Úrval - 01.08.1967, Side 43
NORSK FERÐASAGA FRÁ 9. ÖLD
41
snjöllu frásögn eru eins konar gall-
ar, það eru endurtekningar nokkr-
ar sem líkari eru því, sem verður
í töluðu máli en í skipulegri rit-
smíð.
Og er þetta eitt með öðru sem
bendir til þess að nærri orðrétt hafi
verið skrifað upp, og að ritarinn
hafi átt í fullu fangi með að koma
hinu mikla efni fyrir.
Skal nú láta heyra söguna eins
og hún kemur fyrir eftir að íslenzk-
ar orðmyndir hafa verið settar í
stað engilsaxneskra.
FRÁSÖGNIN.
Óttar sagði sínum lávarði, Elfráði
konungi, að hann allra Norðmanna
norðast byggi. Hann kvaðst búa á
því landi norðanverðu, við vestur-
sæinn. Hann sagði að það land lægi
býsna langt norður þaðan (þ.e. Nor-
egur fyrir norðan bústað hans), og
er það allt auðn, utan á fáum stöð-
um staldra Finnar við endrum og
sinnum, þegar þeir eru á dýraveið-
um á sumrum eða fara til fiskjar
á vetrum, við þann sæ.
Hann sagði að hann einhverju
sinni vildi finna, hve langt það
land til norðuráttar lægi eða hvort
nokkur maður fyrir norðan þá auðn
byggi. Þá fór hann í norðurátt með-
fram landi, lét alla leið hið auða
land á stjórnborð og víðsæinn á
bakborð í þrjá daga. Þá var hann
kominn svo langt sem hvalveiði-
menn fara lengst. Þá fór hann þá
leið í norðurátt svo langt sem hann
mátti á þrem dögum öðrum sigla.
Þá beygði það tand í austurátt eða
þá að flói mikill gekk inn í það
land. Hvort var vissi hann ekki, en
hitt vissi hann, að hann beið þar
vestanvinds eða norðan og sigldi
hann þaðan austur með landi svo
sem hann mátti á fjórum dögum
sigla. Þá skyldi hann þar bíða rétts
norðanvinds, fyrir því að það land
beygði þar til suðuráttar, eða þá
að flói mikill gekk þaðan inn til
lands — hvort var vissi hann ekki.
Þá sigldi hann þaðan í suðurátt með
landi, svo að hann mátti á fimm
dögum sigla, þá lá ein mikil á upp
í það land. Þá héldu þeir upp í þá
á, en fram fyrir hana þorðu þeir
ekki að sigla, fyrir ófriði, fyrir því
að þar var allt byggt á aðra hálfu
þeirri á.
Eigi hafði hann fundið annað
byggt land síðan hann fór frá sínu
heimili, og honum var alla leiðina
autt land á stjórnborða, utan fiski-
menn og fuglarar og veiðimenn, og
þeir voru allir Finnar, og honum
var víðsærinn á bakborða. (Þetta
var þá orðin 15 daga sigling að frá-
töldum töfum).
Þeir Bjarmar höfðu býsna vel bú-
ið á sínu landi, og þeir þorðu ekki
að koma þar.
En Tyrfifinnland var allt autt,
nema hvað veiðimenn reikuðu þar
eða fiskimenn eða fuglarar.
Margan fróðleik sögðu Bjarmar
Ottari, bæði af sínu eigin landi og
af þeim löndum sem fyrir utan það
voru.
En hann vissi ekki hvað satt var
af því, því að hann sá það ekki
sjálfur.
Honum virtist Finnar og þeir
Bjarmar tala nálega eina tungu báð-
ir.
Ekki fór hann þangað einungis til