Úrval - 01.10.1966, Page 74

Úrval - 01.10.1966, Page 74
72 ÚRVAL ur og upp gaus ægilegt reykhaf, en gneistarnir flugu í allar áttir. Ég lá grafkyrr. Það var orðið of seint að koma Wayne litla til hjálpar. Einhver kom með hin börnin úr skólanum. Þau gengu mjög hægt til mín, náföl og dauðhrædd. Ég reyndi að faðma þau öll að mér og halda þeim í faðmi mínum. Svo fóru þau að gráta. Og svo kom einn mannanna skyndilega skálmandi upp hæðina .. og hann leiddi Wayne litla sér við ævi minnar, 25 ára erfiði, hafði orð- ið eldinum að bráð. Þetta var nú allt ein öskuhrúga, búðin, vöru- birgðirnar, sem ég var ekki enn búinn að borga, heimiJi okkar, jafn- vel matarbirgðir okkar til vetrar- ins. Mér fannst ég allt í einu vera orðinn eldgamall. Ég varð sem lé- magna af þreytu. Allt í einu skynj- aði ég, hversu auðvelt það væri að gefast upp og flytja í einhvern af bæjum hvítu mannanna, eins og hönd! Wayne, lifandi og heilan . á húfi! „Hann var þarna niður frá að leika sér við hundana", sagði mað- urinn við mig. „Hann fór alls ekki inn í húsið“. Ég greip litla drenginn minn hrærður í huga og þrýsti honum svo fast að mér, að hann hlýtur að hafa sárkennt til. Þegar ég sleppti honum, reyndi ég að brosa, svo að hann yrði ekki hræddur. Það var ekki svo að skilja, að ég hefði mikla ástæðu til að brosa.' Allur afrakstur svo margir Indíánar höfðu gert, og lifa þar af snattvinnu eða ölmusu. Kannske væru börnin mín jafnvel betur komin, ef ég léti bara þorp- ið eða héraðið um að sjá um þau. En mér var það algerlega ómögu- legt að gefast þannig upp. Oll sú reynsla, sem ég hafði aflað mér, all- ir þeir jákvæðu eiginleikar, sem ég hafði tekið að erfðum, allt þetta krafðist þess, að ég héldi áfram að berjast. Ég hafði fæðzt við endi- mörk auðnanna og nú var ég kom- inn aftur á þann sama stað, sem ég VIÐ ENDAMÖRK AUÐNANNA 73 hafði lagt upp frá. En enginn hafði nokkru sinni lofað nokkrum manni, hvorki Indíána, Eskimóa né hvítum manni, að lífið yrði auðvelt í þessu villta landi. Maður verður að berj- ast fyrir hverju því, sem er manni kært og þýðingarmikið. Hinn hvíti faðir minn kenndi mér þá lexíu. Og móðir mín, sem var Indíáni, lærði þá lexíu á erfiðri ævi. Morð og afleiðingar þess. Móðir mín, sem hét Anna, var vöruskiptaverzlun. Þegar mamma var stálpuð telpa og síðar ung stúlka, fylgdi hún pabba sínum alltaf i verzlunarferðum þessum og lærði þannig tungumál Eskimóanna. Fyrri maðurinn hennar var veiði- maður, Victor Bifelt að nafni. Eini nágranni þeirra var hvítur maður, Ned Regan að nafni. Hann bjó fjór- um mílum neðar við Koyukána. Veiðisvæði Regans var geysistórt, en samt lenti hann í illdeilum við Bifelt vegna veiðigildru úti í skóg- af Athabascanættkvíslinni, sem bjó inni í landi, nálægt Yukonfljóti. Það hafði alltaf verið grunnt á því góða milli Indíánanna og Eskimóanna og oft höfðu orðið grimmileg og blóð- ug átök þeirra á milli. Einu frið- samlegu samskiptin höfðu þeir átt saman fyrir tilstilli föður hennar, sem var kaupmaður. í marzmánuði ár hvert hélt hann ætíð til endi- marka yfirráðasvæðis Indíána til þess að hitta þar Eskimóann Schili- kuk, sem var einnig kaupmaður. Og þar eyddu þeir nokkrum dögum við inum. Og dag nokkurn kom Reg- an æðandi inn í kofann þeirra síð- degis og hleypti úr byssu sinni beint framan í Bifelt. Hann myrti hann að Önnu ásjáandi, en hún horfði á skelfingu lostin. Ári síðar fóru fram réttarhöld yfir Regan í Nome, og þá var þess krafizt ,að móðir mín mætti þar sem vitni. Hún vildi ekki fara. Það var 750 mílna sigling til Nome, og hún varð að leggja af stað í sept- ember, áður en árnar legði. Því yrði hún að vera fjarvistum frá sínu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.