Úrval - 01.10.1966, Blaðsíða 68
66
ÚRVAL
Frank sótti um starfið. Þegar Sulli-
van hafði litið á teikningar Franks,
sagði hann: „Þetta er teiknað eftir
fyrirmynd, er ekki svo?“ „Nei,“
svaraði umsækjandinn, „ég gerði
það fríhendis." Hann var ráðinn
þegar í stað og vann næstu sex ár-
in hjá Sullivan. Hann kynntist fal-
legri, ungri stúlku, Katrínu Toblin,
og gekk að eiga hana, enda þótt
íjölskyldur beggja væru andvígar
ráðahagnum.
Árið 1893 hætti Frank að starfa
hjá Sullivan og setti á stofn sitt
eigið fyrirtæki. Hann fékkst eink-
um við að, teikna íbúðarhús, enda
er talið að snilld hans hafi hvergi
notið sín betur en á því sviði.'Hann
hafði þeg'ar byggt sér hús og nú
reisti hann sér vinnustofu, sem var
tengd húsinu með gangi. Við þenn-
an gang var það athyglisvert, að
hann var byggður kringum pílvið-
artré og stóð stofninn upp úr þak-<
inu. Eftir því sem álit Franks óx
og efnahagur hans batnaði, stækk-
aði líka barnahópurinn. Hann átti
sex börn með Katrínu, en þó yfir-
gaf hann hana síðar vegna annarrar
konu, frú Cheyney, sem varð sam-
búðarkona hans xrm hríð.
Árið 1914 gerðist mikill harm-
leikur á heimili Franks. Dag nokk-
urn, þegar hann var staddur í Chi-
cago ásamt einum sona sinna, varð
einn þjónninn á Keimilinu skyndi-
lega brjálaður. Hann þreif öxi og
hjó frú Cheyney og sex aðra heim-
ilismenn til bana; hann kveikti síð-
an í húsinu og framdi loks sjálfs-
morð. Þessi hræðilegi atburður fékk
svo mikið á Frank, að hann varð
aldrei samur maður síðan.
Þrátt fyrir margskonar erfiðleika
í einkalífi sínu, naut Frank stöðugt
meira álits og jafnframt óx öfundin
og óvildin í hans garð af hálfu
keppinautanna.
Það var á árum fyrri heimsstyrj- -
aldarinnar að honum var falið að
teikna Imperialhótelið í Tokyo. Allt
frá því er hann kom í fyrsta sinn
til Japan árið 1905 hafði hann verið
hrifinn af byggingarlist japönsku
þjóðarinnar, en það sem hreif hann
mest voru hin nánu tengsl bygg-
inganna og umhverfisins. Japanir
voru stórhrifnir af frumdráttum
Franks og hann var beðinn að
teikna hótelið. Hann hafði nú
kynnst konu nokkurri, Miriam
Noel, og fór hún með honum til
Japan, þegar hann fór að vinna að
hótelteikningunni. Hann var á sí-
felldu ferðalagi milli Bandaríkj-
anna og Japan í sjö ár. Stuttu eftir
skilnað hans og Katrínar og ári
eftir að hótelbyggingunni var lokið
1922, giftist hann frú Noel. Þau
héldu brúðkaup sitt drungalegan
nóvemberdag og hjónavígslan fór
fram á mjög einkennilegan hátt.
Frank Lloyd Wright og brúður hans
voru gefin saman á miðri brúnni
yfir Wisconsinfljótið, en það átti
að vera tákn þess, að brúaðar hefðu
verið þær torfærur, sem hindruðu
giftingu þeirra. En hjónabandið
varð hamingjusnautt. Maðurinn,
sem var orðinn frægasti arkitekt
heimsins var alltaf jafn óheppinn
,í ástum. Nokkrum mánuðum eftir
giftinguna fór Miriam af heimilinu
og settist ac5 í Los Angeles.
Frank reyndi að gleyma sorgum
sínum með því að sökkva sér niður