Úrval - 01.10.1966, Side 113
BÝFLUGAN
111
— Hvemig vita býflugurnar
hverju sinni, hvaða störfum þarf
að sinna? Hverskonar vitundarlíf er
það, sem þær lifa og gerir þeim
kleift að ákveða hverju sinni, hvort
þörf sé t.d. fleiri æxlunarklefa eða
nýrra varðsveita.
Árið 1925 skaut þeirri hugmynd
upp í kollinum á þýzkum vísinda-
manni, að aldur býflugunnar stjórn-
aði að einhverju leyti starfsemi
hennar. Hann xnerkti með lit hóp
af býflugum, sem komu úr æxlun-
arklefum. Ekki höfðu hinir veiku
vængir þeirra fengið stinnleika
sinn, fyrr en þær voru farnar að
hreinsa klefana og síðan fóru þær
til elztu lirfanna í vaxkökum og
byrjuðu að gefa þeim býflugna-
mjólkina.
Þjóðverji þessi, G. A. Rösch, at-
hugaði hinar merktu býflugur vand-
lega undir smásjá sinni til þess að
reyna að gera sér grein fyrir hvort
hinn líkamlegi þroski þeirra stæði
í nokkru sambandi við störfin.
Það reyndist svo vera. Þær höfðu
í vexti sínum jafnframt myndað
pharyngeal eða býflugnamjólk í
hausnum framan við heilann og
þannig fór það ekki á milli mála,
að þær fæddust sem hjúkrunar- eða
matþernur.
Að fáeinum dögum liðnum, fóru
þessar merktu matþernur frá elztu
lirfunum og til hinna yngstu. Eftir
að Rösch hafði rannsakað þetta
lengi, taldi hann ekki vafa leika á
því, að yngstu matþernurnar not-
uðu elztu lirfurnar og elztu mat-
þernurnar notuðu yngstu lirfurn-
ar.
Dagarnir liðu, og þá fóru hinar
merktu býflugur að hætta matar-
gjöfunum og byrjuðu að safnavökva
í hunangssarpinn til vaxmyndunar.
Það sýndi sig, að mjólkurvökvi
þeirra,, hafði vea-ið að ganga til
þurrðar. Meðalaldur þessara mat-
þerna var 11 dagar þegar þessi breyt-
ing varð. Á fimmtánda degi, þá
byrjuðu þær að mynda vax. Smá-
sjárrannsóknirnar sýndu, að það
höfðu orðið miklar líkamlegar
breytingar á þeim um leið og þær
skiptu þannig um hlutverk.
Á átjánda degi lífs, síns tóku þess-
ar merktu býflugur að gæta varð-
starfa og á tuttugasta og fyrsta degi
ævinnar virtist vaxvökvinn ganga
il þurrðar og nú urðu þær forða-
þernur og fóðuröflunar- eða veiði-
þernur. Rösch taldi að þernurnar
næðu 38 daga aldri.
Aðlögunarhæfileiki býflugunnar.
Þegar vitnaðist um rannsóknir
Rösch, þá skunduðu aðrir vísinda-
menn til liðs við hann. í Munchen
var að störfum dr. Martin Lindauer,
sem veitti athygli margbreytileika
þeirra tímaákvarðana, sem Rösch
hafði gert. Hann, til dæmis, stóð
eina merkta býflugu að því, að
standa á verði í níu daga, en svo
löng varðstaða var óþekkt fyrir-
bæri. í Rússlandi var frú L. I. Per-
epelova einnig að fást við þessar
rannsóknir og hún lýsti því yfir að
hún hefði fundið nokkrar bráð-
þroska býflugur, sem fóru að mynda
vax eins og tveggja daga gamlar,
en það var yfirleitt verk 15 daga
gamalla þerna.
Þannig var það augljóst mál að
býflugan hafði mikinn aðlögunar-