Úrval - 01.08.1967, Blaðsíða 72
70
ÚRVAL
dr. Alfred Maury, sem lagt hefur
stund á rannsókn drauma, hefur
skýrt frá nokkrum athyglisverðum
tilraunum, sem voru beinlínis gerð-
ar í þeim tilgangi að fá fólk til þess
að dreyma fyrir tilstuðlan utanað-
komandi áhrifa. f samvinnu við
einn af aðstoðarmönnúm sínum
tókst honum að dreyma að nýju
vissa drauma, þegar skilningarvit
hans voru örvuð á vissan hátt, með-
an hann var í djúpum svefni. Hljóð-
ið í fiðlustreng rétt við eyra hans
hafði alltaf þau áhrif, að hann
dreymdi draum, þar sem kirkju-
klukkur gegndu mikilvægu hlut-
verki. Þegar kveikt var á vasaljósi
og því beint að lokuðum augum
hans, dreymdi hann, að hann lenti
í ofsastormi, þar sem voru þrumur
og eldingar. Hringingarhljóðið í
vekjaraklukkunni varð til þess, að
hann dreymdi, að hann væri kom-
inn í skrifstofu sína og byrjaður
að svara símanum, svo framarlega
sem hringingarhljóðið var ekki of
hátt. Og væri haldið á brennandi
eldspýtu fyrir vitum hans, dreymdi
hann, að hann væri að elta slökkvi-
liðsbíl.
Dr. Maury dró þá ályktun af
þessum niðurstöðum, að allar þess-
ar utanaðkomandi örvanir hefði
þau áhrif að „koma af stað“ draum-
um, sem hindruðu það svo, að hann
vaknaði. Fyrsta viðbragð líkamans
gegn örvunum þessum miðaði að
því að vekja hann, en draumarnir
rufu viðbragðaboðið, svo að hann
vaknaði ekki, heldur varð „straum-
rof“. Þess vegna varð hugur hans
brátt svo niðursokkinn í rökréttar
draumalausnir á þessum utanað-
komandi óþægindum, að hann
gleymdi alveg að vekja hann. Slíkt
er eðli draumanna. Þeir eru varð-
menn svefns okkar. Órofinn, fastur
svefn væri ef til vill ekki mögu-
legur án þeirra.
í rauninni er það ekki óalgegnt,
að menn aðhafist ýmislegt vitur-
legra og athyglisverðara í draumi
en í vöku. Draumur er venjulega
djörf tilraun til skjótrar lausnar
vandamáls, án þess að maður finni
lengur lil neinnar áhættukenndar.
Flestir eru miklu hugrakkari í
draumi en vöku. Oft eru þeir líka
míklu atorkusamari og betur á
verði en þegar þeir eru við venju-
leg störf sín.
Vísindamenn álíta nú, að þeir
skilji ástæðuna fyrir því, að draum-
ar geta stundum reynzt eins konar
spádómar um það, sem síðar verð-
ur. Þeir halda því fram, að draum-
ar tákni leyndar óskir, og því
kunni „spádómsdraumur" að geta
sýnt, hvað sá, sem dreymir draum-
inn, þráir, að komi fyrir hann í
raun og veru. Og síðar hefst hann
svo handa, þegar hann vaknar, og
reynir að framkvæma þetta, láta
það rætast.
Draumur getur einnig gegnt á-
kveðnu þjónustuhlutverki í svefni
okkar. Ef maður borðar saltaðar
hnetur seint að kvöldi.hættir mann
til að þyrsta um nóttina. Meðan
maður sefur, verður þorstinn í raun-
inni svo megn, að það myndast tog-
streita innra með manni um það,
hvort það eigi að vekja mann eða
ekki. Þegar svo er komið, tekur
draumurinn við stjórn til þess að
feykja burt ótta manns um ofur-