Úrval - 01.10.1966, Síða 44
42
ÚRVAL
Um tveim mílum nær gamla borg-
armúrnum hefur hin risavaxna
Basilíka „Sankti-Páls-Utan-Múr-
anna“ verið byggð utan um litla
minningarkapellu, sem reist var
skömmu eftir píslarvætti postul-
ans.
Svo liSu önnur 250 ár, þangað til
kristin trú var orðin ríkjandi trú
Rómaveldis. En úrslitaorrusturnar
höfðu þegar verið unnar. Jesús frá
Nazaret hafði myndað ný trúar-
brögð. Og hinn ummyndaði Sál frá
Tarsos, sem hafði séð í trúarbrögð-
um þessum sáluhjálp öllum mönn-
um til handa, hafði útbreitt. hin
miklu, nýju trúarbrögð víðs vegar
um hið mikla heimsveldi.
3W£
„KITLTAL"
Hvernig á að koma þýðingarmiklum skilaboðum til vélastarfsmanns,
sem má ekki líta frá vél sinni, og tryggja um leið, að hann verði ekki
fyrir truflun?
Þetta vandamál skýtur oft upp kollinum í verksmiðjum, einkum þegar
vélunum fylgir mikill hávaði og það gæti haft alvarlegar afleiðingar, ef
athygli starfsmannsins er beint frá vélinni.
Vísindamenn, sem unnið hafa við slíkar rannsóknir á vegum Lock-
heed-Georgia félagsins i Bandaríkjunum, eru að reyna að leysa þetta
vandamál með nýju fjarskiptakerfi, sem gefið hefur verið nafnið
„kitltal".
Þeir hafa komizt að því, að hægt er að senda einfalda orðsendingu
á merkjamáli til starfsmannsins með veikum rafstraumi, sem veldur
kitlandi ertingu í fingrum hans. Svo að starfsmaðurinn geti tekið á
móti skilaboðunum, verður að festá „elektróður“ við fingurna, en
frá þeim liggja þræðir upp í errnar hans.
Vísindamennirnir skýra frá því, að aðeins þurfi að nota fjóra fingur
annarrar handar til þess að mynda einfalt merkjamál, sem grundvallað
er á löngu og stuttu ,,kitli“ og breytilegri röð þeirra fingra, sem „kitl-
aðir“ eru. Þetta kerfi er nokkuð hliðstætt morsekerfinu.
En fremur hafa þeir skýrt frá því, að eftir 12 stunda kennslu hafi
einn starfsmannanna getað skilið hvers konar orðsendingar, sem honum
bárust, svo framarlega sem hraðinn fór ekki fram úr 40 orðum á mín-
útu. Þeir vona, að innan skamms takist þeim að fullkomna merkja-
kerfi, sem sé svo afkastamikið, að „kitltal" nái venjulegum talhraða
eða um 200 orðum á mínútu.
Grænmetisæturnar hylla dr. W.B. Bauer. „Þið skuluð ekki hnussa
fyrirlitlega yfir kanínufæðu," sagði hann í ræðu á fundi Bandaríska
læknafélagsins. „Kanínan hefur enga ístru og hefur mikinn áhuga á
kvenkanínum og þokka þeirra allt fram á elliár.“
En hver kærir sig um tvö hundruð tengdamæður með löng eyru?
Sunday Mirror