Úrval - 01.10.1966, Side 38
36
ÚRVAL
M þrem árum eftir krossfest-
ingu Krists var ungur GyS-
ingur frá Tarsus, Sál að
nafni, á leið til Damaskus,
og er hann var kominn ná-
lægt borginni, leiftraði skyndilega
um hann ljós af himni og áhrif þess
voru slík, að hann féll til jarðar.
„Sál, Sál!“ kallaði rödd Jesú til
hans, „hví ofsækir þú mig?“ Það
varð að leiða unga manninn inn í
borgina, því að hann var blindað-
ur og sem lamaður af áhrifum þessa
furðulega viðburðar. t|ann fékk
ekki sjónina aftur fyrr en eftir 3
daga, en þegar hann sá á nýjan
leik, var hann sem endurfæddur,
„útvalið" verkfæri Drottins.
Þannig gerðist ein mesta persóna
í sögu kristinnar trúar trúuð vegna
hins furðulega viðburðar, sem olli
ofsafengnu uppnámi í sál hennar.
Brátt hætti Sál að nota hið he-
breska nafn sitt og tók upp latn-
eska nafnið Páll, sem var tamara
hinum ýmsu þegnum Rómaveldis.
Hann gerðist trúboði meðal heið-
ingjanna og eyddi ævi sinni á
ferðalagi um ýmis þau lönd, sem að
Miðjarðarhafinu liggja, og boðaði
þjóðum þeirra fagnaðarerindið. Hann
stofnaði nú nýja kristna söfnuði
víðast þar sem hann fór um og
gerði þannig kristna trú, sem hafði
aðeins verið trú lítils hebresks trú-
arfélags, að einum helztu trúar-
brögðum heimsins. Og jafnframt
því kom hann fram með hug-
myndakerfi í ræðum sínum og
bréfum, sem hefur allt til þessa
verið sá grundvöllur sem kenning-
ar kristninnar hvíla á.
ÁKAFUR ANDSTÆÐINGUR
Ævi fárra persóna fornaldarinn-
ar hefur verið eins ýtarlega í letur
færð og ævi Páls. Auk hans eigin
bréfa, sem lýsa persónu hans svo
vel, hefur Postulasagan einnig að
geyma dagbók Lúkasar samverka-
manns hans, heiðingjans, læknisins
og höfundar þriðja guðspj allsins.
Og þessar ýtarlegu heimildir skýra
frá lífi, sem er eitt mesta ævin-
týri allra tíma. Þar má lesa um
fjölmargar hættur, skjótar ákvarð-
anir, nauma undankomu og hrika-
lega atburði.
Páll fæddist um árið 5 í borg-
inni Tarsus í Litlu-Asíu. Nú er
Tarsus syfjulegur tyrkneskur bær,
en þá var bærinn eitt mesta mennta
setur heimsins, og þar að auki stóð
iðnaður og verzlun þar með einna
mestum blóma. Þar var hópur inn-
flytjenda af Gyðingaættum, og
bjuggu þeir þar í velsæld. Margir
þeirra höfðu öðlazt borgararétt,
sem fullgildir borgarar hins róm-
verska heimsveldis.
Sál hafði lært tjaldsaum, þegar
hann var lítill drengur. Ef til vill
hefur ástæða þess verið sú, að
faðir hans var vefnaðarvörukaup-
maður. En gáfur hans gerðu hann
að kjörnum leiðtoga. Hann var enn
á unglingsaldri þegar hann hélt af
stað til Jerúsalem til þess að læra
hjá Gamalíel, hinum heimsfræga
Gyðingapresti. Það var í musterinu,
þar sem jaífnan var margt um
manninn, að hann heyrði fyrst talað
um Krist, sem ferðaðist þá um
hæðir og fjöll Galíleu og predikaði
fyrir lýðnum. Sál hitti Krist að
vísu aldrei, en þegar hann heyrði