Úrval - 01.09.1964, Qupperneq 160
158
ÚRVAL
vi'ð þessi verkefni en flest önnur.
Auk þess var hann ekki sá mað-
ur, sem hann hafði einhvern
hálfvelgjuhátt á því, sem honum
var falið. Og nú var hann hárviss
um, að skip hans og menn myndu
hafa í fullu tré við hvað eina,
sem að höndum kynni að bera.
Og er hann hafði ráðgazt i
skyndi við Hðsforingjann,breytti
hann þvi skipuntim síiium og
„TREMENDOUS“ tók stefnu á
Portland.
Fyrsta daginn gekk allt vel.
Sólin skein, börnin undu sér
glöð á lciksvæðinu og sættu sig
við baðreglurnar. Jafnvel sumir
hinna fullorðnu meðal flótta-
fólksins sýndu löngun til að lifa.
Þá, snemma á „hundavaktinni“
hófust fæðingarhriðir þriðju
konunnar. Þessi fæðing gekk á
allt annan veg en hinar tvær
á undan. Hún stóð yfir í 16
klukkustundir. Öllum sjóliðunum
um borð var Ijóst, að hefðu þeir
bara farið til Bordeaux, hefði
allt gengið að óskum. Það var
líkt og heiður skipsins væri í
veði. Og allir um borð, 125
manns, yfirmenn og óbreyttir
sjóliðar, gengu fram og aftur
eftir þilfarinu, með hendur fyrir
aftan bak eins og kvíðafullir
eiginmenn, nema þeir sem voru
á skylduvakt.
Lengi vel voru orðsending-
arnar frá „fæðingardeildinni"
ekki sérstaklega upplífgandi. En
ioks kom boðberi þjótandi upp
i brúna eftir ianga andvökunótt.
„Allt i lagi, skipherra, allt í
lagi,“ hrópaði hann. Þá áttaði
hann sig. „Afsakið, skipherra,
Ég var með boð frá liðsforingj-
anum. Escarmota hefur eignazt
dreng. Móður og barni Hður vel.“
Skipherrann hafði fulla stjórn
á sér. Hann hafði ekki einu sinni
deplað augunum.
Skipið kom sem sigurvegari
inn á höfnina i Portland. Helm-
ingur heimaflotans var þar, og
sagan hafði þegar borizt viða.
Lúðrar voru þeyttir, og heilla-
óskir voru gefnar til kynna með
merkjasendingum, er „Tremen-
dous“ sigldi fram hjá. Skip-
herrann var ánægður með viku-
verk sitt. Honum hafði verið
fengið verkefni, og hann hafði
leyst það af hendi hjálparlaust
og klakldaust. Er skipið sigldi
fram hjá flaggskipi flotans, lét
hann hinn vesæla farþegahóp,
börnin, standa í röð fyrir framan
áhöfnina og heilsa að hermanna-
sið.
Siðar skrifaði aðmírállinn, að
vísu fyrir eggjan konu sinnar,
all ákveðið bréf til flotamála-
ráðuneytisins og lagði til, að
nöfnin Perez, Cheverra og Esc-
armota skyldu sett á afrekalista
„TREMENDOUS“.