Úrval - 01.03.1964, Blaðsíða 73
KVEF OG RÁÐ GEGN ÞVÍ
63
g'ufu af heitu vatni, sem t. d.
menthol, eucalyptus eða Friar’s
tíalsami hefur verið bætt í.
Likt og nefkvcf hefur i för
með sér vatnskennda útferð,
sem getur smám saman þykknað,
má segja, að hið sama gerist
neðar i öndunarfærunum, þegar
um lungnakvef (bronchitis) er
að ræða. Stifla i nefi hindrar
öndun og er óþægileg, en samt
er hægt að losa sig við hana
öðru hverju með þvi að snýta
sér, og enn rækilegar með þvi að
nota hentuga nefdropa eða inn-
öndunarstauta. En lungnakvef
getur leitt til stöðugt meiri
hindrunar á þeirri þýðingar-
miklu líkamsstarfsemi, sem önd-
un nefnist.
Ef þykkt slím er fyrir hendi
í pípunum, veldur þetta stöð-
ugum hósta, en hann er tilraun
til þess að ryðja burt sliminu,
sem hindrunina myndar. Þeim
lyfjum, sem læknirinn lætur
sjúklinginn fá, er svo ætlað að
auðvelda brottrekstur þessa
slíms. Stundum lætur hann
sjúklinginn fá eitthvert lyf tiJ
þess að draga úr slímmyndun-
inni og þurrka slimið upp.
Lungnakvef veldur vaxandi
mæði, þannig að slikt getur
dregið úr starfsgetu manna,
en slíkt er dæmi um þá bar-
áttu, sem háð er til þess að við-
halda þvi súrefnismagni i lik-
amanum, sem hann gerir kröfu
til.
Þvi ætti sjúklingurinn að
dvelja í rúminu og forðast þann-
ig, að Iíkaminn geri enn aukn-
ar kröfur til súrefnis, þvi að
það súrefni, sem lungunum
berst, verður að spara sem mest
handa hinum þýðingarmestu líf-
færum, heila, hjarta, nýrurn o.
fl. Einnig eru minni líkur til
þess, að kvillinn ágerist, ef
sjúklingurinn er rúmliggjandi.
Lungnakvef er mjög alvarleg-
ur sjúkleiki, og sá, sem af þvi
þjáist, hefur ástæðu til þess að
leita ráða og hjálpar læknis
sins. Það er heimskulegt að van-
rækja slíkt, því að það getur
haft alvarlegar afleiðingar. Fáir
þú kvef og vilji það ekki batna
við fyrstu tilraunir þínar til
þess að vinna bug á því, skaltu
ekki reyna að úrskurða sjálfur,
hvort um er að ræða lungna-
kvef, lungnabólgu eða einhvern
annan kvilla. Þú skalt þess í
stað ráðfæra þig við lækni þinn.
Árið 1960 urðu skýstrokkar 42 mönnum að bana í Banda-
ríkjunum og slösuðu Y03.