Úrval - 01.08.1967, Síða 49

Úrval - 01.08.1967, Síða 49
LÚÐVÍK 15. OG MADAME DU BARRY 47 En öllum kemur saman um, hvað gerðist á þessum hræðilega palli í skugga Iveggja risaarma þessarar dauðavélar. Þótt konan væri mjög máttfarin, barðist hún fyrir lífi sínu sem óð væri. Hún barðist við böðla sína, hrópaði upp og bað þá að meiða sig ekki og bað þú um að fá að lifa einu augnabliki lengur. Þessi kona á höggpaliinum barð- ist um, allt til hinzta augnabliks. — Hún var að lokum yfirbuguð og bundin, og síðan var henni varpað á grúfu. Pallöxin féll, böðullinn tók höf- uð hennar og lyfti því upp, mann- fjöldinn veifaði höttum sínum og hrópaði: „Lifi lýðveldið!" Þannig lauk Madame du Barry ævi sinni, hin síðasta af hinum valdamiklu og frægu ástmeyjum frönsku kon- unganna.... Madame du Barry var hin síð- asta af „vinstrihandardrottningum“ Frakklands. Hún var óskilgetin dóttir manns eins, sem talsverð leynd hvílir yfir, því að það má segja, að það sé ekki vitað með vissu, hver hann var. En móðir hennar var saumakona í orði kveðnu. Madame du Barry var fædd Jean- ne Bécu. Bécu var ættarnafn móð- ur hennar, og hún bar ekkert ann- að ættarnafn. Telpan bjó við fá- tækleg kjör í bernsku. Hún hlaut menntun sína í klausturskóla, og þegar skólagöngu hennar lauk, flutti hún heim til móður sinnar, sem var nú gift heimilisþjóni ein- um í París. Jeanne var fátæk stúlka af lágstéttum Parísar, og því not- færði hún sér fegurð sína til þess að hafa ofan af fyrir sér og komast áfram í veröldinni. Fyrsfu elskhug- ar hennar voru Monsieur Lafauve- nardiere, de Bonnac ábóti, de Mar- cieu ofursti og Monsieur Duval. Það reyndist örlagaríkur dagur fyrir hana, þegar hún kynntist Jean du Barry, sem gekk undir nafninu „Roué“ (Gjálífisseggurinn). Hann var einn frægasti ævintýramaður síns tíma. Jean du Barry tók Jeanne Bécu undir verndarvæng sinn. Hann sá svo um, að hún „sýndi sig og sæi aðra“ á hinum réttu stöðum. Hann lét hana breyta um nafn nokkrum sinnum til þess að gera það svolít- ið tiginmannlegra. Hann útvegaði henni sífellt auðugri elskhuga.... Lúðvík 15. var nú orðinn fremur lífsþreyttur maður. Hann var orð- inn nokkuð við aldur, og nú voru fjögur ár liðin, síðan ástmær hans, Madame de Pompadour dó. Drottn- ing hans var nú einnig dáin. Það hafði gripið konunginn ofboðsleg iðrun, en svo hafði það nú gleymzt aftui' og hann hafði tekið sér nokkr- ar nýjar ástmeyjar, en þau sambönd stóðu ekki lengi, enda voru þær ekki tiltakanlega tilkomumiklar persónur. Og nú var hann tekinn að gefa sig að augnabliksdaðri. — Þegar hann kom auga á unga stúlku, sem honum geðjaðist að, „kastaði hann vasaklút sínum“ í hana, eins og tekið var til orða . Og hann kastaði vasaklút sínum í hinn unga skjólstæðing „Gjálífis- seggsins", Jeans du Barry. Ástæðan hlýtur að hafa verið feg- urð hennar, a. m. k. að nokkru leyti. De Ligne prins, sem hitti hana
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.