Úrval - 01.08.1967, Side 19

Úrval - 01.08.1967, Side 19
MARIE ANTOINETTE OG AXEL FERSEN 17 en það var um grímudansleik að ræða (sem hún hafði heimtað að fá að sækja), og við slíkar kring- umstæður var slíkt atferli leyfilegt og álitið alveg meinlaust. Pilturinn og stúlkan tóku alls ekki eftir því, að menn þessir fylgd- ust vel með atferli þeirra. Þau mös- uðu lengi saman og skildu svo, —- þegar nóg var komið. Heimiliskenn- ari piltsins gekk þá til móts við hann, og síðan urðu þeir samferða heim af dansleiknum. Þessi piltur var Axel Fersen greifi frá Svíþjóð, sonur eins tignasta mannsins við sænsku hirðina. Og upp frá þessu kvöldi var hjarta hans í álögum, .allt til þess, að hann lauk ævi sinni. Hann komst að því, þegar hann var kominn heim, að stúlkan í hvítu skikkjunni var sjálf Marie Antoin- ette, kona ríkiserfingjans, tilvon- andi drottning Frakklands. . . . Það hafa verið margar óham- ingjusamar drottningar fyrr og síð- ar, og Marie Antoinette var örugg- tega ein hinna óhamingjusamari. Móðir hennar var María Theresa keisaraynja í Austurríki, af Habs- borgarættinni. Marie Antoinette var fimmtánda barn Maríu Theresu. — Keisaraynjan vár einstaklega slótt- ug kona, sem notfærði sér börn sín til þess eins að styrkja völd og áhrif ættarinnar víðs vegar um Evrópu. Stúlkan var ekki lagleg. Fersen hefði ef til vill ekki orðið ástfang- inn af henni, hefði hann séð andlit hennar á grímudansleiknum í stað þess að skynja aðeins persónutöfra hennar og heyra mál hennar. Þegar erkihertogaynjan var orð- in 14 ára, en hún var erkihertoga- ynja, þar eð hún var dóttir keisara- ynju, gerði móðir hennar áætlun um tengsl við þá einu fjölskyldu á meginlandi Evrópu, sem stóðst sam- anburð við Habsborgara, hvað dýrð og mikilfengleik snerti, Bourbonætt- ina í Frakklandi. María Theresa á- kvað, að dóttir hennar, Marie Ant- oinette, skyldi gitast ríkiserfingjan- um, en Lúðvík 15. var einmitt afi hans. Það kostaði mikla fyrirhöfn og tók langan tíma að koma þessu öllu í kring. Keisaraynjan sendi sendiherra til Frakklands og skrif- aði fjölmörg bréf. Að lokum tókst henni að Ijúka samningum við Lúð- vík 15. um þetta fyrirhugaða hjóna- band, og þessi kornunga stúlka var send í keisaravagni til Versala til þess að skipa sinn sess við frönsku hirðina. Gamli konungurinn hafði ríkt langa ævi og stjórn hans hafði ein- kennzt af svalli og bruðli. Það var hann, sem mælti þessi frægu orð: „Á eftir mér . . . syndafallið.“ — Hirðin hélt enn fast í sína fyrri dýrð, sem kostaði ríkið offjár, sín- ar fáguðu umgengnisvenjur og flóknu kurteisisreglur og þá kon- unglegu dýrð, sem hafði náð há- marki sínu í tíð Lúðvíks 14. En undir allri þessari glæstu „yfirbygg- ingu“ var allt rotið og fúið, og þessi rotnun var þegar orðin lýðum ljós. Lúðvík 15. var svo bergnum- inn af töfrum hinnar nýju ástmeyj- ar sinnar, Madame du Barry, að hann tók varla eftir dóttur Maríu Theresu, hinni ungu brúði ríkiserf- ingjans. Hvað ungu stúlkuna snerti, fannst henni, að helztu og áhrifamestu per-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.