Úrval - 01.08.1967, Side 56

Úrval - 01.08.1967, Side 56
54 ÚRVAL Af því, að þú nauzt sögunnar ekki sjálfur. Hún var ekki fyndin í þín- um augum og áheyrendurnir gera ekki annað en spegla þinn eigin hug. 3. Gerðu söguna, að þinni sögu. Sú iist, að taka sér sögu í munn, og gera hana með örfáum haglega sögðum orðum að þinni eigin sögu og einskismanns annars, er list, sem menn ná ekki tökum á nema með þrotlausri æfingu og sumum tekst það aldrei. Eg þekki tvo menn, sem reka saman fyrirtæki og eru báðir á- gætir ræðumenn. Annar þeirra er fæddur sögumaður, en hinn hefur aldrei náð glæsilegum árangri, enda þótt hann segi sögu mjög sæmilega. Þessi síðarnefndi tók eftir því, að félagi hans leit oft í bók eina, þegar hann ætlaði að fara að segja sögu, og taldi nú víst, að hann myndi geta hrifið áheyrendur, ef hann að- eins næði í þessa bók. Loksins veitt- ist honum tækifæri til þess að kíkja í bókina, og honum brá í brún, þeg- ar hann sá að hún var full af heldur kjánalegum sögum. Félagi hans gerði þær skemmtilegar með því að punta svolítið uppá þær frá eigin brjósti. Mjög algeng skyssa, sem viðvan- ingurinn gerir er að láta fyndnina í sögunni gera boð á undan sér. Það er afturámóti kúnstin að vera langt kominn að segja söguna, áður en hlustandi gerir sér ljóst, að þú sért að segja sögu. Forðastu margþvælda tuggu eins og: „Þetta minnir mig á .... Það er til saga um tvo Ira . . en þó umfram allt merktu ekki sögu þína í byrjun, sem ,,skemmtilega.“ Leyfðu áheyrendum þínum að' gera þá uppgötvun sjálfum. Árangurinn af fyndni verður alltaf mestur þegar undrun fylgir henni. Sagan þín hljómar betur, ef þú getur bundið hana við raunveru- lega persónu eða ímyndaða. í stað þess að segja: „Ég heyrði nú þessa sögu þannig, að það var gamall drykkjumaður“ er rétt að fara var- legar og kænlegar að byrjuninni. Setjum sem svo, að þú hafir verið að ræða eitthvað við menn, til dæmis, um reglusemi eða þess háttar og þú vilt koma þessari sögu þinni, að, þá er rétt að fara að því með dálitlum klókindum, eins og til dæmis: „Sumir menn eru fædd- ir reglusamir, afturámóti eru aðrir það ekki — þeir eru tildæmis ekki ólíkir Hob Jenkins, sem var vanur að gera ýmis viðvik fyrir fólk í litla bænum, þar sem ég ólst upp. Hob var reglusamur drykkjumaður ... “ Þegar þú hefur sagt þetta, hefurðu búið til grunn til að byggja á söguna þína og getur nú haldið áfram. 4. Segðu söguna á þinni eigin mállýzku. Sérhæfðu þig í þeim sögum, sem þú segir bezt. Ef þú ert ekki vel heima í mállýzkunni, þá gerðirðu réttast að láta hana eiga sig. En það er nú líklegt að þú sért vel heima í einhverri mállýzku og æfðu þig þá í henni. Notaðu hvert tæki- færi til að fylgjast með viðbrögðum þess hóps, sem þú hefur valið. Við skulum segja, að þú veljir þér að segja írskar sögur. Jæja
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.