Úrval - 01.08.1967, Page 124
122
ÚRVAL
var IAG haldið í New Yorkborg.
Það myndast ýmis vandamál, hvað
snertir val nýrra meðlima, líkt og
sjá má af eftirfarandi frásögn eins
,,Emmans“: „Húsbóndi minn komst
á snoðir um, að ég er meðlimur, og
hann er alls ekkert of ánægður með
það. Mig grunar, að hann hafi geng-
ið undir gáfnaprófið og fallið.“ Það
má rekja skilnað a.m.k. einna hjóna
til Mensa. Eiginkonan sótti um inn-
göngu og var veitt hún, en eigin-
maðurinn féll á gáfnaprófinu.
Þótt meðlimir Mensa séu gáfað-
asta fólk heimsins, er hér ekki um
félag ,,snobba“ að ræða. Þeir aug-
lýsa ekki yfirburði sína. Einu auð-
kenni þeirra eru lítill prjónn með
gulum haus, sem þeir bera, þegar
þeir sækja Mensafundi. En það eru
litlar líkur til bess, að meðlimirnir
beri slíka prjóna á áberandi stað á
götum úti.
Burt prófessor, formaður Mensa,
álítur, að mismunur á gáfnafari sé
að miklu leyti meðfæddur og því
grundvallist hæfileikar manná að
mestu leyti á heppni í arfstofna-
happdrættinu. Annar „Emmi“ sagði
svo: „Ég fyllist auðmýkt, er mér
verður hugsað til þeirra milljóna
atriða og staðreynda, sem ég hef
ekki hugmynd um.“ En annar sagði
svo: „Há greindarvísitala gefur ekk-
ert tilefni til yfirburðarkenndar. Það
ætti ekki að verðlauna neinn fyrir
hæfileika hans, heldur fyrir það,
hvernig hann notar þá.“
Mensa fæst við rannsóknir á
mannlegri hegðun og breytni og á-
.hrifum hennar á þjóðfélagið. Það
fæst við rannsóknir á eðli greindar-
innar og tengslum hennar við sköp-
un, menntun og forustuhæfileika.
Mensa iætur sér annt um 'margs
konar viðfangsefni, t.d. þróun ná-
kvæmari aðferða til þess að mæla
greind, rannsóknir á því, hvar og
hvernig skoðun og viðhorf fluggáf-
aðs manns „á heima" og hvort sú
skoðun eða það viðhorf getur haft
áhrif á almenningsálitið, getið sé
til um það fyrirfram eða jafnvel
breytt því?
Árið 1964 gáfu meðlimir Mensa
sig fram sem sjálfboðaliðar við 13
mismunandi rannsóknarefni, svo
sem rannsókn á eðli vanskynjunar
og þeirri að börn, sem fæðast á
vissum árstímum, verði gáfaðri en
þau, sem fæðast á öðrum tímum
ársins.
„Emmarnir" bjóða einnig fram
aðstoð sína á öðru sviði vísinda-
rannsókna. Þeir bjóðast til að iáta
aðra rannsaka sig. Sumar Mensa-
deildir hafa tekið til við rannsókn-
ir á eigin vegum og rannsaka t.d.
vandamál afburðabarna og leyndar-
dóma sköpunargáfunnar. Skoðana-
kannarar ieita líka oft til þeirra
við ýmiss konar rannsóknir, þar
sem álitið er, að skoðanir fluggáf-
aðs fólks séu þýðingarmiklar, þeg-
ar ákvarða skal, hverjar tilhneig-
ingar eða stefnubreytingar eru ríkj-
andi hverju sinni.
Serebriakoff segir enn fremur:
„Meira en 7 milljónir manna um
víða veröld, 4 milljónir í Banda-
ríkjunum og milljón í B.retlandi
gætu örugglega gerzt meðlimir í
Mensa. Við viljum fá eins marga
meðlimi og framast er unnt.“
Um 75.000 manns spyr um starf-