Úrval - 01.06.1965, Side 73

Úrval - 01.06.1965, Side 73
PABLO RVIZ PICASSO 71 ar fór Picasso að teikna búninga fyrir ballett Diaghileffs hins rúss- neska, og sýnir það furðulega fjöl- hæfni hans. Hann mótaði einnig myndir og gerði þrykkmyndir. Snilligáfa hins lágvaxna Spánverja átti sér engin takmörk. Þegar rúss- neski ballettinn hélt frá París til Madrid og Barcelona, slóst Picasso í för með honum, og það var á Spáni, árið 1918, að hann gekk að eiga rússnesku ballettdansmeyna Olgu Koklovu. Skömmu síðar héldu brúðhjónin til Parísar. Styrjöld- inni sjálfri var að vísn lokið, en engan veginn þjáningum hennar og hörmungum. Skáldið Appollinaire, sem var mikill vinur Picassos, hafði særzt í stríðinu og lézt nokkru síð- ar í París. Lát hans var mikið á- fall fyrir Picasso. Þegar honum barzt andlátsfregnin, var hann einmitt að teikna af sér sjálfsmynd eftir spegli, mynd sem táknar enda- lok eins tímabilsins í list hans. Kær vinur var horfinn, og til minningar um hann hætti Picasso að mála sjálfsmyndir, sem hann hafði gert svo oft fram að þessu. En enda þótt hann hætti að mála sjálfan sig, málaði hann ódauðleg- ar myndir af frægum samtíðar- mönnum sínum, svo sem Cocteau, Stravinsky, Louis Aragon og Paul Valery. í verkum Picassos birtist óendanleg fjölbreytni og hann hefur tjáð sig i öllum hugsanlegum list- formum. Hann hefur málað i kúb- isma, expressionisma og surreal- isma; hann hefur verið myndhöggv- ari og gert muni úr keramik; hann hefur annast leiksviðsskreytingar og teiknað búninga, og hann hefur teiknað auglýsingar og skreytt bækur. Og á öllum þessum sviðum er hann sami meistarinn. Segja mætti, að Picasso sé brennidepill og uppspretta alls þess, sem átt er við, þegar talað er um list tuttug- ustu aldarinnar. Eftir daga Leon- ardos hefur enginn listamaður ver- ið gæddur svo fjölbreyttum og ein- stæðum hæfileikum. Það er ekkert efamál, að Pic- asso er mesti byltingarmaðurinn i málaralist tuttugustu aldarinnar. Breytingarnar, sem runnar eru undan rifjum hans, eru alveg eins nýstárlegar og áhrifamiklar og þær, sem meistarar ítölsku endurreisn- arinnar voru upphafsmenn að. Michelangelo, Rafael og Leonardo da Vinci breyttu hinu flata tví- víddarmálverki miðaldanna i þrí- víddarverk, sem einkenndist af raunsæi, og þetta form var síðan ríkjandi og hefðbundið i evrópskri list, unz Picasso kom til sögunnar. En hefð og venjur verða litlausar og ófrjóar með tímanum; sú stund kemur, að þær verða að fá nýtt blóð, ef þær eiga ekki að veslast upp og deyja. Þannig var orðið á- staít á síðari hluta nítjándu aldar- innar að því er málaralistina snerti. Málararnir hugsuðu ekki um annað en að stæla náttúruna eða raunar aðeins ytra borg hennar, en myndavélin, sem þá hafði ný- lega verið fundin upp, gat að vísu gert þetta miklu betur. Það var við slíkar aðstæður, sem Picasso hóf lífsferil sinn. Árið 1907, þegar hann var tuttugu og sex ára gamall, málaði hann mynd, sem markaði ekki aðeins tímamót í lífi hans
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.