Úrval - 01.10.1966, Síða 59
MEÐFERÐ LIFANDI MÁLS
57
málið, og með réttu. Við erum af
skiljanlegum ástæðum hreykin af
því að hafa getað varðveitt hina
fornu tungu Norðurlandaþjóða. En
. nú 'vill svo undarlega til, að þessi
ást okkar á tungunnT virðist einung-
is ná til ritaðs máls, a.m.k. ef dæma
má eftir því virðingarleysi, sem
hingað til hefur verið sýnt töluðu
máli íslenzku.
Mér er ekki kunnugt um, hvað
kann að hafa verið skrifað og skraf-
að . um íslenzkan framburð fyrr á
öldum, en ekki er mér grunlaust
um, að það sé sáralítið. Á þessari
öld má segja, að hljótt hafi verið
um þetta mál frá því Guðmundur
heitinn Björnsson landlæknir skrif-
aði merka grein í Skólablaðið 1912,
sem hann nefndi Réttritunarheimska
og framburðarforsmán, og þangað til
dr. Björn Guðfinnsson hóf háskóla
fyrirlestur sinn um framburð og
stafsetningu haustið 1946. Skylt er
þó að geta þess, að nokkrir merkir
menn studdu málstað Guðmundar
landlæknis og skýrðu frá sjónar-
miðum sínum í þeim efnum. Má til
dæmis nefa grein Helga Hjörvars í
XII. árgangi Skólablaðsins um fram-
burðarkennslu og hljómbætur, og
grein Jóhannesar L. L. Jóhannesson-
ar í sama blaði um þetta efni. Þá
hafði Þorsteinn Gíslason, skáld, áð-
ur einnig skrifað mjög vinsamlega
grein stílaða til Guðmundar land-
læknis um þetta mál.
Að vísu má segja, að grein Guð-
mundar hafi aðallega fjallað um
stafsetningu, en þar er þó að finna
þessi athyglisverðu orð um fram-
burð á íslenzku:
„Ég fæ ekki betur séð, en það
væri ofurhægt, að semja nákvæmar
framburðarreglur og laga og fegra
framburðinn að miklum mun; þessi
reglubundni, fagri framburður ætti
að vera sparibúningur málsins;
þannig ætti að kenna málið í öllum
skólum og þannig ættu allir mennt-
aðir menn að tala. — Réttmæli er
undirstaða réttritunar“.
Þessi orð hins gáfaða landlæknis
eru enn í fullu gildi. Vert er að
vekja athygli á síðustu setningunni:
„Réttmæli er undirstaða réttritun-
ar“. Við þurfum ekki að leita lengi
il þess að finna rökstuðning fyrir
þessari skoðun; hver hefur ekki ein-
hverntíma fengið bréf þar sem auð-
veldlega má lesa úr rithættinum
framburðargalla höfundar, svo sem
flámæli, linmæli o.s.frv.
Sé því skoðun Guðmundar Björns-
sonar rétt, að réttmæli sé undir-
staða réttritunar, liggur í’ augum
uppi, hve réttur og fagur framburð-
ur móðurmálsins er nauðsynlegur
hverjum manni.
í sambandi við vakandi áhuga á
fögrum framburði móðurmálsins er
skylt að minnast hér sjóðsstofnunar
Helga Hjörvars og konu hans til
minningar um son þeirra, Daða, en
tilgangur þess sjóðs er að verðlauna
fegurst mál talað í útvarp, að mér
skilst.
Þótt þeim, sem kenna íslenzku í
skólum okkar, ætti ekki að verða
skotaskuld úr því að leiðrétta mein-
legustu villur í framburði nemenda,
ber hins að minnast, að hér á landi
hefur engin samræming íslenzks
framburðar enn átt sér stað. Má
reyndar segja, að hún hafi ekki ver-
ið framkvæmanleg, sökum skorts á