Úrval - 01.08.1967, Síða 14

Úrval - 01.08.1967, Síða 14
12 ÚRVAL leyti, t. d. gefa því að borða. Er mæðrunum þá séð fyrir viðeigandi aðstöðu til að sinna börnum sínum. Þar sem mörg börn þola þessi tengslrof sérstaklega illa á aldrin- um 6—18 mánaða, er á sumum hinna beztu barnaheimila ætluð sérstök herbergi til þess að mæður geti dvalizt þar hjá börnum sínum tíma og tíma. Ég sagði, að mæðrum væri gert að skyldu að heimsækja og annast barnið. A því er vissulega regm- munur og hinu, að mæðrum sé leyft að heimsækja barnið, en að öðru leyti látnar afskiptalausar. Gott barnaheimili greinist frá slæmu ekki minnst á því, að á hinu fyrr- nefnda er góður skilningur á þýð- ingu móðurinnar fyrir barnið og ailt gert til þess að treysta og við- halda nánu sambandi á milli þeirra. Nú er það svo með margar mæður, sem setja börn sín á vistheimili, að þær eru óþroskaðar, fákunnandi um þarfir barna og lítt til móður- umhyggju fallnar af mörgum ástæð- um. Öllum ber saman um, að nauð- synlegt sé að kenna þessum mæðr- um umönnun barna sinna, brýna fyrir þeim skyldur þeirra og ábyrgð. Því þarf forstöðukona heimilisins og sérfræðilegir ráðunautar að leggja mikla alúð við þessa hlið málsins. Sé þessu atriði gefinn góð- ur gaumur kemur fljótt í ljós hvaða mæður geta tekið börnin aftur, er aðstæður þeirra breytast og hverj- ar þarf að svipta forræði. Þetta er mjög þýðingarmikið, vegna þess að með því móti er hægt að ganga fljótt úr skugga um, hvaða börn- um þarf að sjá fyrir varanlegu einkafóstri. Miða ber að því að hafa barnaheimilisdvölina eins skamma og mögulegt er, en sjá barninu sem fyrst fyrir móðurslaðgengli. Allir eru sammála um, að það sé í hæsta máta óheppilegt að reka vöggustofur sem sjúkrahús. Séu þau börn, er koma á vöggustofuna veik — eða veikist þau — á vita- skuld að stunda þau á barnadeild- um sjúkrahúsa eins og önnur börn. Engin rök mæla með því, að vöggu- stofur skuli líkjast sjúkrahúsum. Margar röksemdir eru hins vegar á móti. Allur svipur vöggustofunn- ar verður einhæfari og óheimilis- legri, umönnun oft ópersónulegri, óþörf áherzla lögð á kerfisbundna reglusemi, og sérvizkulegt hrein- læti. Allt þetta er í andstöðu við þá eðlilegu grósku og lífræna frjáls- ræði, sem þarf að umlykja barnið til þess að það fái notið sín. Samkvæmt þessu á því forstöðu- kona vöggustofu að vera fóstra með haldgóða sérmenntun og þjálfun í meðferð ungbarna. Hún þarf að búa yfir traustri þekkingu á þörfum barna og þroskaskilyrðum þeirra og vera vel vitandi um þær hætt- ur, sem geta verið samfara starf- rækslu vöggustofu. Forstaða slíkr- ar stofnunar er vissulega vanda- söm staða og ekki á færi annarra en úrvalskvenna að gegna henni svo að vel fari. Það er vonandi ekki úr vegi að geta þess hér, þar sem nú mun standa fyrir dyrum ráðn- ing forstöðukonu á þá stofnun, sem hefur orðið tilefni til þessarar greinagerðar. Nánasti ráðgjafi forstöðukonunn- ar er barnasálfræðingui'inn og hún
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.