Úrval - 01.09.1964, Side 24

Úrval - 01.09.1964, Side 24
22 ÚRVAL botnfiska, og er nauðsynlegt að þekkja það til þess að gera sér grein fyrir ástandi ákveðins fiskstofns hverju sinni og áhrif- um veiðanna á hann. Ýsu- og skarkolastofnarnir hér við land eru mjög greinileg dæmi um ofveidda fiskstofna. Á árun- um 1922 til 1937 féll ýsuveiði Breta úr 243 vættum í 71 vætt á 100 togtímum, og á sama tímabili minnkaði skarkolaveiði þeirra úr 56 vættum í 18 vættir á 100 togtímum. Á striðsárunum fengu íslenzku fiskstofnarnir mjög óvænta vernd, en að styrjöldinni lokinni jókst aftur mjög mikið sóknin á íslandsmið. Vegna friðunar stríðsáranna var ýsuafli Breta árið 1946 358 vættir á 100 tog- tímum, eða fimmfaldur á við árið 1937, og skarkolaaflinn var sama ár 84 vættir, og hafði því um það bil fimmfaldazt líka. Þessi dýrð stóð þó ekki lengi, því að með mjög aukinni sókn lirakaði þessum stofnum svo mjög, að árið 1952 var ýsuafli Breta kominn niður í 169 vættir og árið 1953 var skarkolaafli þeirra aðeins 26 vættir á 100 togtímum. Ef við berum saman tímabil þau, sem hér hefur verið miðað við, annars vegar 1922—1937 og hins vegar 1946—1957, þá kemur í ljós, að á fyrra tímabil- inu hrakaði ýsuveiðinni um ca. 10 vættir á togtima á ári, en á seinna tímabilinu hrakaði lienni um ca. 27 vættir á togtíma ár- lega, eða 2,7 sinnum meira. Á sama hátt hrakaði skarkola- veiðinni um 2.4 vættir á tog- tíma á ári á fyrra tímabilinu, en um 7 vættir á togtíma árlega síðara tímabilið, eða tæplega þrisvar sinnum meira. Það er þvi greinilegt, að hin síaukna sókn eftirstriðsáranna hafði mikil áhrif á þessa stofna, og var sú þróun fiskveiðanna, sem hér hefur verið lauslega getið, mikilvægt atriði í öllum umræðum okkar um landhelgis- málið og nauðsynina á aukinni vernd þesara tegunda. Það er vitaskuld margt fleira, sem vita verður um stofninn en aflamagn það, sem hann gefur af sér á ákveðna sóknareiningu, ef meta skal ástand hans og framtíðarhorfur. Það er t. d. nauðsynlegt að þekkja sem bezt aldursdreifingu og lengdarein- ingu stofnsins, bæði hins ó- þroska og kynþroska hluta hans. Miklar sveiflur í stærð fiskstofna eru af eðlilegum orsökum, eins og t. d. missterkum árgöngum, og eru þær sveiflur vel þekktar hjá ýmsum nytjafiskum okkar, bæði flatfiskum, þorski og síld. Allverulegar sveiflur í aflamagni geta einnig orsakazt af breyti-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.