fram,
leiddu í ljós, að á einum stað
var landi, sem er ca. 2000 króna
virði, skipt á milli 309 „hlut-
hafa“ eða 1912 aðila. Eitt olífu-
tré var í eign 176 aðila. Það
er engan veginn sjaldgæft, að
tré séu í eign ákveðins hóps
manna, landið, sem trén standa
á, i eign annars hóps, og vatns-
réttindin i eign enn annarra
aðila.
Svarið við þessu ófremdará-
standi virðist augljóst. Það
verður að endursemja lög um
landareignir og vatnsréttindi og
fyrirskipa samsteypu mjög
smárra landareigna. En eftir er
að sjá, hvort rikisstjórnin ber
gæfu til að leysa þetta vandamál.
Bretland býður aðstoð sína —
milljón sterlingspunda áætlun
varðandi eimingu vatns úr sjó
verður að raunveruleika á þessu
ári.
Aukið atvinnuleysi er kald-
hæðnisleg' afleiðing þess, að
Bretar eru nú sem óðast að
hverfa á brott með setulið sitt,
en á sínum tíma kröfðust Kýpur-
búar þess, og Bretar lögðu á-
herzlu á að vera um kyrrt. Nú
veldur það Kýpurbúum miklum
áhyggjum, að hernaðartæknin
hefur breytzt og Bretar eru að
fara. Þetta er mikið áfall fyrir
Kýpur, vegna þess að á undan-
förnum árum hefur Vs af tekj-
uin Kýpurbúa komið beint eða
óbeint frá brezka hernum.
Samt sem áður er útlitið í
efnahagsmálum ekki eins afleitt
og ráðið verður af framansögðu.
Árið 1961 lauk umfangsmikilli
rannsókn á högum Kýpur, en
rannsókn þessi fór fram á veg-
um Sameinuðu Þjóðanna undir
stjórn Bandaríkjamannsins Dr.
Willard Thorp, og hann lagði
fram 5 ára áællun. Samkvæmt
henni verður mikil aukning á
rafmagnsframleiðslu, nýir vegir
verða lagðir, hafnir gerðar,
fiskveiði- og landbúnaðarvinnu-
aðferðir bættar, bankastarfsemi
skipulögð, leitað verður nýrra
málma, og (hið veigamesta) stór-
átak verður gert i sambandi við
vatnsvinnslu og rannsóknir 1
því efni. Heildarkostnaður er
áætlaður 174 milljónir dollara,
og' ber Kýpurbúum sjálfum að
leggja fram helming þeirrar upp-
hæðar, en afgangurinn verður
fenginn að láni hjá vinveittum
þjóðum og alþjóðastofnunum.
Bretland hefur þegar lofað þes-
ari „dóttur“ sinni 355 milljón
dollara heimanmundi.
í 5 ára áætluninni er einnig