Úrval - 01.08.1967, Qupperneq 30
28
ÚRVAL
skulu dvelja í brennandi vindi, og
brennheitu vatni, undir þykkum
svörtum reykjarmekki, hvorki köld-
um né þægilegum. Því að þessir
nutu gleði lífsins fyrr, meðan þeir
dvöldu á jörðinni og héldu áfram í
þrjósku, hinni andstyggilegu vonzku
sinni. (Kafli 56).
Þó að Kóraninn fjalli að meginefni
um kenninguna og hvernig iðka
skuli Islamtrú — þá eru þarna lýst
bænum, ölmusugjöfum og föstum
og pílagrímsferðum einu sinni á æf-
inni til Mekka. í lokin eru fáein
orð nauðsynleg um það með hvaða
hætti Kóraninn varð til — hinum
mjög furðulega hætti — og hvern-
ig hann var sendur niður. Það virð-
ist sem það hafi ekki verið um neina
skipulega skrift að ræða. Orð þau,
sem liðu af vörum spámannsins í
dáleiðsluástandinu voru hripuð nið-
ur á hvað sem fyrir varð — perga-
mentsrifrildi og leðurpjötlur, yið-
arbúta og fjalir, og þessu var síðan
fleygt holt og bolt niður í kistu eða
eitthvað annað ílát sem nærtækt
var. All-mikill hluti kaflanna var
ekki skrifaður niður jafnhraðann,
heidur lagður á minnið af þeim sem
nærstaddir voru. Það var ekki fyrr
en spámaðurinn var dauður, og það
var ekki um meiri boðskap að ræða,
að það fór að verða nauðsynlegt,
að setja á bók, á skipulegan hátt,
það sem hann hafði sagt. Það var
auðvitað ekki um neitt að ræða með
hans rithönd. Eitt af því fyrsta sem
eftirmaður Múhameðs, sem leið-
togi Moslem, en það var vinur hans
Abu Bekr, skipaði ungum manni,
sem hafði verið ritari Múhameðs,
að tína saman leifarnar og raða þeim
niður. Þessar leifar voru síðan um-
skrifaðar og bætt við þær, því sem
hægt var að safna „úr hjörtum
mannanna."
Það var svo 650 árum e.Kr., það
er næstum tuttugu árum eftir dauða
Múhameðs, að undirbúin var út-
gáfa, sem síðan var skoðuð bæði
óumbreytanleg og helg. Þrjú fjög-
ur eintök voru búin til af þessari
útgáfu og send til hinna þriggja
hernaðarstöðva — Damaskus, Basra
og Kufa — sem síðan voru nefndar
sem höfuðborgir hins mikla og nýja
Moslem heimsveldis, en frumgerðin
var varðveitt í moskunni í Medina,
þar sem Múhameð var grafinn.
Allar seinni útgáfur af Kóraninum
eru gerðar eftir einhverju þessara
fjögurra eintaka. Það er engin
ástæða til að efast um að í „Hinni
ágætu bók“, eins og Moslemar kalla
Kóraninn, höfum við eigin orð Mú-
hammeðs eins og hann talaði þau
fyrir öllum þessum öldum sem
sendiboði eða postuli Allah, Hins
Eina Mesta Æðsta Guðs.
Vísindamaðurinn kýs helzt það, sem er skipulagt, stöðugt og snyrti-
legt. Skáldi ðkýs helzt það, sem er sérstakt og hvorki hægt að vega
né meta.
Robert Graves.