Úrval - 01.10.1966, Side 120

Úrval - 01.10.1966, Side 120
118 ÚRYAL valdið því að hjartveikur maður fái kast að nóttu. Svo virðist sem rann- sóknir ætli að staðfesta þetta, and- arteppuköst koma oftast þegar sá þáttur svefnsins, sem draumar fylgja, stendur yfir. Þegar maður er vakinn af REM eða draumsvefni um miðja nótt, breytast draumarnir oft úr óljósum atriðum, sem varla eru frábrugðin daufum hugrenningum um hið nær- tæka og alvanalega — dagleg störf og tómstundaiðkanir, heimili og kunningja — í langtum skýrari drauma, fjarlæga veruleikanum fjarræna eða fáránlega, það sem eft- ir er nætur. Ef til vill er þarna að finna lykilinn að skilningi á eðli drauma. Lífeðlisfræðingar, sem einkum fást við rannsóknir á taugakerfinu, og hafa haft til þess ketti, hafa fund- ið óvenjulegt fjör í aðalstöðvum heilans meðan þá dreymir, þar sem minni og tilfinningar eiga sæti. Ef til vill hafa nýjar endurminningar tvinnazt hinum eldri. runnið saman í hærri einingu, þar sem raknað hefur úr gömlum minnisþáttum. Draumar til Iækninga. Bæði REM- svefn og delta-svefn virðast vera lífsnauðsyn. Dr. William C. Dement prófessor við Stanfordháskóla tók eftir því að þegar hann svipti til- raunamenn sína (eða dýr) REM- svefni (en leyfði þeim að njóti hinna þáttanna), urðu skjótt breytingar á heilanum bæði hjá dýrum og mönn- um, jafnvel þó að hegðun þeirra virtist ekki breytast. Næstu nótt eft- ir þetta virtist vera aukin þörf á draumsvefni, og þegar þeim loks var leyft að njóta allra drauma sinna, hófst „draumsvall“ — það var eins og þeir þyrftu að vinna upp og meira til það sem þeir höfðu tapað úr. Sumir geðsjúklingar og elliær gamalmenni hafa óeðlilega stuttar eða strjálar draumfarir, og einnig þeir sem skortir eirð til að sofa vel, og þeir sem drukkið hafa óhæfilega stóran skammt af áfengi, svefnlyfj- um, amfetamíni eða deyfilyfjum. Lífeðlisfræði draumlífsins er nú sem stendur mikið rannsóknarefni. Sumir halda að unnt verði að lækna geðsjúkdóma með nokkurskonar draumlækningum, gefa sjúklingun- um efni sem eykur draumsvefn og drauma. Til þess eru nokkur efni fáanleg, þ.á.m. hafa sjúlkingumþess- um verið gefnar örsmáir skammtar af LSD, — með þeim árangri, að draumsvefninn hefur aukizt. Við vitum nú að svefnskammtar, áfengi, deyfilyf og róandi lyf, valda manni ekki eðlilegum svefni. Þessi efni breyta svefninum, REM-svefn- inn verður styttri og strjálli. Örv- unar- og hressingarlyf, eins og am- fetamín hafa sömu áhrif. Ekki er minnst vert um þá vitn- eskju, að svefnleysi og ófullnægj- andi svefn stafa af margvíslegum orsökum. Ef maður þjáist af lang- vinnu svefnleysi, hlýtur til þess að vera einhver sérstök ástæða, og það er einungis á valdi læknis að skera úr um það hvaða lyf skuli gefa. Svefnlyf, sem svæfir einn, getur gert annan svefnvana, lyf sem ætl- að er til að hugga og friða, hefur gert þunglyndan mann enn þung- lyndari.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.